Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 31
Morgunblaðið/Árni Sæberg
er eitthvað sem mér gæti mögulega þótt
leiðinlegt þá er það að ganga frá fyrir
veturinn, hreinsa verkfærin, tæma pottana
og þess háttar, því það markar endalok
sumarsins. Að stússast í garðinum jafnast á
við hugleiðslu og svo er líka hægt að hlusta
á hljóðbækur meðan maður er að dunda sér
við verkin og það hentar mér vel. Það nærir
bæði líkama og sál,“ segir Ásta og bætir við
að sér sé alveg sama hvað hún sé að gera
eða hvar hún sé stödd í garðinum.
„Ég er jafn ánægð, hvort sem ég sit á
þægilegum stól með kaffibollann minn og
dáist að blómunum eða er á bólakafi inni í
beði að reyta arfa. Mér líður eins og ég sé
komin í vin í eyðimörkinni þegar ég opna út
í garð og er búin að gleyma mér í einhverju
stússi áður en ég veit af. Ég flakka úr einu
verki í annað og tíminn flýgur,“ segir Ásta
og auðvelt er að skilja samlíkinguna þar
sem umferðin við Hringbraut getur verið
mikil og garðurinn í suðursólinni eins og
falinn sælureitur.
Eins og að kveðja náskyldan ættingja
Blómin eru Ástu afar kær og hún segist
eiga mjög erfitt með að gera upp á milli
þeirra.
„Í mestu alvöru þá sé ég fegurðina í hverju
einasta blómi og tré. Ég finn þetta best þegar
ég stend frammi fyrir því að losa mig við ein-
hverja plöntu úr garðinum. Þá er eins og ég
sé að kveðja náskyldan ættingja,“ segir Ásta
og hlær en bætir svo við að þó eigi hún sér
eitt eftirlætisblóm. „Það kallast „Sweet pea“ á
ensku, og er í hávegum haft þar í landi, eða
baunablóm á íslensku. Ég hef löngum sáð fyr-
ir baunablómum á vorin og hef uppskorið
marga vendi af litríkum blómum sem ilma svo
SJÁ SÍÐU32
Ásta starfaði í Kirkjugörðum
Reykjavíkur þegar hún var
unglingur og þar kviknaði
áhugi á garðrækt.
Ásta sér fegurðina
í hverju einasta
blómi og tré.
Ásta gerir mikið af því að fara í göngutúra
og skoða garða. Það kemur henni alltaf jafn
mikið á óvart hvað fólk hefur lítinn áhuga á
garðrækt.
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 31
Weber Pulse 2000
rafmagnsgrill
• Innbyggð iGrill tækni
•Weber iGrill app
• Stafrænn hitamælir
• Hrein orka
weber.is