Morgunblaðið - 18.05.2020, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Opið mán.-fös. 10-18 |
Við sérsmíðum gluggatjöld
sem passa fullkomlega fyrir þig og þitt heimili
Z-Brautir og gluggatjöld
Allt fyrir
gluggana á
einum stað
Íslensk
framleiðsla
Íbókinni Hreyfing rauð oggræn – saga VG 1999 til2019 er sögð saga hreyfingar„sem umbreyttist frá því að
vera lítill, áberandi andófsflokkur í
að verða sá næststærsti á Alþingi
og leiðandi í ríkisstjórn,“ segir á
vefsíðu VG. Sagnfræðingurinn Pét-
ur Hrafn Árnason skráði söguna og
segist hann hafa fengið „fullt frelsi
við ritun og efnisöflun, þ.m.t. óheft
aðgengi að fundargerðum og öðr-
um skjölum úr starfi VG, stjórnar
og þingflokks“. Þá segir að í sög-
unni sé ekkert dregið undan og
hún sé „á köflum átakasaga“ – þar
er ekki orðum aukið.
Bókin (347 síður) kom út í stóru
broti og ríkulega myndskreytt í
desember
2019. Er
glæsilega að
útgáfunni
staðið og ekk-
ert til sparað.
Bókin skiptist
í átta megin-
kafla með
mörgum
undirköflum.
Þá fylgja viðaukar með úrslitum
þing- og sveitarstjórnarkosninga,
listum yfir kjörna fulltrúa VG og
stjórnir hreyfingarinnar auk þing-
málaskrár VG. Í bókinni eru heim-
ilda- og nafnaskrár auk heilla-
óskalista. Á milli kafla eru litaðar
síður, rauðar og grænar, á sumum
þeirra má kynnast „röddum úr
VG“, það er sjónarmiðum ein-
staklinga sem starfað hafa í flokkn-
um og sumir fallið fyrir borð.
Lýsing á flokksstarfinu samrým-
ist ekki alltaf litfagurri umgjörð
bókarinnar. Verst er ástandið þeg-
ar „hrein vinstristjórn“ Jóhönnu
Sigurðardóttur situr og flokks-
formaðurinn Steingrímur J. Sigfús-
son er fjármálaráðherra. Glímt er
við mörg stórmál en þyngst vega
ESB-aðildarumsóknin og Icesave-
málið.
„Á fundi 13. apríl [2011] var,
samkvæmt tillögu Katrínar Jak-
obsdóttur, ákveðið að fá vinnu-
staðasálfræðing til að aðstoða hóp-
inn [þingflokk VG] við að bæta
andrúmsloftið. En því var „tekið
misvel í þingflokknum og óttaðist
ég að viðkomandi hafi sjálfur þurft
að leita sér aðstoðar eftir að hafa
kynnst þingflokki VG,“ sagði Katr-
ín Jakobsdóttir við bókarhöfund í
maí 2018 (s. 232). Og enn hafði for-
maður VG þessi orð um ástandið:
„Þetta líktist einna helst langri
spennusenu úr Indiana Jones-
mynd þar sem einn rúllandi steinn-
inn á eftir öðrum sótti að manni“.
VG-trúnaðarmönnum er tamt að
lýsa sér sem fórnarlömbum skoð-
ana eða stjórnmálaafla sem þeir
verði nauðbeygðir að lúta til að ná
völdum. Við lestur bókarinnar
vaknar oft spurningin: Til hvers
var barist? Af hverju að halda í
kreddur ef þeim er alltaf fórnað
þegar völd eru innan seilingar?
Margir heltast úr lestinni eins og
til dæmis Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir sem varð um tíma þing-
flokksformaður VG en vék síðan
nauðbeygð fyrir Árna Þór Sigurðs-
syni sem tók sæti hennar á meðan
hún var í fæðingarorlofi. Stein-
grímur J. sagði henni við komuna
úr orlofinu í apríl 2011 að Árni Þór
gæti ekki hugsað sér að víkja úr
formannsstólnum en hún ætti að
segja út á við að hún vildi heldur
sinna börnunum betur! Um þetta
segir bókarhöfundur: „Þessi gjörn-
ingur [að fella Guðfríði] vakti mikil
viðbrögð bæði innan flokks og í
samfélaginu og fannst mörgum
súrt að kyngja því að flokkur sem
kenndi sig við kvenfrelsi skyldi
ekki hafa í heiðri anda fæðingar-
orlofslaganna.“ (S. 231.)
