Morgunblaðið - 18.05.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 18.05.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020 Ívar Pálsson furðar sig á því ípistli á blog.is að „afturhalds- kommahluti VG, sem er kannski studdur 7% kjós- endanna,“ skuli geta komið í veg fyrir „að varn- arbandalagið NATO byggi varanlega hafnar- aðstöðu og fleira fyrir fjölda millj- arða króna, skapi störf hér og tryggi betur stöðu Íslands í eft- irliti og vörnum Norður- Atlants- hafsins.“    Ívar heldur áfram: „Hver hefðitrúað því að Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur í ríkisstjórn beygi sig svona í duft- ið fyrir argasta „Ísland-úr- NATO,-herinn-burt“ sósíalista- íhaldinu? Hér hlýtur að þurfa að draga línuna, að gangast við þessu samstarfi við NATO eða að rjúfa þessa stjórn ella. Þjóðar- hagsmunir krefjast þess.“    Loks segir hann: „Sósíalistarbörðust gegn aðild Íslands að NATO, en höfðu sem betur fer ósigur. Keflavíkurflugvöllur, sem er að verulegum hluta frá NATO, hefur fært Suðurnesjum og Ís- lendingum öllum mikla gæfu. Kynslóð forsætisráðherra hættir til að taka þeirri uppbyggingu allri sem sjálfsögum hlut. Að sama skapi myndu hafnir og önn- ur aðstaða á svæðinu hafa var- anleg jákvæð áhrif á efnahags- lífið og þjóðlífið.    Þjóðaröryggisstefnu verðurekki framfylgt með blómum í hárinu. Öryggiseftirliti í norður- höfum er best fyrir komið hér og samstarf NATO-þjóða greiðir fyr- ir uppbyggingu þess. Við eigum ekki að færa öðrum þessi gæði á silfurfati, sérstaklega núna þegar vel sverfur að.“ Ívar Pálsson Hver hefði trúað því? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár. Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora. Lárus Sigfússon er lát- inn, 105 ára að aldri. Hann lést 13. maí síð- astliðinn. Lárus var undanfarin ár elstur ís- lenskra karla og næst- elstur Íslendinga. Lárus fæddist á Stóru-Hvalsá í Stranda- sýslu 5. febrúar 1915, sonur Sigfúsar Sigfús- sonar bónda og Krist- ínar Gróu Guðmunds- dóttur. Hann hóf búskap á Kolbeinsá í Hrútafirði árið 1937, var landpóstur, flutti til Reykjavíkur 1956, vann hjá Sam- bandinu, var leigubílstjóri og síðar ráðherrabílstjóri og var með ökurétt- indi fram undir hundrað ára afmælið. Lárus eignaðist fyrsta bílinn 1933 og þann síðasta 2015. Kona Lárusar var Kristín Hann- esdóttir, en hún lést fyrir rúmum ell- efu árum. Þau voru gefin saman í Prestbakkakirkju haustið 1939. Börn Lárusar og Kristínar voru sex og eru fjögur þeirra á lífi. Afkomendurnir voru á annað hundrað. Síðustu árin bjó Lárus í Hvassaleiti í Reykjavík með sambýliskonu sinni, Kristínu Gísladóttur. Lárus varð langalangalangafi sumarið 2019 þegar barnabarna- barnabarn hans eignaðist dóttur en aðeins fjórum sinnum áður er vitað um sex ættliði hér á landi á lífi á sama tíma. Systkini Lárusar voru tólf og náðu mörg þeirra háum aldri. Lár- us og Anna systir hans, sem dó í byrjun þessa árs, urðu samanlagt 206 ára og 202 daga, sem er Íslandsmet. Nokkur viðtöl birtust við Lárus í Morgun- blaðinu síðustu ár. Þar kom meðal annars fram að hann mundi fyrst eft- ir sér árið 1918, frosta- veturinn mikla. „Ég þakka 104 árin því að ég hef alltaf haft nóg að hugsa um og gera. Ég hef haft ánægju af að vinna og taka þátt í sem flestu. Ég hef tekið þátt í æði mörgu öll þessi ár og þau eru næstum því óteljandi störfin sem ég hef haft með höndum,“ sagði Lárus árið 2019. Hann gekkst fúslega við því að hafa bíladellu. „Ég hef eignast marga bíla um dagana; yfir hundrað skilst mér, lögreglan lét mig vita af því. Samt var ég aldrei sektaður. Ég held að það sé þokkalega af sér vikið en ég hætti ekki að keyra fyrr en ég var orðinn hundrað ára. Ég var alltaf að kaupa bíla og gera þá upp, mér til ánægju og yndisauka. Ég seldi síð- asta bílinn að verða hundrað ára. Hann fór til kaupfélagsstjóra norður á Ströndum.“ Andlát Lárus Sigfússon Snorri Másson snorrim@mbl.is Fasteignafélagið Salteyri ehf. hefur gert eigendum Kaffivagnsins á Granda tilboð í húsnæði veitingastað- arins, sem eigendur íhuga nú að ganga að. „Það barst álitlegt tilboð í eignina sem við erum að meta,“ segir Jóhann Þórarinsson, forstjóri Food- Co, sem á og rekur Kaffivagninn. „Það er ekki búið að selja húsið.“ FoodCo keypti Kaffivagninn árið 2017. Á vefsíðu staðarins er hann sagður elsti samfleytt rekni veitinga- staður á Íslandi en hann hefur verið starfandi frá 1935, þó ekki á sama stað alla tíð. Eigendaskipti hafa verið nokkur á öldinni en eigendurnir fyrir FoodCo höfðu átt hann frá 2013. Faxaflóahafnir, sem eiga forkaups- rétt á mörgum eignum á hafnarsvæð- inu, féllu á fundi sínum fyrir helgi frá réttinum á húsnæði Kaffivagnsins. FoodCo, sem rekur mikinn fjölda veitingastaða um allt land og samein- aðist nýlega Gleðipinnum, hefur skilj- anlega ekki átt sjö dagana sæla í kór- ónuveirufaraldrinum. Í samkomu- banninu höfðu þeir fyrst um sinn opið en 24. mars tilkynntu þeir að sumum veitingastöðunum yrði lokað tíma- bundið. Þar á meðal var Kaffivagninn og ólíkt öðrum veitingastöðum á veg- um félagsins var ekki boðið upp á heimsendingu þaðan. Vilja kaupa Kaffivagninn á Granda  „Álitlegt tilboð“ sem verið er að meta  Sagður elsti veitingastaður landsins Kaffivagninn Rekinn frá 1935.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.