Morgunblaðið - 18.05.2020, Page 14

Morgunblaðið - 18.05.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir nokkr-um vikumvar vakin athygli á því, að Kínverjar hefðu farið mikinn í samskiptum sín- um við aðrar þjóðir, í þeirri von að þeir gætu sannfært þær um að upphaf heimsfar- aldursins mikla væri ekki kín- verska kommúnistaflokknum að kenna, og jafnvel að kór- ónuveiran sjálf hefði ekki sprottið fyrst upp í Wuhan- borg. Svo mjög bar á þessum þrýstingi, að utanríkismála- deild Evrópusambandsins ákvað að sleppa úr reglulegri skýrslu sinni um áróður ann- arra ríkja að nefna það að Kínverjar stæðu nú í sér- stakri herferð til að dreifa röngum upplýsingum um veiruna. Hafði sú aðgerð raunar þveröfug áhrif, því hún staðfesti einfaldlega hversu langt kínverski komm- únistaflokkurinn væri reiðubúinn að ganga til þess að koma í veg fyrir að réttar upplýsingar kæmust til al- mennings. Enn verra var, að Evrópu- sambandið hafði látið tilleið- ast að taka þátt í þessum leik með Kínverjum, en fregnir bárust af því að kínversk stjórnvöld hefðu hótað því að samskipti þeirra við ESB yrðu á pari við ísköld sam- skipti Bandaríkjamanna og Kínverja ef þessi tiltekna setning, sem var ekki einu sinni harðorð, yrði ekki numin á brott. Sannleikurinn fékk því að víkja fyrir viðskipta- hagsmunum sambandsins. Mögulega væri hægt að líta framhjá þessari yfirsjón sam- bandsins ef hún væri eins- dæmi. Svo er ekki því fyrr í mán- uðinum rituðu sendiherrar ESB og aðildarríkjanna 27 í Kína sérstaka hátíðargrein, þar sem fagna átti því að 45 ár eru liðin frá því að Evrópusam- bandið og Kína tóku upp formleg samskipti. Greinin var ætluð til birtingar í mál- gagni kínverskra stjórnvalda, China Daily, en þar fékkst hún ekki prentuð, nema fjar- lægð væri setning um að kór- ónuveiran hefði átt upptök sín í Kína og dreifst þaðan um heiminn. Setningin var sárasaklaus og einföld staðreynd. Greinin vék í engu að hegðun kín- verskra stjórnvalda í upphafi faraldursins, þar sem þau reyndu að þagga niður í öllum sem vildu vara við veirunni í næstum mánuð eftir að fyrstu tilfellin lágu fyrir, eða því hvernig þau reyndu að sann- færa Alþjóðaheilbrigðisstofn- unina, með góðum árangri, stofnuninni til mikillar minnk- unar, um að veiran gæti ekki smitast milli manna. En þrátt fyrir það mátti greinin ekki standa óbreytt, og Evrópusambandið sam- þykkti í annað sinn á stuttum tíma að setja upp í sig múl í þágu kínverska kommúnista- flokksins. Josep Borrell, ut- anríkismálastjóri sambands- ins, sagði í liðinni viku að það hefðu verið mistök að gefa eftir og að það mundi ekki endurtaka sig. Hversu trúlegt er það? Það, hversu auðveld- lega sambandið hefur, í það minnsta í tvígang á stuttum tíma, vikið frá yfirlýstum gild- um sínum í þágu stundarhags- muna, er mikið áhyggjuefni. Hvers vegna heldur ESB áfram að láta undan þrýstingi Kínverja?} ESB ritskoðar sig aftur Bergþór Ólasonþingmaður átti fyrr í mán- uðinum orðastað við forsætisráð- herra og hvatti hana til að „uppá- leggja ráðherrum sínum það að taka einn snúning á mála- skrá sinni með það í huga að leggja ekki viðbótarálögur á atvinnulífið frá því sem nú er. Nóg er nú samt.“ Forsætisráðherra kaus að skilja ekki athugasemdina og fór í óþarflega mikla vörn. Staðreyndin er þó sú að at- hugasemd þingmannsins á fullan rétt á sér. Það líður ekki svo þing nú orðið hér á landi að fyrirtæki verði ekki fyrir aukn- um kostnaði vegna ýmiskonar aukins eftirlits og fyrir- mæla í lögum og reglum sem hægt væri að komast af án. Og það er fylli- lega réttmæt ábending á tím- um þegar ríkisvaldið er að seil- ast djúpt í vasa skattgreiðenda til að halda atvinnulífinu gang- andi, að rétt sé að huga að því á sama tíma að létta kostnaði af atvinnulífinu eða í það minnsta að auka hann ekki. Um slíka hluti ætti að geta náðst góð samstaða á þingi og engin ástæða fyrir nokkurn mann að grípa til varna fyrir síaukið eftirlit