Læknablaðið - maí 2020, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2020/106 251
Heimilislæknaþingið 2020
Reykjavík 16.-17. október 2020
Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna 2020 verður haldið á Grand Hótel í Reykjavík.
Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í fomi erinda og veggspjalda.
Útdráttum (sbr. leiðbeiningar hér að neðan) skal skila til Emils L. Sigurðssonar á emilsig@hi.is og er skilafrestur til 6. september n.k.
Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins.
Eins og áður verður samvera og skemmtun á vegum FÍH.
Þinginu lýkur með aðalfundi Félags íslenskra heimilislækna laugardaginn 17. október.
Nánari dagskrá verður send í tölvupósti til félagsmanna þegar nær dregur.
Skráning er á thorunn@athygliradstefnur.is fyrir 14. september.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar
Emil L. Sigurðsson og Berglind Gunnarsdóttir
Útdráttur úr rannsókn skal rúmast á einu A4-blaði með hefðbundnum spássíum og hægri jöfnun. Texti getur að jafnaði verið um 300-350 orð. Letur: Times New Roman. Leturstærð 16 í
fyrirsögn og 14 í megintexta. Nota skal lágstafi í fyrirsögn. Á eftir fyrirsögn koma nöfn höfunda. Undirstrikið nafn flytjanda/aðalhöfundar ásamt vinnustað hans og tölvupóstfangi. Ef um
hefðbundna megindlega rannsókn er að ræða skal megintexta skipt í: Bakgrunnur; Tilgangur; Efniviður og aðferðir; Niðurstöður og Ályktanir. Framsetning eigindlegra rannsókna getur
verið frjálslegri, en kaflaskipti æskileg. Að jafnaði er ekki gert ráð fyrir heimildalista í útdrætti.
Fæstir vita að auðvelt er að endurskapa gögn á USB lyklum.
Eyðing með „delete“ er ekki örugg eyðing. Gagnaeyðing
ábyrgist eyðingu gagna á USB lyklum, örgjörvum og öðrum
smáum gagnamiðlum með „örtætingu“. Móttaka, flutningur,
vinnsla og förgun fylgja öruggu og vottuðu ferli.
Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is
Örugg eyðing gagna
Geymir þú
viðkvæmar
upplýsingar
á USB lykli?