Morgunblaðið - 18.05.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Sambandsþing Þjóðverja samþykkti
fyrir helgi útvíkkun á hegningar-
lögum sínum. Þegar ný lög taka
gildi getur það varðað allt að
þriggja ára fangelsi að svívirða með
einum eða öðrum hætti fána Evr-
ópusambandsins, til dæmis með því
að brenna hann. Sama refsing mun
liggja við því að svívirða Evrópu-
sönginn svonefnda. Hingað til hefur
hið sama gilt um svívirðingu ann-
arra þjóða fána og er vernd yfir
þeim yfirleitt tvíhliða skuldbinding á
milli ríkja. Nú nýtur Evrópufáninn
þeirrar sömu helgi. Lagabreyting-
unni mótmælti aðeins þjóðernis-
flokkurinn AfD, sem sagði hana
vega að tjáningarfrelsi fólks. Þess er
að geta að sama bann er í gildi um
svívirðingu Evrópufánans á Íslandi.
Bannað verði að
brenna fána ESB
ESB Svívirðing fánans orðin ólögleg.
ÞÝSKALAND
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríska geimferðastofnunin
NASA kynnti á föstudaginn áætl-
anir sínar um að gera tvíhliða samn-
inga við önnur ríki um samvinnu við
að koma upp fótfestu á tunglinu,
sem aftur muni aðstoða við að koma
fyrsta manninum til Mars.
NASA stefnir nú að því að koma
fyrstu konunni til tunglsins fyrir ár-
ið 2024, og er tunglferðaáætlunin
nýja kennd við Artemis, tvíburasyst-
ur Apollo í grískri goðafræði, en
áætlunin sem kom fyrsta manninum
á tunglið 1969 var nefnd eftir hon-
um. Fyrirhugaðir samningar NASA
verða einnig kenndir við Artemis, en
þeir eiga að meginstofni að byggjast
á Útgeimssamningunum frá 1967.
Í fréttatilkynningu NASA um
Artemis-samningana segir að í ljósi
þess að fjöldi ríkja og einkafyrir-
tækja sé að starfa í geimnum milli
tungls og jarðar sé nauðsynlegt að
setja fram sameiginlegar megin-
reglur sem muni gilda um könnun
geimsins, en þar er meðal annars
kveðið á um leiðir til að koma í veg
fyrir árekstra á milli ríkja í geimn-
um, sem og hvernig eigi að nýta þær
auðlindir sem felast í geimnum.
Auðlindir leynast undir
hrjóstrugu yfirborðinu
Það síðastnefnda er það sem vakið
hefur mesta athygli, en þegar fyrstu
fregnir af Artemis-samningunum
láku út í næstsíðustu viku einblíndu
þær nánast allar á það, hvernig
Bandaríkjastjórn hygðist hefja
námugröft á tunglinu og öðrum
fyrirbærum í sólkerfinu.
Var þá einkum horft til þess að 8.
apríl síðastliðinn undirritaði Donald
Trump Bandaríkjaforseti tilskipun
sem opnaði á að bandarísk fyrirtæki
gætu nýtt sér auðlindir tunglsins, en
gagnrýnendur tilskipunarinnar,
meðal annars rússnesk stjórnvöld,
sögðu þá tilskipun stangast á við þau
yfirlýstu markmið Útgeimssamn-
inganna að geimurinn tilheyrði öllu
mannkyni.
En eftir hverju er að slægjast á
tunglinu? Fyrir það fyrsta er áætlað
að undir hrjóstrugu yfirborðinu sé
nokkuð af málmum eins og gulli,
járni, magnesíum, áli og títan. Þá
standa vonir til þess að þar sé að
finna umtalsvert magn af sjaldgæf-
um jarðmálmum, sem svo eru nefnd-
ir, en þeir eru notaðir í sífellt meiri
mæli í ýmsum af þeim tækninýj-
ungum sem rutt hafa sér til rúms á
21. öldinni, eins og snjallsímum og
rafknúnum bifreiðum.
