Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.02.1986, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 18.02.1986, Blaðsíða 9
BB 9 Jans, aans iyja eða hjúkrunarkona eins og hinar heimsæki mun fleiri og kynni mér hvað er að gerast.“ Ef við snúum okkur nú sem snöggvast frá dansinum og að prívatmáiunum, þá langar mig að spyrja hvort þú ætlir að fiytjast hingað eins og heyrst hefur sagt? Dagný hlær við þegar þessi spurning kemur. „Ég ætlaði að gera það og gaf víst ein- hvern tíma yfirlýsingu um það. En það svaraði enginn aug- lýsingu minni um húsnæði til leigu. Nú hef ég íbúð fyrir sunnan og við höfum komið okkur vel fyrir þar. En hver veit nema við flytjum hingað seinna.“ Við? Enn hlær hún. „Við, erum dóttir mín og ég. Ég er einstæð móðir með 3 ára dóttur. Hún er reyndar ekki með mér hér því ég vinn svo mikið meðan ég er hér. En þegar ég er heima erum við mikið saman.“ Úr einu í annað. Ertu mikill ísfirðingur í þér ennþá? Já, ég er það. Ég vil koma hingað sem oftast og gerði það meðan ég var í skóla. Þá vann ég hér í sumarfríum. Og svo finnst mér það ofsalega gaman hvað það er margt af börnum burtfluttra ísfirðinga sem sækja danstíma hjá mér fyrir sunnan. IVIér finnst ég hafa miklu betra samband heim, eins og ég kalla það.“ Við urðum að Ijúka sam- talinu því það var að koma að tíma hjá Dagnýju. Klukkan 6 var sýning 8-10 ára barna sem höfðu verið að æfa fyrir silf- urpróf (e.k. annað stig prófa DSÍ). Með sýningunni fylgd- ust foreldrar barnanna af áhuga og tóku reyndar þátt líka. Dagný, vió höfum ýjað að því í samtalinu, að þú hafir átt hér heima áður. Þóttsumirkunniá þér skil, helduróu að þú viljir samt ekki gera grein fyrir þér hinna vegna? „Jú, það er sjálfsagt. For- eldrar mínir eru Pétur Valdi- marsson, Veturliðasonar og Stefanía Arndís Guðmunds- dóttir, Eðvarðssonar. Þau bjuggu hér á ísafirði fram um 1970 og ég er fædd hér og uppalin. Ég á fjölda vina og kunningja hér frá þeim tíma og hef enn þá tilfinningu að ég sé komin heim þegar ég er hér.“ SHARP21 ” sjónvörp... ...hafa ótrúleg myndgæði ...hafa flatan skerm sem gerir myndina frábæra ...færðu með eóa án fjar- stýringar ...færðu með Hi-Fi sound eða monitor ...eru á ótrúlega góðu verði Viðgerðaþjónusta á staðnum Verð frá kr. 22.900 stgr. með segulbandi Verð frá kr. 32.900 með diskettudrifi Diskettudrifkr. 13.900 Stýripinnar kr. 830 Vorum að taka upp frá AMSTRAD nýja leiki, stýri- pinna o.fl. Og ef þú villt láta hana tala, þá komdu og skoðaðu hjá okkur SPEECH SYNTHESIZER. SERÍA sf. HLJÓMDEILD Full búð af nýjum vörum ★ SLIM-A-SOUP ★ Maarud flögur ☆ Hefurðu tekið eftir grilluðu kjúklingunum? OPNUNARTÍMI: Mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18 Föstudaga kl. 9-20 Laugardaga kl. 10 -13 Þeireru góðir! VÖRUVAL SÍMI4211. BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.