Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 iskonar dollur og ílát – eittsinnumbúðir – sem henta fyrir sáningu eða langvarandi ræktun. Endurvinna allan lífrænan eldhúsúrgang í moltugerð og nota moltuna svo sem íblöndun í ræktunarmold,“ segir hann og bendir á að á netinu megi finna ýmiskonar útfærslur á því ferli. Svona má snuða sniglana Margir eiga í stríði við hverskonar innrás- ardýr í görðum sínum. Hafsteinn segir að það sé ekki mikið um að kettir eða önnur heim- ilisdýr valdi usla í matjurtagörðum en mýs og rottur geti nagað kartöflur og annað rótar- grænmeti. „Sniglar hafa lengi verið til leiðinda í mat- jurtagörðum og munu verða það um aldir alda er ég hræddur um. En við þeim má bregðast með því að tína þá upp og fyrirkoma þeim í hvert sinn sem þeir sjást. Nota má svokallaðar „bjórgildrur“ t.d. skyrdollur eða niðursuðu- dósir sem grafnar eru niður og hellt ögn af maltöli, bjór eða þurrgersblönduðum sykur- legi í botninn á þeim og dollurnar svo grafnar niður þannig að opið á þeim sé því sem næst við moldaryfirborð,“ útskýrir hann. Á rið 2018 hlaut hann heið- ursverðlaun garðyrkjunnar en hann hefur alla tíð verið gjöfull að miðla yfirgripsmikilli þekkingu sinni á garðyrkju og ræktun til al- mennings og áhugamanna og þannig haft mótandi áhrif á garðyrkju hér á landi. „Í nágrannatungumálum íslenskunnar nær hugtakið „kúltúr“ yfir hugtökin garðrækt, ak- uryrkju, kvikfjárrækt, skógrækt, sjávarútveg, höggmyndalist, málaralist, ritlist, leiklist, lækningar, skólarekstur og tónlistarflutning, svo eitthvað sé nefnt af mannlegum athöfn- um,“ segir Hafsteinn þegar hann er spurður að því hvort hann sjái sóknarfæri í garðyrkju hér á landi og kannski tækifæri sem betur mætti nýta. „Menningarþjóðir munu því áfram stunda garðyrkju og allt af þessu, en líklega í takti við aldafar, stjórnsýslusveiflur og tíð- aranda eins og verið hefur,“ bætir hann við. Nú þegar atvinnuleysi hefur sjaldan verið meira liggur beint við að spyrja Hafstein hvort hann lumi á ráðum um hvernig hægt sé að spara peninga við garðyrkjuna. „Það má til dæmis gera með því að nýta ým- Garðyrkja er kúltúr eins og myndlist og matargerð Hafsteinn Hafliðason er meðal þekktustu garðyrkjumanna landsins. Hann sá meðal annars um garðyrkjuþætti í útvarpi og sjónvarpi á árunum 1982-1995 og starfaði í mörg ár hjá Blómavali í Sigtúni sem sölumaður og neytendaráðgjafi. Þá er hann stjórnandi hópsins Stofublóm, inniblóm, pottablóm á Facebook og er óspar á heilræðin þar, blómaunnendum til gagns og gamans. Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com ER PLANIÐ SKÍTUGT? Fáðu tilboð í s: 577 5757 GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUN www.gamafelagid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.