Morgunblaðið - 18.05.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
KOMIN AFTUR Í BÍÓ
TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN !
GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI.
Eggert Benedikt Guðmundsson, for-
stöðumaður Grænvangs og formað-
ur Karlakórs Reykjavíkur, mælir
með verkum til að njóta innan
veggja heimilisins á tímum kórónu-
veirufaraldurs.
„Páll Pampichler Pálsson varð 92
ára á laugardaginn. Hann var mest-
ur áhrifamaður í íslensku tónlistar-
lífi þegar ég var
að alast upp. Ég
var svo heppinn
að hitta hann fyr-
ir tveimur árum
þegar Karlakór
Reykjavíkur
heimsótti hann í
Graz í Austurríki
á níræðisafmæl-
inu og var það
einstök upplifun.
Nú er nýútkomin
bókin Ljáðu mér vængi eftir Moniku
Gschiel í íslenskri þýðingu Sigurðar
I. Snorrasonar, Rutar Ingólfsdóttur
o.fl. Bókin er minningabrot úr lífi
Páls og ég er að smjatta á henni
þessa dagana.
Borgarleikhúsið hefur verið með
öfluga streymisdagskrá allt kófið.
Að öllu öðru ólöstuðu verð ég að
minnast á gullmolann Jesú litla. Ég
sá þetta verk á sínum tíma og hafði
ótrúlega gaman af því að endurnýja
kynnin við þennan snilldarlega
gáskaleik. Bubbi Morthens hefur
haldið nokkra tónleika, aleinn á
sviðinu í beinni, og leikarar hússins
hafa stigið fram og sungið lög úr
leikritum og söngleikjum. Rík-
harður þriðji var þarna líka í flottri
upptöku Borgarholtsskóla af verð-
launasýningunni í leikstjórn Bryn-
hildar Guðjónsdóttur. Þetta er verð-
mæt dagskrá sem enn er hægt að
skoða á vef leikhússins.
Þráinn Árni Baldvinsson, Skál-
maldar-virtúósó, heldur úti fésbók-
arhópnum Vinylvaktin. Hann hefur
gefið manni innblástur til að grafa
upp gamlar vínylplötur, sem maður
var búinn að gleyma. Trilogy með
Emerson, Lake & Palmer er ein
þeirra og út af fyrir sig nægileg
réttlæting fyrir stofnun hópsins.
Þráinn Árni hefur líka verið með lif-
andi útsendingar frá því þegar hann
flettir í gegnum sitt safn og fjallar
um hverja plötu af ástríki og innsæi.
Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.
Margt fleira áhugavert hefur á
fjörur rekið, en ég nefni þetta
þrennt af handahófi.“
Mælt með í kófinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Rokkari Þráinn Árni Baldvinsson á
tónleikum með Skálmöld í Hofi.
Páll, Jesús og
plötusafn Þráins
Morgunblaðið/Kristinn
Gullmoli Trúðarnir Barbara og
Úlfar fluttu Jesú litla á sínum tíma.
Eggert Benedikt
Guðmundsson
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Óvenjulegir tímar kalla á óvenju-
legar lausnir. Þar sem ekki er mögu-
legt að bjóða nema örfáum gestum í
sal að hlusta á próftónleika nemenda
MÍT þetta vor,
bregður skólinn á
það ráð að
streyma öllum
tónleikunum til
þess að fleiri getið
notið þeirra,“ seg-
ir Freyja Gunn-
laugsdóttir,
aðstoðarskóla-
meistari Mennta-
skóla í tónlist
(MÍT).
Allar nánari upplýsingar um tíma-
setningar tónleikanna og vefhlekki
til áhorfs má nálgast á vefnum
menton.is. Frá 15. maí til 27. maí
verður samtals boðið upp á 24 tón-
leika, þar af 13 í rytmísku deildinni
og 11 í klassísku deildinni. Þar koma
fram nemendur sem eru að útskrif-
ast með stúdentspróf, burtfararpróf
eða framhaldspróf frá Menntaskóla í
tónlist nú í vor.
Stór áfangi í lífi nemenda
„Lengi vel vissum við ekki hvernig
við gætum klárað önnina og út-
skrifað nemendur,“ segir Freyja og
bendir á að í venjulegu árferði séu
tónleikar útskriftarnemenda öllum
opnir og haldnir í sölum víðs vegar
um bæinn. „Tveggja metra reglan
þýðir að aðeins er pláss fyrir samtals
16 hverju sinni á tónleikum í klass-
ísku deildinni og 30 í rytmísku deild-
inni,“ segir Freyja og bendir á að það
séu töluvert færri áhorfendur en í
meðalári. Klassísku tónleikarnir fara
fram í sal skólans í Skipholti 33 en
þeir rytmísku í sal skólans í Rauða-
gerði 27.
„Okkur langaði að útfæra tón-
leikana þannig að sem flestir gætu
engu að síður hlustað og þá lá beint
við að streyma tónleikunum. Með
þessum hætti fá nemendurnir líka
góða faglega upptöku af tónleik-
unum sem þeir geta átt og notað
seinna,“ segir Freyja og tekur fram
að hún viti til þess að útskriftarnem-
endur séu að skipuleggja streymis-
partí fyrir vini sína og ættingja.
„Lokatónleikar úr skólanum er
stór áfangi í lífi nemenda og í flestum
tilvikum eru þetta fyrstu opinberu
heilu tónleikarnir sem þau halda.
Það liggur ótrúlega mikil vinna að
baki þessum tónleikum,“ segir
Freyja, en oftast nær eru tónleikarn-
ir um 60 mínútur að lengd.
Eru reynslunni ríkari
Að sögn Freyju spannar efni tón-
leikanna 24 alla tónlistarsöguna. „En
nemendur setja saman efnisskrá
sem endurspeglar þeirra áhuga og
styrkleika. Í skólanum er mjög breitt
námsframboð af tónlistargreinum á
ólíkum sviðum tónlistar og þau geta
mótað námið að miklu leyti eftir sínu
áhugasviði og hæfileikum. Á tónleik-
unum koma fram fjölbreyttir kamm-
erhópar og hljómsveitir og í rytm-
ísku deildinni er flutt mikið af
frumsömdu efni.“
Að sögn Freyju hafði samkomu-
bannið þau áhrif að öll starfsemi
skólans hafi með mjög stuttum fyrir-
vara færst yfir á netið. „Nemendur
fengu hljóðfæratíma og bóklega tíma
í fjarkennslu,“ segir Freyja og tekur
fram að allt hafi þetta gengið vonum
framar. „Langflestir nemendurnir
hafa nýtt tímann alveg ótrúlega vel
til tónlistariðkunar og æfinga. Það
var gaman að sjá hvað margir nem-
endur hafa tekið miklum framförum
í samkomubanninu,“ segir Freyja.
Spurð hvort reynsla síðustu vikna
muni nýtast í framhaldinu svarar
Freyja: „Ég held að við höfum öll
lært mjög mikið af þessari reynslu.
Ég veit að nemendur voru miklu
meira að taka sjálfa sig upp og hlusta
á upptökurnar með gagnrýnu hug-
arfari. Ég veit líka að margir fóru að
æfa sig meira en þeir höfðu nokkru
sinni áður gert. Þannig tileinkuðu
margir nemendur sér sjálfstæðari
vinnubrögð. Við kennaranir lærðum
að fara aðrar leiðir og hugsa hlutina
upp á nýtt, þótt auðvitað hafi verið
krefjandi að kenna tónlist í gegnum
fjarfundabúnað,“ segir Freyja og
tekur fram að það hafi verið gaman
að upplifa hversu samhentir kenn-
arar og nemendur voru í því að finna
góðar lausnir. „Það hefur verið
magnað að finna samhuginn í skól-
anum þar sem allir voru innstilltir á
að komast sem best í gegnum þetta
tímabil saman.“
Streymi Útskriftarnemendur Menntaskólans í tónlist virða tveggja metra
regluna við Kjarvalsstaði. Vegna hennar er tónleikum þeirra streymt í ár.
„Óvenjulegar lausnir“
Freyja
Gunnlaugsdóttir
Próftónleikum nemenda MÍT streymt í ár vegna sam-
komutakmarkana Nemendur skólans nýttu tímann vel