Guðfríður Lilja hætti afskiptum
af stjórnmálum í árslok 2012 en í
tölvubréfi til bókarhöfundar í mars
2019 segir hún „en mér finnst við
hafa gert eins og við gátum til að
standa okkar plikt.“ (S. 233.) Í jan-
úar 2013 varð Jón Bjarnason,
fyrrv. ráðherra VG, utanflokka.
Hann birtir nú greinar til að sanna
að hann hafi staðið sína plikt í
flokknum með því að spilla fyrir
ESB-aðildinni með afstöðu sinni í
makrílmálinu. Hjörleifur Gutt-
ormsson, einn þeirra sem réðu úr-
slitum um stofnun VG, sagði sig úr
flokknum 8. janúar 2013 vegna
ESB-aðildarumsóknarinnar frá
2009 og leyfa til olíuleitar á Dreka-
svæðinu.
Hér hafa verið nefnd þrjú grund-
vallarmál sem höfð voru að engu af
forystu VG á þessum árum: kven-
frelsi, ESB-aðild og olíuleit. Öllu
var ýtt til hliðar til að geta setið
undir forsæti Jóhönnu sem kallaði
fólk fyrir sig og hótaði til að halda
stjórnarsamstarfinu á lífi.
Sagan af því hvernig samstarf
fjandflokkanna Samfylkingar og
VG hófst er ekki síður forvitnileg
en greining á ástæðum fylgishruns
flokkanna í kosningunum 2013.
Haustið eftir hrun bankanna á
meðan Samfylkingin sat í stjórn
með Sjálfstæðisflokknum undir for-
sæti Geirs H. Haarde hófu Össur
Skarphéðinsson, ráðherra Samfylk-
ingarinnar, og Ögmundur Jónas-
son, þingmaður VG, laumuspil.
Þeim er í bókinni lýst sem öðrum
öxlinum í stjórn Jóhönnu og Stein-
gríms J., minnihlutastjórninni sem
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, skipaði 1. febrúar 2009
enda taldi hann að Jóhanna væri
„eini stjórnmálamaðurinn sem gæti
skapað ró í samfélaginu“.
Þessi minnihlutastjórn tveggja
flokka þurfti þriðja flokkinn til að
verjast falli og tók Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson, nýkjörinn for-
maður Framsóknarflokksins, af
skarið um að þingmenn framsóknar
skyldu gera það. Hann sat ekki
sjálfur á þingi. Steingrími J. var
falið að ræða við Sigmund Davíð
um hvernig hann vildi standa að
samstarfinu „ætti að gera aukalega
samstarfsyfirlýsingu milli flokk-
anna þriggja?“ spurði Steingrímur
J. og sagðist Sigmundur Davíð „til
í að skoða það og var þá ráðist í að
semja uppkast að henni. Þegar
tveir dagar voru eftir af viðræðun-
um var þetta orðið að einni blað-
síðu í nokkrum tölusettum liðum,
þ.e. að oddvitar stjórnarinnar
myndu funda vikulega með Sig-
mundi, myndu senda framsókn
stjórnarfrumvörp fyrirfram til
skoðunar á sama tíma og eigin
þingflokkum, Sigmundur fengi að
fylgjast með samstarfinu við AGS
[Alþjóðagjaldeyrissjóðinn] og Ice-
save-viðræðum, komið væri á
stjórnlagaþingi til að endurskoða
stjórnarskrána og tekið á skulda-
vanda heimila og fyrirtækja.
Daginn fyrir ríkisráðsfundinn á
Bessastöðum, þar sem ný stjórn
tæki formlega við völdum, þ.e.
laugardaginn 31. janúar, hringdi
Steingrímur í Sigmund til að at-
huga hvort ekki ætti að handsala
þetta samkomulag. Þá hafði honum
hins vegar snúist hugur og vildi
ekki lengur neina yfirlýsingu og
ekkert undirrita …“ (s. 165 til 166).
