Morgunblaðið - 08.05.2020, Qupperneq 24
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ömmu. Ég hef fremur litla þörf fyrir að breyta innanstokks en
get þó lagt mikið á mig ef ég fell fyrir fallegum munum á er-
lendum antíkmörkuðum og borið þá fleiri kíló í fanginu heim.“
Aðspurð hvort hún sé í draumahúsinu segir Helga það tví-
mælalaust.
„Ég setti út í veröldina draum um fallegt heimili með bjartri
vinnustofu og draumurinn rættist. En ég er alveg opin fyrir
einhverju enn flottara ef það býðst. Toppurinn á draumnum eru
dyrnar úr vinnustofunni út á veröndina. Á sumrin set ég því
trönurnar út og sletti á striga á meðan ég svolgra kaldan svala-
drykk í sólinni.“
Helga segir hefðbundinn dag byrja þannig að hún kveiki á
kertum, allan ársins hring.
„Það er nokkurs konar tákn um að heimili mitt er heilagt
musteri og þar vil ég að gleði, heiðarleiki og friður ríki.
Persónulegur stíll hefur gildi fyrir mig og fallegir og sérstæðir
listmunir. Snyrtimennska skapar ró og jafnvægi í sálartetrinu.
Ég hef kaffi í boði fyrir gesti og kruðerí með því sem er oftast
dökkt súkkulaði. Ég vil að gestum líði vel og finni sig velkomna.
Innilegt sálarspjall við eldhúsborðið er toppurinn á félagslífi
mínu.“
Ákvað að vilja frekar eiga en leigja
Áttu ráð fyrir yngra fólk sem langar að fjárfesta í eign?
„Ég mæli með fyrir alla að skoða hverjar langanir og þarfir
þeirra eru og hlusta vel á svörin sín. Það hafa ekki allir sömu
gildin. Hvaða möguleikar eru í boði? Á sínum tíma sá ég að ef
ég setti stórar upphæðir í leigu gæti ég ef til vill aldrei fjárfest í
heimili og því öryggi og frelsi sem ég tengdi því. Ég mæli með
að fólk skoði hvort það geti sleppt því að vera á bíl, að endur-
nýja tölvur og síma og margt af því sem nútíminn býður upp á.
Þegar ég keypti mína fyrstu íbúð voru hvorki farsímar né tölv-
ur í boði, engar netverslanir, sjaldan ferðast utan og kostnaður
við að reka sig á margan hátt minni.“
Helga rekur frumkvöðulshugmynd sína til bankahrunsins á
Íslandi árið 2008, en þá var hún stödd á námskeiði hjá Neale
Donald Walsch, höfundi metsölubókanna Conversations With
God.
„Þar heyrði ég fyrst hugmyndir búddamunksins Thich Nhat
Hanh um að ef við brosum fimm sinnum á dag, án tilefnis, þá
breytist líf okkar á 90 dögum. Ég ákvað þá að framkvæma hug-
mynd sem ég hafði sett ofan í skúffu. Hugmyndina um Smiler,
hljóðfæri gleðinnar, og sá brosfræjum í íslenskt landslag. Smi-
ler er hálsmen með mikið notagildi. Hann minnir á að við erum
okkar eigin skaparar með hugsunum, orðum og athöfnum og er
þannig séð andlegur gripur ótengdur trúarbrögðum. Hann
framkallar líka bros þegar við stingum honum á milli munnvik-
anna. Fjöldi rannsókna sýnir að jafnvel þykjustubros hristir
upp í vellíðunarhormónum og þar með ónæmiskerfinu.
Þetta er auðveld leið til að bæta heilsu og hamingju og ekki
veitir af nú um þessar mundir.
Ég held námskeið og fyrirlestra um hugmyndafræði Smiler
og er að endurútgefa bókina „Smiler getur öllu breytt“ á ís-
lensku og ensku.
Ef ég gæti veifað töfrasprota myndi ég óska þess að í skóla-
kerfinu yrði skapað rými fyrir spurningar og umræður um okk-
ur sem andlegar verur, óháð trúarbrögðum. Reynsla mín af
starfi mínu á bráðageðsviði sýndi mér að mikil þörf er á slíkri
umræðu. Þeirri þörf er illa mætt hvert sem litið er í samfélag-
inu. Þarna liggur oft orsök vanlíðunar og sjálfshaturs. Okkur
hefur verið kennt að Guð, eða hvað sem við viljum kalla sköp-
unarkraft lífsins, sé almáttugur og elski skilyrðislaust – en
samt fer allt í steik og hann virðist dæma okkur ef við högum
okkur ekki rétt. Væri ekki viturlegt að spyrja hver þessi Guð
er, og hver við erum í tengslum við hann? Að efla kærleika og
sjálfsást myndi byggja upp betra samfélag með heilbrigðara
fólki. Spurningar og umræður tel ég mikilvægari en svörin –
enda enginn sem veit þau með vissu.“ Postulínsbakkar eftir Helgu.
Listaverkin sem eru hægra
megin eru gerð úr leir.
Það lifnar yfir Helgu þegar hún gengur inn á vinnustofuna sína.
Helga málar með efni-
viði úr móður náttúru.
Akrýlverk eftir Helgu í „sullhorni“ á verkstæðinu.
Brjóstvasar eftir Helgu.
Skrifstofa með
björtum og fal-
legum litum.
Sófaborð sem Helga gerði
sem er hluti af Manneldis-
verkunum. Inni í borðinu
má sjá leirlistaverk sem
minnir á leg kvenna.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020