og annað íþyngjandi skrifræði. Allir ættu að sameinast í baráttu gegn auknu eftirliti og skrifræði} Óþarfi að fara í vörn S ú staða er nú uppi að Vinstri grænir hafa komið í veg fyrir framkvæmdir við varnarmannvirki án rökstuðn- ings. Áður hafði forysta sama flokks hrakið sjálfstæðismann úr embætti dómsmálaráðherra, en áratuga hefð er fyrir því að samstarfsflokkar í ríkisstjórn hafa haft for- ræði yfir skipan ráðherraembætta sinna. Eins hafa ráðherrar hingað til haft forræði yfir málum á sínum vegum. Þetta virðist ekki lengur eiga við. Forysta VG sýnist hafa neitunarvald um hverjir skipa ráðherrastóla Sjálfstæðisflokksins og komast upp með að leggja bann við varnar- framkvæmdum þótt þær séu í samræmi við þjóðaröryggisstefnu sem í stjórnarsáttmála er sögð liggja til grundvallar samstarfi flokkanna. Skemmdarverk Vinstri grænna í skjóli sjálfstæðismanna Umfang varnarframkvæmda er talið hlaupa á 12-18 millj- örðum króna, en lítils mótframlags var krafist frá íslenska ríkinu. Hefði tilheyrandi starfafjöldi komið sér vel þar syðra þar sem atvinnuleysi mælist nálægt 30%. Að sögn bæjar- stjóra Reykjanesbæjar hefði í framkvæmdunum falist mikil innspýting fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Ráðuneytin lögðu öll til tillögur að innviðauppbyggingu, en á þessu stigi varð ekkert af mínum hugmyndum. Það er í raun ekkert annað um það að segja, segir utanríkisráðherra. Að sögn formanns utanríkismálanefndar kallar afstaða Vinstri grænna á rökstuðning. Það er ábyrgðarhluti ef menn ætla að hverfa frá þjóðaröryggisstefnunni með þessum hætti og hunsa þannig mögulegar þarfir í varnarsamstarfi okkar, segir Sigríður Á. Andersen. Forsætisráðherra kveðst mótfallin hernaðaruppbyggingu og sagði: Mér finnst óviðeigandi að blanda aukinni hernaðaruppbyggingu inn í efnahagsaðgerðir stjórnvalda. Þessi afstaða hefur ekki verið rök- studd. Virðist ráðherra telja nægja að skipta út orðinu varnarframkvæmdir fyrir orðið hern- aðaruppbygging til að skýra kenjar og kreddur VG gegn nauðsynlegri uppbyggingu varna og borgaralegra innviða í landinu. Málið í sögulegu ljósi Margir muna gagnrýni í leiðara þessa blaðs á Kristján Eldjárn, forseta Íslands, fyrir að fela Lúðvík Jósepssyni umboð til stjórnarmyndunar 1978. Mikilvægt þótti einnig að gæta að embætti dómsmálaráðherra, yfirmanns lögreglu, í ljósi eldri flokkskenninga um valdbeitingu. Nú hefur flokkur sem í beinan flokkslegg er kominn af Komm- únistaflokknum með forvera í Alþýðubandalagi og Sósíal- istaflokki stöðvað framkvæmdir á sviði varnarmála gegn eindregnum mótmælum Sigríðar Á. Andersen formanns ut- anríkisnefndar sem kallar eftir skýringum. Já, þeirrar sömu Sigríðar Á. Andersen og forysta Sjálfstæðisflokksins sýnist möglunarlaust hafa látið víkja úr embætti dómsmálaráð- herra að kröfu forystu VG. Ýmsir hljóta að spyrja þessa dagana hvort ekki sé það manntak í Sjálfstæðisflokknum sem dugi til að hrinda af sér þessari ráðstjórn VG á flokkn- um. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi norður. olafurisl@althingi.is Ólafur Ísleifsson Pistill Spurningar vakna um stöðu Sjálfstæðisflokksins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Miklar breytingar hafa orð-ið á sölu áfengis á síðustuvikum í kjölfar kór-ónuveirufaraldursins. Samkomubann og lokun landamæra hafa breytt neyslu og hegðun lands- manna. Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að sala hefði aukist í Vínbúð- unum um tæp 28% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Á sama tíma dróst sala í komuverslun Fríhafnarinnar saman um 98%. Þegar horft er til veitingamark- aðarins er óhætt að tala um hrun. Mikill meirihluti veitinga- og skemmtistaða hefur verið lokaður og stórir birgjar hafa þurft að taka á móti endursendingum áfengis til að styðja rekstur staðanna. Áætla má að í venjulegu árferði fari um fjórðungur af áfengissölu fram á veitingamarkaði. Tilfærsla á markaðinum Í samtölum við forsvarsmenn tveggja stærstu birgjanna, Ölgerð- arinnar og CCEP, kemur fram að sal- an hafi vissulega hrunið á veitinga- markaði og í Fríhöfninni en bjartari tímar séu fram undan. „Í heild sinni og frá samkomu- banni má segja að um algjört hrun sé að ræða. Það má áætla um 85-90% samdrátt á þessu tímabili. Við höfum verið að sjá ákveðinn hluta veit- ingamarkaðar koma eitthvað til baka en þetta er ennþá mjög lítið til samanburðar við fyrra ár. Inni í þessu eru hótel en þau hafa verið að kaupa töluvert af áfengi en það er auðvitað lítið að fara þangað í því ástandi sem nú ríkir,“ segir Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri Ölgerðarinnar. Undir þetta tekur Áki Sveins- son, markaðsstjóri áfengra drykkja hjá CCEP á Íslandi. „Bjórsala er að- eins undir í ár ef við berum saman t.d. mars og apríl í ár miðað við sömu mánuði í fyrra en áhrifin eru enn nei- kvæðari ef við skoðum sölu á léttu og sterku víni. Áfengissala í ÁTVR hefur vissulega tekið ákveðinn kipp en á móti vantar alveg söluna í Fríhöfninni og svo hefur salan minnkað mikið og jafnvel hrunið á veitingamarkaði. Það er alveg ljóst að vöntun ferðamanna hefur líka töluverð neikvæð áhrif á söluna, sérstaklega á veitingamark- aði,“ segir hann. „Heilt yfir er um ákveðna til- færslu að ræða, áður keypti fólk áfengi á veitingastöðum og í Fríhöfn- inni en vegna samkomubanns og sótt- varnaraðgerða hefur salan færst til Vínbúðanna. Við sjáum klárlega aukinn áhuga á ákveðnum vörum, t.d. hefur sala á kassavíni aukist töluvert sem og á íslenskum bjór. Þegar frá líður munum við örugglega sjá enn meiri aukningu í sölu á ódýrari kostum en það sáum við t.d. í fjármálahruninu þegar neytendur leituðu í gæði á góðu verði,“ segir Áki ennfremur. Landið tekið að rísa á ný Þeir segja að erfitt sé að spá hvernig staðan verði þegar árið verð- ur gert upp. Ljóst er þó að sam- dráttur verður í sölu. „Við höfum séð að salan er aðeins að koma til baka núna síðustu vikur en hægt. Barir og stórir skemmtistaðir selja auðvitað töluvert af áfengi og enn er mikil óvissa um það hvernig þeir munu starfa. Þá má einnig minnast á að það er óvíst hversu mikið verður um viðburði á árinu en þegar er búið að aflýsa mörgum stórum viðburðum. Að teknu tilliti til þessa og mikillar fækkunar í komum ferðamanna er ljóst að það verður samdráttur í sölu áfengis á árinu,“ segir Gunnar hjá Öl- gerðinni. Áki segir að jákvætt skref hafi verið stigið þegar tilkynnt var í síð- ustu viku að opna mætti bari og skemmtistaði 25. maí með takmörk- unum. Óvíst sé þó hver efnahagsleg áhrif síðustu vikna verði og hversu hratt ferðamannaiðnaðurinn taki við sér. „Við erum þó ágætlega brött, byrjað er að opna veitingastaði aftur og maímánuður fer vel af stað í sölu í ÁTVR.“ Samdráttur í áfengis- sölu allt að 90 prósent Þegar tölur fóru að birtast um aukna sölu í Vínbúðunum eftir að kórónu- veirufaraldurinn og samkomubann skall á fóru margir á flug og lýstu áhyggjum af aukinni áfengisneyslu landsmanna. Sérfræðingar á markaði taka ekki undir þetta og telja raunar að neyslan hafi minnkað frekar en hitt. Þannig geti 49% aukning á sölu á rauðvíni í Vínbúðunum í apríl ein- faldlega verið til marks um hversu mikið Íslendingar kaupa af léttvíni í Fríhöfninni. „Við höfum skoðað þetta vel og þegar við höfum tekið tillit söluhruns á hótel- og veitingamarkaði þá sjáum við að áfengissala er minni í ár en í fyrra. Við höfum líka reynt að meta neysluna hjá Íslendingum. Það vantar auðvitað erlenda ferðamenn en á móti eru Íslendingar ekki að ferðast til útlanda. Við metum það sem svo að neysla Íslendinga sé minni en í fyrra,“ segir Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri Ölgerðarinnar. Neyslan hefur minnkað STAÐAN Á MARKAÐINUM Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Skál Hrun hefur orðið í áfengissölu á veitingastöðum á liðnum vikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.