Morgunblaðið - 18.05.2020, Side 4
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Flugfélagið ætlar að
sækja um 30 milljarða króna.
Taka ekki afstöðu til áhrifa
á komandi hlutafjárútboð
Óformlegur vinnufundur hjá flugfreyjum og Icelandair
Samninganefndir Flugfreyjufélags
Íslands og Icelandair hittust á
óformlegum vinnufundi í gær í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara. Ekki var
um formlegan sáttafund að ræða
heldur vettvang fyrir minni hópa til
að koma saman og finna sameigin-
lega fleti. Síðasti sáttafundur fór
fram á miðvikudag í síðustu viku og
lauk honum án árangurs. Hafa báðir
aðilar sent frá sér tilboð sem miða að
því að ná ásættanlegri niðurstöðu, án
árangurs. Skammt er nú þar til hlut-
hafafundur Icelandair fer fram og
hefur Bogi Nils Bogason, forstjóri
Icelandair, sagt að tíminn sé að
renna frá félaginu.
Taka ekki afstöðu á þessu stigi
Að sögn forsvarsmanna Icelandair
er á þessu stigi ekki hægt að taka af-
stöðu til þess hvaða áhrif það mun
hafa á hlutafjárútboð félagsins ef
samningar nást ekki við flugfreyjur
fyrir hluthafafund á föstudag. Þetta
kemur fram í skriflegu svari flug-
félagsins við fyrirspurn Morgun-
blaðsins. Ekki fengust skýrari svör
þegar eftir því var leitað.
aronthordur@mbl.is
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikil óánægja er meðal margra eig-
enda og rekstraraðila veitinga- og
skemmtistaða í miðborg Reykjavík-
ur með samskipti sín við fasteigna-
félög sem þau leigja húsnæði af.
Leiguverð hefur verið hátt og litlar
sem engar tilslakanir fást hjá fast-
eignafélögunum þegar engar tekjur
koma í kassann hjá mörgum.
„Við upplifum þetta sem algeran
hrottaskap í viðskiptum,“ segir Þór-
hallur Viðarsson, einn eigenda
skemmtistaðarins B5 í Bankastræti,
um viðskipti sín við Eik fasteigna-
félag.
Tíðar hækkanir leiguverðs
Rekstur B5 hefur verið stopp eins
og annarra skemmtistaða síðan
samkomubann var sett á um miðjan
mars. Félagið sem rekur staðinn
hefur þurft að standa skil á leigu-
greiðslum eins og í venjulegu árferði
þó tekjurnar hafi þurrkast upp. Eins
og komið hefur fram á síðum Morg-
unblaðsins hafa stóru fasteignafélög-
in á markaði ekki viljað lækka eða
fella niður leigu viðskiptavina sinna
til að bregðast við umræddu tekju-
falli. B5 leigir húsnæði af Eik fast-
eignafélagi og hið eina sem þar stóð
til boða var að fresta greiðslu á 50%
leigunnar fyrir apríl og maí.
Óánægja Þórhalls og viðskipta-
félaga hans ristir þó dýpra en bara
vegna ástandsins sem skapast hefur
af kórónuveirufaraldrinum. Telja
þeir sig hafa neyðst til að fallast á
tíðar hækkanir leigu, ellegar myndi
Eik gera breytingar á skilmálum
leigunnar sem myndu leiða til þess
að forsendur rekstur B5 væru
brostnar. B5 er sem kunnugt er
skemmtistaður og megnið af tekjun-
um kemur inn eftir miðnætti tvo
daga vikunnar.
Þórhallur segir að forsvarsmenn
Eikar hafi viljað setja inn í viðauka
við leigusamning ákvæði þess efnis
að í húsnæðinu yrði aðeins rekinn
veitingastaður sem væri opinn til eitt
á nóttunni. Gegn því að fallast á
hækkun leigu hafi tekist að fresta
gildistöku ákvæðisins til 31. mars
2024.
Þurfa að skuldsetja félagið
Umræddur viðauki við leigusamn-
ing um húsnæðið í Bankastræti 5,
sem Morgunblaðið hefur undir hönd-
um, sýnir raunar að leiga hefur verið
hækkuð hratt síðustu misseri. Á ár-
unum 2017 og fram í september 2019
nam hún rétt tæpri einni og hálfri
milljón fyrir utan virðisaukaskatt. Í
september á síðasta ári hækkaði
leigan svo í 1,9 milljónir fyrir virð-
isaukaskatt. Hinn 1. apríl síðastlið-
inn, eftir að samkomubann var sett á
og staðnum lokað, var enn og aftur
hækkað, nú í rúmar 2,4 milljónir
króna. Auk þess bættist við samn-
ingsbundin hækkun vegna breyting-
ar á vísitölu neysluverðs. Þá stóð
leigan í tæpum 2,8 milljónum og þeg-
ar virðisaukaskattur bætist ofan á
eru forsvarsmenn B5 rukkaðir um
ríflega 3,4 milljónir króna í leigu á
mánuði. Ef sameiginlegum rekstrar-
kostnaði húsnæðins er bætt við fer
upphæðin yfir 3,5 milljónir króna í
hverjum mánuði.
„Við höfum ekki átt annarra kosta
völ en að fallast á þessar hækkanir.
