Morgunblaðið - 18.05.2020, Qupperneq 11
Ratsjármynd/Aðsend
Ís Eyjan er á þessari ratsjármynd lituð daufbrún, en ísinn er ljós grátónn.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Talsvert mikinn hafís er að finna
djúpt fyrir norðan land en um er
að ræða ís sem nær til eyjunnar
Jan Mayen, að sögn Ingibjargar
Jónsdóttur, dósents í landfræði
við Háskóla Íslands.
„Ég tók eftir því að það væri
talsvert mikill ís djúpt fyrir
norðan land og í ljós kom að það
er ís sem nær alveg í kringum
Jan Mayen,“ segir Ingibjörg.
Samkvæmt gögnum norsku
veðurstofunnar þarf að leita aft-
ur til 1996 til að finna hafís við
Jan Mayen í maímánuði, og jafn-
vel enn lengra til að sjá hafís
austan við eyjuna á þessum
tíma.
„Þetta er því frekar sérstakur
atburður. Ef litið er til hafís-
þekjunnar á norðurhveli í heild,
er hins vegar frekar lítill hafís,
eða álíka og á undanförnum ár-
um sem teljast mjög íslítil,“ seg-
ir Ingibjörg.
Áhrif vinda og strauma
Spurð hvað geti skýrt þessar
sérstöku aðstæður segir Ingi-
björg:
„Þetta sýnir hvernig stað-
bundin áhrif vegna vindafars og
strauma geta verið mikil. Allt í
einu er eitthvað þarna sem hefur
ekki sést í áratugi.“
Ísinn sem nú umkringir eyj-
una nær frá Grænlandi en er
ekki alveg heill heldur er um að
ræða spangir af ís, að sögn Ingi-
bjargar.
Jan Mayen er um 550 kíló-
metra norðaustur af Íslandi.
Hún er norsk eldvirk eyja í
Norður-Íshafi.
Á norðausturhluta eyjarinnar
er risavaxið eldfjall sem ber
heitið Beerenberg. Það er nyrsta
virka eldfjall heims og gaus til-
tölulega nýlega á jarðsögulegan
mælikvarða eða árið 1985.
Allt í einu eitthvað sem
hefur ekki sést í áratugi
Ís nær til Jan Mayen í fyrsta sinn í maímánuði síðan 1996
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Garðtraktorar
í miklu úrvali
Gerir sláttinn auðveldari
Cub Cadet sláttutraktorarnir eru afar vandaðir og vel útbúnir sláttutraktorar sem mæta þörfum
og kröfum vandlátra garðeiganda og annarra sláttumanna.
Hjá okkur er eitt mesta úrval landsins af garðtraktorum í mörgum stærðum og verðflokkum.
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
„Þetta er komið langleiðina og verð-
ur klárt fyrir fyrsta leik í móti,“ seg-
ir Gunnlaugur Jónsson, íþrótta- og
verkefnastjóri Íþróttafélagsins
Gróttu. Stúka við knattspyrnuvöll
félagsins er óðum að taka á sig mynd
eftir framkvæmdir síðustu mánuði.
Við stúkuna verður bætt 225 sætum,
en áður rúmaði hún 300 áhorfendur.
Samtals mun fullgerð stúka því geta
tekið við um 525 áhorfendum í sum-
ar. Að sögn Gunnlaugs eru fram-
kvæmdir nú vel á veg komnar, en
þær hófust skömmu áður en heims-
faraldur kórónuveiru barst hingað
til lands. „Þetta byrjaði febrúar og
var því byrjað áður en veiran kom.
Hún riðlaði þessu örlítið en þetta er
á góðri leið,“ segir Gunnlaugur.
Stúkan verður tilbúin 20. júní nk.
þegar Grótta tekur á móti Val í
fyrsta heimaleik liðsins í Pepsi Max-
deild karla í ár.
aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stúka Framkvæmdir við stúkuna hafa staðið yfir undanfarna mánuði.
Ný stúka farin að
taka á sig mynd
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Sveitarstjórnin á Vopnafirði ætlar að
sjá hvernig núverandi eigendum
verslunarinnar Kauptúns, sem er
eina verslunin sem selur nauðsynja-
vörur á Vopnafirði, gengur að finna
nýja rekstraraðila áður en mögulegt
inngrip verður.
Þetta segir Sara Elísabet Svans-
dóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðar-
hrepps. Kjörbúðin á Þórshöfn er
meðal annarra að skoða kaup á
rekstrinum, að sögn Söru.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
síðustu viku hefur Árni Róbertsson,
kaupmaður og eigandi Kauptúns og
sjoppunnar Robbans, ákveðið að
hætta verslunarrekstri 1. júlí næst-
komandi.
Synir Árna, Nikulás og Steingrím-
ur, leita nú að nýjum rekstraraðilum
að sögn Söru en sveitarstjórnin er í
góðu sambandi
við þá.
„Þeir eru að
tala við einhverja
aðila veit ég og
svo erum við bara
tilbúin á kantin-
um. Þeir létu okk-
ur vita þegar þeir
ákváðu að hætta
og svo erum við
bara alltaf að taka
stöðuna á þeim. Það er ekkert form-
legt inngrip hafið hjá okkur en við
ætlum að bíða og sjá hvort það gangi
hjá þeim að finna nýja rekstrar-
aðila.“
Aðspurð segir Sara að það myndi
vissulega hafa neikvæð áhrif á
Vopnafjörð ef ekki finnast nýir
rekstraraðilar.
„Það verður að vera búð hérna.
Við höfum ekki áhyggjur af þessu en
erum að fylgjast með.“
„Bíða á kantin-
um“ ef illa fer
Sveitarstjóri segir verslun nauðsyn
Sara Elísabet
Svansdóttir
Færri beiðnir um gjaldþrotaskipti
hafa verið lagðar fram það sem af er
ári en á sama tíma í fyrra. Þetta kem-
ur fram í tölum sem dómstjórar Hér-
aðsdóms Reykjavíkur og Héraðs-
dóms Reykjaness tóku saman fyrir
Morgunblaðið.
Þótt umræðan í þjóðfélaginu sé á
þá leið að mörg fyrirtæki eigi í mikl-
um vandræðum endurspeglast það
ekki enn í gjaldþrotameðferðum.
Raunar segir Símon Sigvaldason,
dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur,
að hægt og rólega hafi dregið úr inn-
komnum beiðnum um gjaldþrota-
skipti hjá dómstólnum eftir að
samkomubannið var lagt á.
Frá 1. janúar og fram til 15. maí
voru skráð inn 322 gjaldþrotamál hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur. Á sama
tíma í fyrra voru þessi mál 337.
Sama er uppi á teningnum hjá
Héraðsdómi Reykjaness. Samkvæmt
upplýsingum frá Jóni Höskuldssyni
dómstjóra bárust 213 beiðnir um
gjaldþrotaskipti frá 1. janúar í ár
fram til 15. maí. Á sama tíma í fyrra
bárust 257 samskonar mál.
Gjaldþrotabeiðnum
fækkar á milli ára
Morgunblaðið/Þór
Héraðsdómur Reykjavíkur Færri
gjaldþrotamál í ár heldur en í fyrra.