Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - mai 2020, Síða 27

Læknablaðið - mai 2020, Síða 27
LÆKNAblaðið 2020/106 251 Heimilislæknaþingið 2020 Reykjavík 16.-17. október 2020 Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna 2020 verður haldið á Grand Hótel í Reykjavík. Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í fomi erinda og veggspjalda. Útdráttum (sbr. leiðbeiningar hér að neðan) skal skila til Emils L. Sigurðssonar á emilsig@hi.is og er skilafrestur til 6. september n.k. Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins. Eins og áður verður samvera og skemmtun á vegum FÍH. Þinginu lýkur með aðalfundi Félags íslenskra heimilislækna laugardaginn 17. október. Nánari dagskrá verður send í tölvupósti til félagsmanna þegar nær dregur. Skráning er á thorunn@athygliradstefnur.is fyrir 14. september. Fyrir hönd undirbúningsnefndar Emil L. Sigurðsson og Berglind Gunnarsdóttir Útdráttur úr rannsókn skal rúmast á einu A4-blaði með hefðbundnum spássíum og hægri jöfnun. Texti getur að jafnaði verið um 300-350 orð. Letur: Times New Roman. Leturstærð 16 í fyrirsögn og 14 í megintexta. Nota skal lágstafi í fyrirsögn. Á eftir fyrirsögn koma nöfn höfunda. Undirstrikið nafn flytjanda/aðalhöfundar ásamt vinnustað hans og tölvupóstfangi. Ef um hefðbundna megindlega rannsókn er að ræða skal megintexta skipt í: Bakgrunnur; Tilgangur; Efniviður og aðferðir; Niðurstöður og Ályktanir. Framsetning eigindlegra rannsókna getur verið frjálslegri, en kaflaskipti æskileg. Að jafnaði er ekki gert ráð fyrir heimildalista í útdrætti. Fæstir vita að auðvelt er að endurskapa gögn á USB lyklum. Eyðing með „delete“ er ekki örugg eyðing. Gagnaeyðing ábyrgist eyðingu gagna á USB lyklum, örgjörvum og öðrum smáum gagnamiðlum með „örtætingu“. Móttaka, flutningur, vinnsla og förgun fylgja öruggu og vottuðu ferli. Gagnaeyðing ehf. · Bæjarflöt 7 · 112 Reykjavík · Sími 568 9095 · www.gagnaeyding.is · gagnaeyding@gagnaeyding.is Örugg eyðing gagna Geymir þú viðkvæmar upplýsingar á USB lykli?

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.