Morgunblaðið - 08.05.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 08.05.2020, Síða 16
Morgunblaðið/Árni Sæberg S igríður er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar. Þrátt fyrir það lifir hún einföldu fallegu lífi þar sem gildin hennar og lífsviðhorf eru í takt við ein- stakling sem setur náttúruna, menningu og vand- aðar hugmyndir í forgrunn. Sjálf lýsir hún heimili sínu sem hæfilega kaótísku en þó í nokkuð formföstum ramma. „Mér finnst gott að hafa liti í kringum mig. Ljós, kerti og blóm. Hluti sem minna mig á staði sem ég hef heimsótt og fólkið í lífi mínu. Ég reyni að sníða mér stakk eftir vexti og eiga ekki of margt af neinu – en á þá frekar bara fullt af alls konar!“ Tónlist jafn mikilvæg og súrefni Sigríður segir að tónlist sé henni jafn mikilvæg og súrefni. „Stundum finnst mér samt alveg ótrúlega gott að vera í þögn, kannski einmitt vegna þess að ég er svo oft í kringum tónlist. Mér finnst gott að geta spilað tónlist bara alveg eftir því hvernig mér líður hverju sinni. Það getur þá verið allt frá „Ég þarf hvorki né vil stærra né meira“ Sigríður Thorlacius söngkona hefur búið í fallegu bakhúsi í miðbæ Reykja- víkur frá árinu 2014. Íbúðin endur- speglar persónuleika hennar og er einstaklega skemmtileg og falleg. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Fallegur lampi og einstakir hlutir. Sigríður á það til að raula við tónlistina heima. Eins finnst henni gott að vinna með sam- starfsfólki að tónlist í húsinu. Heimili Sigríðar er litsrænt og fallegt. Sigríður segir heimilið skipta máli, þótt hún kunni einnig vel við að komast út reglulega. „Það sem ég er með í eldhúsinu er úr öllum áttum. Mér finnst mun skemmtilegra að eiga bara alls kon- ar hluti úr ýmsum áttum. Svo stund- um langar mig að vera fullorðin og smart og eiga eitt- hvað í stíl og geri tilraun til þess.“ Sigríður er mikil fjölskyldumann- eskja og er þakklát fyrir fólkið sitt sem fær sinn stað uppi á vegg.  SJÁ SÍÐU 18 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.