Spurningin sem við höfum staðið
frammi fyrir er hvort við viljum setja
félagið í þrot eða borga það sem þeir
fara fram á. Fyrir mér er þetta ekk-
ert annað en ofbeldi,“ segir Þórhall-
ur. Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins eru fá dæmi um svo háa leigu hjá
skemmtistöðum í miðbænum, ef
nokkur. Raunar virðist hægt að full-
yrða að leigan hjá B5 sé talsvert
hærri en gerist og gengur í þessum
bransa.
Þórhallur segir að 2019 hafi reynst
þungt í rekstrinum eins og hjá mörg-
um í veitingabransanum. Tilraunir
til að fá leiguskilmálum breytt þá um
haustið hafi engan árangur borið.
Nú syrtir enn frekar í álinn og þó fé-
lagið hafi verið skuldlaust gangi
hratt á sjóði þess og sér Þórhallur
fram á að steypa þurfi því í skuldir,
eigi það að lifa. Hann tekur fram að á
leigutímanum hafi eigendur
skemmtistaðarins varið tugum millj-
óna króna í endurbætur á húsnæð-
inu. Því hafi verið farið fram á það
við Eik að hækkanir á leigu frá því í
haust og aftur nú á vordögum verði
endurskoðaðar, að minnsta kosti þar
til fyrirséð er að reksturinn standi
undir þeim. Hann segir að í þessu
ljósi hafi hafi lögmaður félagsins sett
sig í samband við Garðar Hannes
Friðjónsson, forstjóra Eikar, og
Eyjólf Árna Rafnsson stjórnarfor-
mann en engin svör fengið.
Segja að brugðist hafi verið við
Garðar Hannes sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann teldi óviðeig-
andi að tjá sig um mál einstakra við-
skiptavina. Hann sagði að brugðist
hefði verið við vandræðum leigutaka
vegna kórónuveirufaraldursins og
þeim veitt aðstoð sem þess þurftu.
Við það hefði félagið notið liðsinnis
Deloitte. Hvert tilvik væri metið fyr-
ir sig og þannig yrði það áfram þegar
áhrif kórónuveirunnar fjara út.
Saka fasteignafélag um „hrottaskap“
Eigendur skemmtistaðarins B5 segja fasteignafélag þvinga fram hækkanir á leiguverði Leigan
hækkaði um hálfa milljón eftir að staðnum var lokað í samkomubanni Borga 3,5 milljónir á mánuði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
B5 Einn vinsælasti skemmtistaðurinn í miðbænum undanfarinn áratug.
Staðnum var lokað þegar samkomubann var sett á um miðjan mars.
Vinna við tvöföldun Reykjanes-
brautar á 3,2 km kafla frá Kaldársel-
svegi að Krýsuvíkurvegi hefur
gengið vel undanfarna tvo mánuði
þrátt fyrir kórónuveirufaraldur. Þar
sem íbúðabyggð er mikil í kringum
vegarkaflann og umferðin þung sem
liggur í gegnum mitt framkvæmda-
svæðið er allt undirlagt af hjáleiðum
og öryggisráðstöfunum.
Á myndinni er horft frá Reykja-
nesbraut inn í Hafnarfjörð við Þor-
lákstún á Völlunum. Sjá má glæsi-
lega nýja göngubrú sem kom til
landsins frá Póllandi í febrúar og er
nú komin í gagnið. Önnur eins verð-
ur sett upp við Ásland en það bíður
til hausts, ef marka má Vegagerð-
ina. Þá er verið að breikka brúna yf-
ir Strandgötu.
Unnið er nótt sem nýtan dag við
tvöföldunina og að jafnaði hafa verið
í kringum 45 starfsmenn á svæðinu í
gegnum heimsfaraldurinn. Fyrsta
malbikun sumarsins hófst 28. apríl
og heldur enn áfram.
Tvöföldun
vegar ekki
einfalt mál
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verktaki á vegum Veitna kom niður á
mannvirki í jörðinni sem ekki var vitað
af við framkvæmdir í Elliðaám í vik-
unni. Þetta var nánar til tekið við Raf-
stöðvarveg, skammt frá lagna-
stokknum sem liggur neðarlega í
dalnum. Talið er að um gamlan steypt-
an olíutank sé að ræða og þar var mik-
ill olíumengaður jarðvegur í aðeins 15
til 20 metra fjarlægð frá árbakka Ell-
iðaáa. „Vitað var að á þessu svæði gæti
mögulega fundist mengaður jarðvegur
en ekkert í líkingu við það magn er
fannst,“ segir í tilkynningu á vef
Veitna.
Þar segir jafnframt að olíuslys á
þessum stað geti verið grafalvarlegt
mál fyrir viðkvæmt lífríkið í dalnum og
ánum og að því hafi Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur verið kallað á staðinn.
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, sem á
ríkra hagsmuna að gæta í Elliðaám,
var gert viðvart um fundinn sem og
Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun.
Á fimmtudag var unnið að því að
koma olíumenguðum jarðveginum frá
svæðinu undir stjórn Heilbrigðis-
eftirlits Reykjavíkur sem stýrir að-
gerðum á vettvangi. Innihaldi tanksins
verður fargað í Sorpu.
Olíumengaður jarð-
vegur í Elliðaárdal
Lífríkið í dalnum og ánum viðkvæmt