Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
Ef Guðmundur Vernharðsson væri ein af plöntunum í Gróðrarstöðinni Mörk
þá hefði hann ævintýralega djúpar rætur enda hefur hann hvergi unnið
annars staðar á ævinni og unir sér best innan um gróðurinn. Hann er
garðyrkjumaður af lífi og sál og lítur á garðyrkjuna sem leið fyrir fólk til að
bæta heiminn og sjálft sig í leiðinni.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
Friðurinn sem kommeð
faraldrinum, leitin inn
á við og leiðin út í garð
hjálpa þeim með því að kaupa blóm sem þær laðast frekar að.
Þetta finnst mér mjög jákvætt. Svo má lesa annað út úr þjóðar-
sálinni, bæði í gegnum það sem gerðist í kreppunni og er að ger-
ast aftur núna, að áhugi á matjurtagörðum hefur snaraukist.
Fólk vill vera sjálfbjarga með mat og rækta eitthvað til að borða.
Þó það sé bara tilhneiging, og lítið endi kannski á disknum, þá er
virkilega gaman að þessi sjálfsþurftarhugsun sé enn í þjóðarsál-
inni og mér finnst þetta merkilegt í þessu samhengi. Í kreppunni,
með allan þennan tíma, stoppar flandur um allt og margir leita
ósjálfrátt inn á við og sú leit leiðir fólk út í garðinn eða nær nátt-
úrunni.“
Hann segir að í öllu stressinu verði viðhorfið til garðsins þann-
ig að fólk sjái bara fyrir sér vinnu, kvöð og leiðindi af því að það
hefur engan tíma.
„Einn viðskiptavinurinn sagði einhverntíma við mig að hún liti á
garðvinnuna eins og heimilisstörf. Þetta væri bara eitthvað sem
þyrfti að gera. Svona ætti þetta ekki að vera. Þau sem komast upp
á lagið með að njóta sín í garðinum, fara út eftir vinnu eða á kvöld-
in, fá eitthvað svipað út úr þessu og að stunda jóga og hugleiðslu.
Aðrir líta út um gluggann og sjá fyrir sér vinnu en ekki að stinga
puttunum í moldina og tengjast, sem er heilun út af fyrir sig.“
„Að skapa fallegan garð er eins og að búa til listaverk“
Líkt og Hafsteinn Hafliðason lítur Mummi á garðyrkjuna sem
menningu eða „kúltúr“ eins og það kallast á flestum tungu-
málum. „Galdurinn er að kunna að njóta. Margir alast upp við að
njóta tónlistar, skáldskapar eða myndlistar og þannig ætti því að
vera farið með náttúruna og blómin, þá tegund af fegurð. En svo
er fólk svo misjafnt og það finnum við í gróðrarstöðinni. Sumir
rjúka inn og vilja bara kaupa nokkra kassa, svona eins og að líta á
uppstillingu í Ikea og vilja kaupa hana, meðan aðrir gera þetta af
innlifun, skynjun og löngun til þess að skapa og njóta. Að skapa
fallegan garð er eins og að búa til listaverk. Fyrst byrjar maður á
því að sjá það fyrir sér, skissar það upp og teiknar svo með
plöntum,“ segir Mummi.
Árangurinn ræðst af góðu skipulagi og skýrri sýn
Hann bendir á að því meira sem maður skipuleggur garðinn
sinn fyrirfram, og sér fyrir sér hvernig hann á að vera, því minni
verði kostnaðurinn við framkvæmdina.