Nú voru góð ráð dýr en fyrir
snarræði Steingríms J. og kynn-
ingu hans á samþykki þingflokks
framsóknarmanna að kvöldi laug-
ardags 31. janúar 2009 tókst að
bjarga stjórnarmynduninni. Þannig
hófst rúmlega fjögurra ára sam-
starfsferill vinstri flokkanna.
Fyrsta þingverkefnið í skjóli fram-
sóknar Sigmundar Davíðs var að
bylta yfirstjórn Seðlabanka Ís-
lands. Síðan leiddi Valgerður
Sverrisdóttir, fráfarandi formaður
Framsóknarflokksins, án árangurs
tillögu Jóhönnu um stjórnar-
skrárbreytingu. Jafnframt var tím-
inn notaður til að leggja á ráðin um
ESB-aðildarumsóknina sem sam-
þykkt var að loknum kosningum
2013 þvert á loforð Steingríms J.,
formanns VG.
Í maí 2018 leggur Steingrímur J.
mat á stjórnarmyndunina í lok jan-
úar í samtali við bókarhöfund og
segir:
„Þetta var nú dæmigerður Sig-
mundur Davíð, þá var að renna upp
fyrir honum að með því [handsal-
inu] tæki hann meiri ábyrgð og
gæti ekki haft opinn glugga á bak
við sig eins og honum er tamt. Ég
spurði hvort hann vildi ekki einu
sinni koma til vikulegra funda með
okkur og hann svaraði, „jú við get-
um svo sem haldið þá.“ (S.166.)
Þetta sögulega dæmi á enn er-
indi í íslenskar stjórnmálaumræður
eins og margt fleira í bókinni. Sumt
efnið er ekki annað en þurrar upp-
talningar, annað er safaríkara og
varpar birtu í VG-skúmaskot sem
vert er að skoða við mat á sam-
tímasögunni. Það er helsti styrkur
bókarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Átök Aðildarumsókn að ESB var umdeild innan Vinstri grænna og nokkrir kjósenda VG mættu á Austurvöll til að
brýna fyrir þingmönnum að hafna aðildarviðræðum þegar atkvæðagreiðsla um umsóknina stóð yfir í ágúst 2009.
Stjórnmálasaga
Hreyfing rauð og græn bbbbn
Eftir Pétur Hrafn Árnason,
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
gefur út, Rvk. 2019. 347 bls.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR
Ljósi brugðið í VG-skúmaskot
Félagið Íslensk grafík fagnar nú 50
ára afmæli og í tilefni þess var á
laugardag opnuð sýning á verkum
46 félagsmanna í Norræna húsinu.
Sýningarstjóri er Birta Guðjóns-
dóttir. Sýningin stendur til 9. ágúst
og er aðgangur ókeypis. Opið er
alla daga nema mánudaga.
Á meðal listaverka á sýningunni
eru verk eftir heiðursfélaga Ís-
lenskrar grafíkur. Verkin eru unn-
in með ýmsum aðferðum grafíklist-
arinnar og er sýningunni ætlað að
fagna starfsemi félagsins og þeirri
breidd í aðferðum og tækni sem fé-
lagsmenn hafa unnið með á löngum
og farsælum starfstíma félagsins.
Norræna húsið fylgir tilmælum
um 50 manna fjöldatakmörkun og
biður fólk að virða tveggja metra
regluna.
Á efri hæð hússins verður hægt
að prófa aðferðir grafíklistamanna
í ókeypis vinnustofu og kaupa góð-
ar veitingar. Þá er minnt á að í
artóteki, listlánadeild bókasafns
Norræna hússins, er með lánþega-
skírteini hægt að fá lánuð allt að
þrjú grafíkverk í þrjá mánuði en í
safninu er úrval grafíkverka eftir
norræna listamenn.
Afmælissýning Íslenskrar grafíkur
Fjölbreytileg Á sýningunni í Norræna
húsinu er fjöldi verka eftir félagsmenn.