Aðgangur að slíkum málmum
skiptir því nú þegar gríðarmiklu
máli, en í dag er horft til þess að
Kína ræður um 85% af framleiðslu
þessara fágætu málma. Kínversk
stjórnvöld hafa notfært sér þá stað-
reynd í nýlegum viðskiptarimmum
sínum við Bandaríkjastjórn.
Nýting þeirra auðlinda sem leyn-
ast á tunglinu gæti því reynst þeim
ríkjum sem þar ná fótfestu mikil bú-
bót. Á sama tíma horfir NASA einn-
ig á næsta skref, því að áætlanir
stofnunarinnar um mannaðar geim-
ferðir til Mars velta að miklu leyti á
því að hægt verði að koma upp bæki-
stöð á tunglinu, en fyrstu skrefin að
því eiga að vera hafin fyrir árið 2028.
Í ljósi þeirra erfiðleika sem fylgja
geimferðum er talið ólíklegt að hægt
verði að koma upp varanlegum
stöðvum á tunglinu, nema auðlindir
þess verði nýttar.
Sitja ekki auðum höndum
Og Bandaríkjamenn eru ekki ein-
ir um hituna, hvorki þegar kemur að
tunglinu né Mars, því Kínverjar
hafa þegar tekið stór skref út í geim-
inn.
Í fyrra náði kínverskt geimfar að
lenda á myrku hlið tunglsins, og var
það í fyrsta sinn sem maðurinn náði
þeim áfanga. Þar um borð var könn-
unarþjarki, en fréttir þá hermdu að
eitt verkefni hans væri að rannsaka
jarðlög tunglsins, meðal annars til
þess að kortleggja hvar auðlindir
væri að finna.
Þá skutu Kínverjar í næstsíðustu
viku nýrri eldflaug á loft, Chang-
zeng 5B, sem á að geta borið könn-
unarför, allt að sex geimfara og vist-
ir á sporbaug um jörðu og lent svo á
ný. Tilraunin þótti velheppnuð og
færa Kínverjum nær geimferðagetu
bæði Bandaríkjamanna og Rússa,
en Kínverjar stefna nú að því að
reisa geimstöð á sporbaug árið 2022
og í framhaldinu er stefnt til bæði
tunglsins og síðar Mars.
Samvinna eða átök?
Kínverjar ætla sér því ekki að
sitja eftir þegar kemur að könnun
tunglsins eða nýtingu auðlinda þess.
Ekki hefur hins vegar komið fram
hvaða augum Kínverjar líta á drög
Bandaríkjamanna að Artemis-
samningunum, en þegar fyrstu
fregnir bárust af þeim mátti skilja
þær sem svo, að Bandaríkjamenn
ætluðu sér eingöngu að ræða við
vinaþjóðir sínar, en skilja helstu
keppinauta sína í geimferðakapp-
hlaupinu, Kínverja og Rússa, eftir.
Tóku Rússar þeim tíðindum mjög
illa og sagði Dímítri Rogostín að ein-
hliða tilraunir Bandaríkjamanna til
að ráðskast með geiminn hlytu að
enda með hörmungum á borð við
innrásirnar í Írak og Afganistan.
Forsvarsmenn NASA báru þær
fréttir hins vegar til baka á föstu-
daginn, sérstaklega hvað varðaði
Rússa. Michael Gold, einn af for-
svarsmönnum Artemis-áætlunar-
innar, sagði að Bandaríkjamenn
gerðu ráð fyrir góðu samstarfi við
Rússa um könnun og nýtingu
tunglsins, en ríkin tvö stefna nú þeg-
ar að samstarfi um byggingu geim-
stöðva sem eiga að gera ferðalög til
tunglsins auðveldari.
Þá sagðist Gold telja að engin
þjóð ætti að geta sett sig upp á móti
þeim meginreglum sem fælust í
Artemis-samningunum. Vísaði hann
þar til Star Trek-sjónvarpsþáttanna,
sem gerast í framtíð þar sem mann-
kynið hefur tekið höndum saman.