„Svo reynum við alltaf að stilla þessu þannig upp að viðhaldið
verði sem minnst og að aðalsvæðin fái að njóta sín. Til dæmis
skiptir aðkoman að húsinu miklu máli sem og þessir staðir sem
maður dvelur mikið á, til dæmis pallurinn og útsýnið frá stofu-
gluggum. Svo sparar maður baksvæðin,“ útskýrir hann og heldur
áfram: „Það á líka að hugsa matjurtagarðinn út frá sömu for-
sendum. Fyrst þarf maður að hugsa út í hvað maður borðar og
stinga því svo niður í stað þess að byrja að rækta grænmeti sem
skemmist svo bara af því að fólk hvorki borðar það né hefur pláss
til þess að geyma. Þá er mikið skynsamlegra að rækta til dæmis
salat og kryddjurtir sem má hafa í eldhúsglugganum eða við
grillið svo maður gleymi nú ekki að nota þær.“
Að endingu leggur hann sérstaka áherslu á gleðina sem skap-
ast af því að rækta garðinn sinn og að það sé í raun hinn eini sanni
tilgangur með garðræktinni. Að kalla fram gleði og ánægju.
„Í mínum huga snýst garðræktin fyrst og fremst um að njóta og
það er fátt sem jafnast á við þá umbun að sjá árangurinn af eigin
framlagi, hvað sem við erum að gera. Að sinna garðinum sínum,
hlúa að honum og rækta til að geta notið fegurðarinnar og árang-
ursins er með því besta sem fólk getur gert fyrir sjálft sig.“
S
autján ára flutti hann frá Holti rétt við Stokkseyri til
höfuðborgarinnar til að hefja starfsnám í gróðr-
arstöðinni Mörk. Þetta var árið 1979 og hann er enn
þar.
„Starfsferill minn hófst hér í Mörk svo hér hef ég
starfað alla ævi, fyrir utan tvö ár. Í annað skiptið
vann ég í görðum og svo fór ég í rekstrarnám í Danmörku árið
1999 því við konan mín keyptum gróðrarstöðina árið 2000,“ segir
Guðmundur, eða Mummi í Mörk eins og hann er oftast kallaður.
Sjálfstýrð gróðurhús gera störfin léttari
Hann segir framfarirnar í faginu hafa verið miklar á
þessum áratugum þó sumt hafi lítið breyst. Fram-
farirnar séu meðal annars í hönnun gróðurhúsa en
sjálfvirkni þeirra er orðin gríðarlega mikil.
Mummi fagnar þessu enda alltaf gott að láta
tæknina létta sér störfin.
„Hér áður fyrr þá ræktuðum við til dæmis
stjúpur í vermireitum sem glergluggar voru
lagðir yfir. Þegar fólk kom að versla þá þurfti
maður að lyfta glerinu, stinga blómin upp og
pakka þeim svo inn í dagblöð. Nú sést þetta auðvitað
ekki lengur,“ segir hann kíminn.
„Gróðurhúsin eru orðin svo fullkomin. Það er
sjálfstýring á þessu öllu. Til dæmis eru mælar
sem skynja uppgufun og sólarhita og stýra
gluggaopnun eftir því svo að hitastig haldist rétt.
Yfirleitt eru það þó fyrirtæki sem fjárfesta í svona
húsum en það eru samt til gróðurhús ætluð almennum neyt-
endum sem eru tæknivædd,“ segir hann og bætir við að þau kosti
auðvitað sitt.
Garðrækt gengur misvel eftir hverfum höfuðborgarsvæðisins
Eins og flestir vita eru ræktunarskilyrði á Íslandi í takt við tíð-
arfarið og úrvalið eftir því. Nýjungagjarnir hafa því stundum tek-
ið upp á því að frjóvga saman tegundir til að auka á fjölbreytileik-
ann.
„Til dæmis hefur verið búið til rautt birki með því að blanda
saman erfðum úr rauðu við íslenskt birki til að fá harðgerða teg-
und sem getur dafnað hér á landi. Þegar nýjar plöntur eru fluttar
til landsins þá sækjum við þær á svæði sem liggja á svipaðri
breiddargráðu en líka á staði þar sem loftslagið er svipað og þetta
kemur mörgum á óvart en Alparnir eru eitt af þeim svæðum þar
sem við getum sótt ýmsar gerðir. Alparnir eru háir og þar eru
hitasveiflurnar svipaðar og hér tíðkast á sumrin,“ segir hann og
bætir við að loftslagsbreytingar í heiminum hafi líka haft sín áhrif
á hvað er hægt að rækta hér og hvað ekki. Þá skipti einnig máli
hvort svæðið sem ræktað er í sé gamalt og gróið eða alveg nýtt og
einnig hvort það sé nálægt sjó eða uppi á hæð. „Það fer í raun eft-
ir því hvar maður er staddur á höfuðborgarsvæðinu hvort ein
gerð sé heppilegri en önnur. Þegar hverfi eru orðin gömul og gró-
in myndast allt önnur ræktunarskilyrði. Árangurinn ræðst af því
hversu gott skjólið er. Á norðanverðu Seltjarnarnesi reynir til
dæmis mikið á gróðurinn, bæði út af vindi og salti frá sjónum og
þá er mikilvægt að reyna að koma upp góðu skjóli.“
Borgin þarf að huga betur að grænum svæðum
kringum nýjar byggingar
Mörg höfum við skoðanir á þéttingu byggðar og nýbyggingum
í borginni. Guðmundur bendir á að þar mætti oft betur fara því
garðar og gróður eru stundum vart sýnileg um-
hverfis húsin.
„Miðað við hvað nýju lóðirnar eru litlar ætti að
leggja meira í að hafa gróður á svæðunum í
kring sem tilheyra borginni og á milli húsanna,
bæði upp á vellíðan íbúanna og til að gera veður-
farið betra. Menn vita í raun alveg að þetta er
rétta leiðin en fjármagnsöflin fara ekki alltaf eftir því og stýra
jafnvel alveg í þveröfuga átt. Nýta flatarmálið sem mest undir
byggingar, vegi og gangstéttir. Bæði borgin og byggingar-
verktakar græða meira á þessu, fasteigna- og gatnagerðargjöld
verða hærri en auðvitað kemur þetta niður á því hversu vistleg
nýju hverfin verða,“ segir hann en bendir samt á að sums staðar
sé þó farið að huga vel að þessu.
Aukinn áhugi á garðinum þegar enginn kemst til útlanda
Líkt og annars staðar kemur fram hér í blaðinu þá hafði efna-
hagskreppan meðal annars þau áhrif að fólk gerði ákveðnar lífs-
stílsbreytingar hjá sér og það sama hefur átt sér stað nú þegar
Covid og sóttkvíin hægði á okkur öllum.
„Núna þegar fólk kemst bara ekkert til útlanda og er miklu
meira heima hjá sér hefur áhugi á garðyrkjunni aukist mikið
og þetta hefur ekki farið framhjá mér. Umhverfið fer að skipta
meira máli í daglegu lífi. Stór hluti þjóðarinnar hefur auðvitað
verið í útlöndum yfir sumarið og það skapar á vissan hátt
vandamál í garðinum. Auðvitað viljum við byrja að upplifa
sumarið sem allra fyrst og fólk reynir stundum að skreyta og
setja niður áður en það fer úr landi. Svo kemur það heim og þá
eru blómin steindauð úr þurrki,“ segir Mummi sem hefur pælt
svolítið í því hvernig fólk virðist byrjað að líta á garðinn sinn
með nýjum augum í takt við bæði umræðu um hlýnun jarðar,
útrýmingu dýrategunda og annað sem hefur gerst af manna-
völdum og hefur neikvæð áhrif á náttúruna.
Sjálfsþurftarhugsun og umhyggja fyrir býflugum
„Mér finnst eins og þetta hafi leitt það af sér að fólk finni meiri
þörf fyrir að bæði gera eitthvað fyrir náttúruna og tengjast
henni. Dæmi um þetta er að nú fæ ég stundum spurningar um
blessaðar býflugurnar. Að þær eigi erfitt og því vill fólk gjarnan
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Ómar
Guðmundur Vernharðsson
hefur nánast alla sína
starfsævi unnið í Mörk.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon