Bæjarins besta - 18.02.1986, Qupperneq 1
BÆIARINS BESIA
18. FEBRÚAR1986
3. ÁRGANGUR
HERM SCHEPES
Á ÍSAFIRÐI
EIMSKIP
STRANDFLUTNINGAR
AÐ SUNNAN, ALLA MIÐVIKUDAGA s^sTOFA 4555
AÐ NORÐAN, ALLA MÁNUDAGA VÖRUHÚS 4556
Hreinsum myndbandstæki
samdægurs
Fast verð
SERIA sf.
AÐALSTRÆTI 27
Sími3072
Eins og undanfarin ár ætlar áhugafólk um byggingu
tónlistarskóla á ísafirði að halda flóamarkað og afla þannig
fjár til byggingarinnar. Að þessu sinni verður hann haldinn
á neðri hæð skólahúss Menntaskólans á Torfnesi og
verður opinn frá kl. 15 - 18 frá miðvikudegi til laugardags
næstu vikurnar. Að venju getur margt að líta, en að sögn
Ingu Ástu Hafstein, sem stýrir markaðnum væri þó vel
þegið ef fólk kæmi með barnafatnað, húsgögn eða smá-
muni sem það vill losna við, því fremur er fátt um það á
markaðnum. Hún sagði aftur á móti vera mikið um flíkur í
fullorðinsstærðum og undanfarin ár hefðu margir nýtt sér
það og keypt lítt notuð föt og sniðið upp úr þeim barnaföt
eða breytt á annan hátt. Eflaust hentaði það einhverjum að
fá efni til að klippa niður til föndurs fyrir börn. Inga Ásta
sagði nokkuð stóran hóp hafa komið allt að því daglega á
flóamarkaðinn á fyrri árum, skoðað og gert síðan góð
kaup, menntaskólanemar hefðu nýtt sér þetta verulega.
Það er ágætis hressing í góðu veðri að ganga inn í
Menntaskóla, gera þar góð kaup og fá sér kaffisopa hjá
markaðsfólkinu.
Ekki sakar að vita sig styðja gott mál.
Frá Söngbók Gunnars Þórðarsonar sem stendur nú yfir í
veitingahúsinu Broadway. Nánari kynnig á skemmtuninni verður
í næsta blaði.
REX ROTARY
REX ROTARY LJÓSRITUNARVÉLAR — GÆÐA GRIPUR Á GÓÐU VERÐI
Til dæmis Rex Rotary 7010C, fjölhæf vél fyrir allan venjulegan pappír og glærur. Vél sem er
góður valkostur fyrir smærri fyrirtæki. Vél sem gefur litamöguleika. Vél sem er komin í notkun
hjá mörgum fyrirtækjum á ísafirði og í nágrannabyggðarlögunum. Vél á verði sem kemur á