„Með Artemis-samningunum von-
umst við til þess að framtíðin verði
líkari Star Trek en Stjörnustríði þar
sem tekið er á þessum álitamálum
áður en þau koma upp.“
Keppt um auðlindir tunglsins
Ný áætlun NASA um samvinnu og nýtingu auðlinda á tunglinu var kynnt fyr-
ir helgina Varanleg bækistöð á tunglinu talin vera stökkpallurinn til Mars
AFP
Út í geim Changzeng 5B-eldflaug Kínverja tekst á loft í næstsíðustu viku.
COVID-19 smitast ekki aðeins á milli
manna þegar þeir hósta og dreifa
þannig sýklum, heldur einnig einfald-
lega við að tala. Bandarísk rannsókn
hefur leitt í ljós að aðeins með því að
mæla fram eina setningu getur smit-
aður einstaklingur skilið eftir dropa-
agnir í lofti sem eru á sveimi lengur
en í tíu mínútur. Grein birtist á mið-
vikudaginn um málið í tímariti banda-
rísku vísindaakademíunnar PNAS.
Samkvæmt rannsókninni gætu
samtöl verið ein helsta smitleið sjúk-
dómsins. Við framkvæmdina var
sýktur einstaklingur látinn endur-
taka setninguna „Stay healthy“ (í.
farðu vel með þig) í 25 sekúndur sam-
fleytt. Leysir var síðan látinn greina
munnvatnsagnirnar sem lágu í loft-
inu og í ljós kom að kórónuveirusmit-
aðir munnvatnsdropar voru að með-
altali í tólf mínútur á sveimi eftir að
einstaklingurinn hafði talað.
Vísindamennirnir ganga út frá því
að með því að tala hátt í eina mínútu
geti manneskja framleitt meira en
1.000 smitberandi dropa. Þeir geti
síðan legið í loftinu í að minnsta kosti
átta mínútur eftir að talað var. Sömu
vísindamenn komust að sögn þýska
blaðsins Welt að þeirri niðurstöðu að
með því að tala lægra færu færri
dropar á flug.
Ef frekari rannsóknir renna stoð-
um undir smithættuna sem felst í töl-
uðu máli gæti það útskýrt að sumu
leyti óútskýrða öra útbreiðslu veir-
unnar hingað til. Sömuleiðis gætu
það verið frekari rök fyrir tilmælum
yfirvalda víða um heim til borgara
sinna um að bera grímu á almanna-
færi, eins og er skylda víðast hvar í
Þýskalandi. Á Íslandi hefur verið
lögð mjög lítil áhersla á slíkar ráð-
stafanir.
AFP
Grímur Samtöl manna á milli geta
verið ein helsta smitleið COVID-19.
Samtöl gætu verið
helsta smitleiðin
Smitberandi
munnvatnsdropar
liggja lengi í loftinu
eftir að fólk talar
Sendiherra Kín-
verja í Ísrael, Du
Wei að nafni,
fannst látinn á
heimili sínu um
helgina í Herz-
liya, rétt utan við
Tel Aviv. Ekkert
fannst á vett-
vangi sem benti
til að andlát hans
hefði borið að með saknæmum
hætti, sagði á vef breska ríkis-
útvarpsins. Ónefndir heimildar-
menn sjónvarpsstöðvarinnar Kes-
het 12 segja Wei hafa dáið í svefni
af náttúrulegum orsökum.
Wei hafði verið sendiherra í land-
inu síðan í febrúar og áður verið
sendiherra Kínverja í Úkraínu.
Hann hafði talað opinskátt gegn
Bandaríkjamönnum sem ásaka Kín-
verja um að hafa valdið kórónu-
veirufaraldrinum.
Kínverski sendiherr-
ann fannst látinn
Du Wei
ÍSRAEL
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL