Morgunblaðið - 08.05.2020, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
R
akel var búin að leita lengi að íbúð þegar hún hnaut
um þessa. Hún segir að það hafi ekki verið auðvelt,
þar sem hún þurfti herbergi fyrir fjögur börn sín. Hún
var einhleyp þegar hún keypti íbúðina en nú er hún í
ástarsambandi með Andra Gunnarssyni lögmanni,
sem kallar Rakel stundum Gyðu Sól þegar hún er að vesenast inni
á heimilinu. Óþolinmæðin og æsingurinn í henni þykir minna á
hina einu sönnu Gyðu Sól sem gerði garðinn frægan í Fóst-
bræðrum. Þegar Rakel er spurð að því hvers vegna hún féll fyrir
þessari íbúð nefnir hún æðislegar svalir, útsýni út á sjó og fleira.
„Ég var búin að leita lengi að íbúð þegar ég fann loksins
þennan gullmola. Verandi með milljón börn þá þurfa allir sitt
pláss og það var erfitt að finna íbúð í hverfinu sem var svona
stór. Það sem heillaði mig mest við hana er skipulagið og
hversu björt hún er, fyrir utan náttúrulega þaksvalirnar, sem
eru svo geggjaðar,“ segir Rakel.
Spurð hvort það hafi þurft að breyta miklu áður en hún flutti
inn með börnin segir hún svo ekki vera.
„Ég breytti voðalega litlu, fannst það algjör snilld að finna
íbúð sem ég nánast gat flutt inn í án þess að mála.“
Rakel hefur rekið Snúruna í sex ár, en hún er viðskiptafræð-
ingur að mennt. Heimili hennar ber þess merki að hún hefur
gaman af því að raða saman hlutum, húsgögnum og öðru sem
fegrar heimilið. Þegar hún er spurð hvernig hún vilji hafa sitt
eigið heimili kemur í ljós að hún setur fagurfræði alltaf ofar
þægindum.
„Heimili fyrir mér er fyrst og fremst fólkið sem er þar, en
þar fyrir utan elska að hafa fallega hluti í kringum mig og þægi-
lega. Alltaf myndi ég samt velja fagurfræðina fram yfir þæg-
indin. Mér finnst ótrúlega gaman að safna fallegum málverkum
í bland við húsgögn og hafa liti inn á heimilinu. Uppáhalds-
liturinn minn er blár og það sést bersýnilega á heimilinu mínu,“
segir hún og hlær.
Hefur heimilisstíllinn breyst mikið síðustu ár?
„Ég er sjúklega nýjungagjörn og fljót að fá leið á hlutunum,
en stíllinn hefur samt sem áður ekki mikið breyst. Ég hef alltaf
verið litaglöð en það er fullt af nýjum hlutum inni á því. Ég er
dugleg að skipta bara út, þoli ekki að hafa mikið af hlutum úti
um allt,“ segir hún.
Fyrir hverju fellur þú alltaf þegar kemur að heimilinu?
„Ég elska fallega blómavasa, svona vasa sem þurfa ekki einu
sinni að vera blóm í til þess að hann sé listaverk. Svo er ég
svakalega svag fyrir fallegum stólum.“
Hvað finnst þér gera heimili heimilislegt?
Að hafa plöntur. Það gerir svo mikið af hafa grænt í kringum
sig. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir til þess að drepa blómin
mín hafa þau einhvern veginn haldið lífi, en það er engan veginn
mér að þakka. Ég hef krakkana grunaða um að lauma að þeim
vatni þegar þær eru alveg að gefa upp öndina.“
Hver er þinn staður á heimilinu?
„Svefnherbergið er einn af uppáhaldsstöðum mínum í tilraun
til þess að fela mig frá börnunum. Annars er stofan og borð-
stofan hjarta heimilisins, þar vilja allir vera saman í hrúgu.“
Er eitthvað sem þú myndir vilja hafa öðruvísi?
„Ég væri alveg til í að hafa aðeins fleiri herbergi, alveg týp-
ískt að um leið og síðasta ljósið var fest upp þurfum við að kom-
ast í stærra húsnæði og erum því á fullu að leita,“ segir hún.
Hvað dreymir þig um að eignast inn á heimilið?
„Mig er búið að dreyma um það lengi að eignast shell-stól eft-
ir Hans Wegner.“
Ertu handlagin?
„Kærastinn minn kallar mig Gyðu Sól. Veit ekki hvort að það
kallast handlagni eða óþolinmæði. Þegar ég er búin að ákveða
eitthvað vil ég bara klára það strax og nenni ekki að bíða eftir
að einhver komi og hengi eitthvað upp fyrir mig. Ég þori varla
að segja frá því að ég á vinnubuxur og verkfæratösku en
dreymir um að eignast verkfærabelti.“
Hvernig finnst þér íslensk heimili vera að breytast?
„Þau eru mikið farin frá því að hafa allt svart, hvítt og
grátt og fólk farið að leyfa sér að hafa liti inn á heimilinu.
Einnig eru blóm og pottaplöntur mikið í tísku. Ég er líka svo
ánægð með það hvað fólk er farið að þora að vera með öðru-
vísi heimili, fögnum því í hvert skipti sem fólk pantar sófa hjá
okkur í lit.“
Ef þú byggir ekki hér, hvar byggir þú þá?
„Mig dreymir um að búa í Kaupmannahöfn og Vín. Mig hefur
alltaf langað til þess að læra þýsku almennilega, en ég átti
ógleymanlegt sumar í Vín þegar ég var 19 ára.“
Blái liturinn er í miklu uppáhaldi hjá Rakel. Hér má sjá blá-
an flaueslbekk með flauelspúðum sem fara vel við lista-
verkið eftir Kristinn Má Pálmason. Veggljósið heitir New
Wave og nýtur mikilla vinsælda hjá íslensku þjóðinni.
Á stóru heimili þar sem fjögur
börn ala manninn ásamt móður
sinni þarf að vera pláss fyrir alla.
Rakel skipti stofunni upp í tvennt
og hefur sjónvarpið öðru megin
en borðstofuna fyrir aftan.
Speglarnir undir stiganum eru frá Reflections en fyrir-
tækið, sem er danskt, sérhæfir sig í fallegum speglum og
vörum úr kristal sem setja svip sinn á hvert einasta heimili.