Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 27
„Sniglarnir laðast að og láta sig gossa í ljúf- metið – skipta því út fyrir salatið en eiga svo ekki afturkvæmt úr veislunni. Líka má snuða sniglana með því að útbúa handa þeim kjörin varpstæði seinni part sumars með því að leggja fjalarbúta eða eitthvað þungt og flatt sem liggur kyrrt á moldinni – en með dálitlu holrými undir þar sem þeir fara um. Þá verpa þeir eggjum sínum gjarna þar, einkum sé þess gætt að hafa þetta á nokkuð rökum og skugg- sælum stað inni á milli gróðursins. Svo má bara ganga þar að eggjunum vísum áður en vetur gengur í garð. Og það ætti nú öllum að vera ljóst hvað verður um þau eftir að við höf- um haft hendur á þeim. Fyrir vikið verður sniglafarganið sumarið á eftir aðeins viðráð- anlegra.“ „Þessi krútt“ eru mikil skaðræðisdýr Hafsteinn talar um að annar óvelkominn gestur sé byrjaður að herja á gróðurlendi landsins. „Á síðustu árum er farið að koma upp annað vandamál sem enn er ekki byrjað að fjalla mik- ið um í íslenskum garðyrkjuritum. Og vissu- lega orðið mjög tímabært á stjórnvaldsstiginu líka, en það eru kanínurnar. Fjöldi íslenskra fáráðlinga hefur verið að sleppa kanínum hist og her í kringum þéttbýli um allt land á und- anförnum áratugum án þess að gera sér grein fyrir hve „þessi krútt“ eru mikil skaðræðisdýr í gróðurlendi landsins, einkum rækt- unarlöndum, görðum, garðlöndum, gróðr- arstöðvum og skógrækt. Þar valda þær rækt- endum beinu fjárhagslegu tjóni. Fyrir nú utan leiðindin sem af þeim stafa, hafi maður misst í þær einhverjar uppáhaldsplöntur sem búið er að eyða mikilli vinnu og fyrirhöfn í að koma á legg.“ Tilbúinn áburður er eins og vítamíntöflur úr heilsuvöruhorni Nýgræðingar í garðyrkju gera oft sömu mis- tökin en ein af þeim eru að gleyma að gæta að því að moldin sé næringarrík. „Áburður einn og sér er ekki svo mikilvægur í venjulegri heimilisgarðrækt. Meira máli skiptir að moldin sem ræktað er í sé lifandi og haldi sér við með þeim ræktunaraðferðum sem beitt er. Lífrænn áburður af öllu tagi lífgar upp Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hafsteinn Hafliðason segir að sniglar geti verið til vand- ræða í matjurtagörðum.  SJÁ SÍÐU 28 „Allir garðar eru í sjálfu sér heilt vistkerfi með sjálf- stæðum lífkeðjum. Líka líf- inu sem við sjáum ekki.“ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 27 Síberíulerki - Aldrei að bera á Í kjarnvið síberíulerkis er náttúruleg fúavörn. Því þarf aldrei að bera fúavörn á viðinn.Viðurinn er sterkur, endinga- góður og þolir afar vel íslenska veðráttu Veggklæðningar og pallaefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.