Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 2
Hvað gerir þú til að dekra við þig?
„Ég fer í langt og gott, vel heitt
bað. Fyrir mig er það hugleiðsla,
því ég læsi að mér og er í algjöru
einrúmi með sjálfri mér í kyrrð og
ró og leyfi huganum að hvílast. Það
er ekki síður sköpunarstund, því
þegar hugurinn er kominn í hug-
leiðsluástand opnast fyrir eitthvað
og hugmynda- og sköpunarkraftur-
inn fer á flug. Ég fæ mínar bestu
hugmyndir í baði og ef ég þarf að
finna lausn á einhverju þá finn ég
hana í baði. Þar eru mín „EU-
REKA“-augnablik.“
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
„Allir litir eru fallegir í mínum
huga og ég á föt í öllum litum. Ég
raða þeim eftir lit í fataskápnum
mínum þannig að þegar ég opna
skápinn blasir allur litaskalinn við.“
Áttu góðan garð?
„Ég á yndislegar svalir, þar sem
ég hengi potta á handriðin þannig
að blómin snúa inn á svalirnar og
pottana fylli ég af fallegum hengi-
blómum sem hanga eins og blóma-
haf niður á svalagólfið. Þar er líka
ofurlítið gróðurhús með krydd-
jurtum og græðlingum en græð-
lingana mun ég fara með
vestur í Dali þar sem við er-
um einnig með yndislegan
garð. Sá garður er náttúr-
an sjálf í sinni fegurstu
mynd. Þar eru móar og
lyng, lækir og brekkur,
fjara þar sem hægt er að
ganga nokkra kílómetra út á
leirur þegar fjarar. Þar tínum
við hjartaskeljar, sandskeljar og
bláskeljar og gerum „risotto di
mare“. Svo er þar skógur þar sem
við tínum villta sveppi, rauðhettu-
sveppi, kóngasveppi, kantarellur,
lerkisveppi, furusveppi og kúa-
lubba, sem við notum í alla mat-
argerð. Þar tínum við líka kræki-
ber, bláber, aðalbláber, villt
jarðarber, hrútaber og einiber til
matar og veiðum silung, bleikju og
lax, auk þess sem maðurinn minn
veiðir fugl til matar. Þar er nægta-
brunnur náttúrunnar og nær-
umhverfisneyslan í algleymi eins og
best gerist í nánast fullkominni
sjálfbærni.“
Ertu hrifin af blómum?
„Ég elska blóm, allan ársins
hring. Mínar uppáhaldstegundir á
þeim árstíma sem er að ganga í
garð eru hortensíur, bergfléttur
sem skríða fallega niður í grænan
foss yfir sumarið og roðna svo fal-
lega að hausti, snædrífur, tóbaks-
horn sem geta orðið dásamlega þétt
og falleg blómabreiða, skógarmalva
sem blómstrar eins og hún búi á
Havaí og vex upp í hálfgert tré á
stuttum tíma, og margar fleiri teg-
undir.“
Hvaða hlutur er ómissandi?
„Ætli það sé ekki minnisbók og
skrautskriftarpenni. Ég hripa
reglulega niður hugleiðingar mínar,
mínar uppáhaldsuppskriftir, ráð og
aðferðir sem gagnast hafa mér vel í
lífinu, t.a.m. sem fimm barna móð-
ur, ljóðabrot sem mér koma til hug-
ar, stundum geri ég myndskissur
og fleira. Ég skrifa þetta með
skrautskriftarpenna því það verður
svo fallegt og mér þykir gaman að
gera lykkjur og slaufur á stafina
svo að allt verði myndrænna og
stundum verður eins og abstrakt-
teikning úr. Kannski geri ég ein-
hvern tíma bók úr þessu.“
Hver er mest notaða snyrtivaran í
snyrtitöskunni?
„Varaliturinn minn. Ég á bara
einn, því fullkomnari getur hann
ekki orðið. Hann er frá Clinique,
bjartur og rauður eins og valmúi í
sumarsól og heitir Poppy pop.“
Hver er uppáhaldsverslunin þín?
„Á Íslandi get ég gleymt mér
inni í fallegum búðum sem lögð hef-
ur verið alúð við. Þessa stundina er
nýja keramikbúðin hennar Ingu El-
ínar, leirkerasmiðs og vinkonu
minnar, við Skólavörðustíg í uppá-
haldi. Hún er svo dásamlegur
fagurkeri.“
Hvar er best að versla?
„Ef um er að ræða mat er best
að kaupa íslenskt, hvaðan sem það
kemur. Grænmetið, kjötmetið,
fiskurinn, mjölið, eggin, allar afurð-
irnar – það jafnast ekkert í fersk-
leika og bragðeiginleikum á við ís-
lenskan mat.“
Hver er uppáhaldsmorgunmatur-
inn?
„Hafragrautur með lifrarpylsu og
hunangsdreitli, og cappuccino og
einn 70% súkkulaðimoli.“
Áttu uppáhaldssmáforrit?
„Mér finnst alltaf gaman að
skoða hönnuði, tískumerki, fallegar
verslanir og myndir frá vinum mín-
um, ættingjum og fjölskyldu á
Instagram.“
Hvað ætlarðu að gera í sumar?
„Njóta þess að spranga um fal-
legu Reykjavík með fjölskyldunni,
fara með nestiskörfu og teppi og
jafnvel flugdreka á Klambratún og í
Hljómskálagarðinn og sleppa fram
af mér beislinu, taka nokkur handa-
hlaup og kraftstökk og finna grasið
undir tánum, fara í fjöruferðir og
vaða í sjónum og tína skeljar, synda
í sundlaugunum okkar og standa á
höndum í kafi þegar enginn sér til,
njóta náttúrunnar í Dölunum og á
Núpi í Dýrafirði þar sem fjöl-
skyldan á einnig rætur og hús – og
finna fram í fingurgóma hvað lífið
er fallegt og tilveran dásamleg.“
Ljósmynd/motherspell.com
Rakel ásamt tveimur
yngstu dætrum sínum
í hönnun Armani.
Á garð sem er náttúran sjálf
Rakel Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Matís, er einstaklega mikill fagurkeri og
elskar allt sem viðkemur blómum, görðum, fallegri hönnun og hugmyndum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Auglýsinga-
herferðirnar
frá Dolce &
Gabbana
grípa augna-
blikið.
Vestur í Dölum eru Rakel og eiginmaður henn-
ar með dásamlegan garð sem er náttúran
sjálf. Þau nota mikið úr henni í matseld.
Rakel fylgist með tískunni og segir hún
tískuna vera fyrst og fremst stemningu.
Rakel not-
ar Poppy
Pop vara-
litinn frá
Clinique.
Rakel notar
ilmkrem frá
Armani.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Elínrós Líndal
elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndin er
úr einkasafni.
G
arðyrkja er listgrein eins og myndlist, fatahönnun, grafísk
hönnun, skrautskrift, nútímadans og skrautfiskarækt. Ef þú
ætlar að verða góður ræktandi þarftu að setja kraft í garðrækt-
ina líkt og þú værir að læra fyrir próf eða reyna að vinna þig
upp á vinnustaðnum. Þú þarft að setja allan kraftinn í það; hlúa
að, sýna þolinmæði og reyna að hafa svolítið gaman á leiðinni. Fæstir fæð-
ast fullskapaðir meistarar en með æfingu og þrautseigju er allt hægt.
Þegar minnst er á metnað er vert að nefna hjónin Andreu og Hall sem
búa á Akureyri. Þau ákváðu að nota peningana sem færu í að kaupa
sumarbústað og gera garðinn sinn upp í staðinn. Til þess að fullkomna líf
sitt ákváðu þau að steypa heitan pott sem smíðaður og hannaður var á
staðnum. Til að fá algert næði steyptu þau veggi í kringum pottinn og settu
hitalögn í pallinn sjálfan svo þau geti notað pottinn allan ársins hring. Í stað
þess að kaupa tilbúinn pott eiga þau núna algerlega einstakt útisvæði við
heimili sitt og geta notið lífsins sama hvað.
Talið berst að garðhönnun.
Vilmundur Hansen, einn helsti garðyrkjusérfræðingur landsins, bendir á
að það sé slæm þróun að byggingarvöruverslanir eða steypustöðvar bjóði
upp á fría garðhönnun gegn því að efnið sé keypt hjá þeim. Þetta geri það
að verkum að fría garðhönnunin framkalli oft og tíðum verönd á borð við
flugmóðurskip og lítið sé spáð í gróður.
Talandi um góða stemningu þá finnst mér skipta máli að heimilið og nær-
umhverfið sé þannig að fólk langi varla út fyrir hússins dyr nema kannski út
í garð. Að heimilið og útisvæðið sé þannig hannað að fólk þurfi ekkert meir.
Það sé bara sátt við sitt.
Svo er þetta með smekklegheitin. Síðasta sumar dvaldi ég á hóteli í
Kaupmannahöfn, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að í
portinu við hótelið var búið að búa til hellulagðan „garð“. Þar var borðum
og stólum raðað upp en inn á milli voru settar stórar plöntur í myndarlega
trépotta. Þessi samsetning heillaði mig. Það eru margir sem eru með stór
hellulögð útisvæði sem eru alveg dauð. Ekkert lifandi fyrirfinnst á þessum
hellulögðu útisvæðum nema kannski íbúar húss-
ins sem eru við það að missa lífviljann vegna þess
að þeir komust ekki í sína árlegu Spánarferð.
Í gróðrarstöðvum landsins vinna sérfræðingar
sem vita nákvæmlega hvaða tré lifa í hvaða tré-
potti eða blómabeði. Ef þú ert einn af þeim sem
eru með fýlusvip sem lekur niður á nafla yfir
ástandinu gæti tré í potti og heimsókn á gróðrar-
stöð hresst þig við. Svo gætirðu bætt við hengi-
rúmi, heilsársjólaseríu, keypt þér eldstæði, grillað
sykurpúða, keypt þér kúrekahatt og ponsjó og
boðið vinum í heimsókn á mánudaginn. Maður er
alltaf manns gaman, sama hvernig ástandið er í
heiminum. Þú þarft bara að passa að talan fari
ekki yfir 200. Þá gæti löggan eyðilagt partíið!
Ljósmynd/Unsplash
Að vera sáttur
við sitt
Marta María Jónasdóttir
Í heitari löndum er hægt að búa til endalausa stemningu
með gróðri. Það er líka hægt á Íslandi. Fólk þarf bara að
fara í gróðrarstöð og fá ráðleggingar og svo þarf að
muna að allt sem er lögð rækt við vex og dafnar.