Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.02.1986, Side 14

Bæjarins besta - 18.02.1986, Side 14
14 BB „Sumarfríið ‘86 byrjar hér!“ Samvinnuferðir-Landsýn heilsar nýju ferðaári 1986 með útkomu sumarbæklings '86. Skrifstofan stefnir að auknu framboði á orlofsferðum til útlanda og hefur sem undan- farin ár haft það megin- markmið að halda verðlagi í lágmarki. Nýjungar '86 í fyrsta sinn býður SL ferðir til spænsku eyjunnar Mallorca sem íslendingum er að góðu kunn. Það sem helst markar sérstöðu SL á þeim vettvangi er lágt verð. T.d. kynnir skrif- stofan í fyrsta sinn hérlendis nýtt fyrirkomulag sem vel þekkt hefur verið í öðrum löndum. Við kennum það við „SL-hótel“ og felst það í því að farþegar geta keypt sér „pakka“ til Mallorca en fá ekki gefið upp hótel ytra fyrr en skömmu fyrir brottför. Hins vegar tryggir SL far- þegum sínum góða hótel- gistingu hvar sem hún svo verður. Á þennan hátt geta farþegar sparað stórfé. Dæmi er um tveggja vikna ferð til Mallorca með hálfu fæði á „SL-hóteli“ kosti kr. 18.700.- Ódýrasta 3ja vikna ferðin kostar kr. 20.700.- Af öðrum nýjungum má nefna „Ævintýraferðir“ fyrir fjör- kálfa, nýja rútuferð um Grikk- land, nýtt sumarhúsahverfi í Þýskalandi, nýja gistimögu- leika í Austurríki fyrir þá sem kjósa flug og bíl á Salzburg og nýja rútuferð um Rínardalinn. Gamlir kunningjar Aðrir ákvörðunarstaðir SL í sumar eru kunnir frá síðasta ári. Sumarhús í Karlslunde og Gilleleje í Danmörku, sælu- hús í Kempervennen og Meerdal í Hollandi, Sólar- ströndin Rimini á Italíu, Vouligameni-ströndin í Grikklandi, gríska eyjan Rhodos, ferð til Sovét- ríkjanna, rútuferð um megin- land Evrópu auk leiguflugs til Kanada og Norðurlanda. Verð Allt kapp hefur verið lagt á að halda verði á orlofsferðum í lágmarki. Séu verðskrár SL í ár borin saman við verð okkar frá sumrinu sem leið kemur fram að verð hefur hækkað ótrúlega lítið þrátt fyrir að gengi hafi lækkað um allt að 30%. Auk þess njóta hinir fjölmörgu eigendur Samvinnuferða- Landsýn, félagsmenn í flestum stærstu samtökum launafólks í landinu, góðs af marg- hátíuðum afsláttarmögu- leikum, auk endurgreiðslu hluta ferðakostnaðar svo sem kynnt var fyrir nokkrum dögum. Dæmi tala sínu máli: Orlofsferðir, þar sem stuðst er við leiguflug (miðað við aðildarfélagsverð og endur- greiðslur) hafa hækkað á bilinu 3 - 10% og fjölmörg dæmi eru þess að hækkunin sé innan við 5%. Er vísað til nokkurra verðdæma í verð- skrá SL-bæklingsins í þessu efni. Loks má spyrja hvort landsmenn geti hjá nokkurri annarri ferðaskrifstofu komist til útlanda (í þessu tilfelli Þrándheims) fyrir 10.600 krónur? KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA Það er sannkölluð búbót að versla hjá Kaupfélaginu, það sést á vöruverðinu. Utsala verður á nýjum svínalærum. Verð aðeins kr. 325 pr/kg. Verð á úrbeinuðu kr. 480 pr/kg. GJÖRIÐ SVO VEL AÐ LÍTAINN MATVÖRUVERSLANIR KAUPFÉLAGS ÍSFIRÐINGA

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.