Bæjarins besta - 18.02.1986, Blaðsíða 2
2
BB
&CJARINS BESIA
BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum.
Útgefandi:
H-PRENT sf., Suðurtanga 2, ísafirði, sími 4560.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og
Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101.
Blaðamaður:
Snorri Grímsson, símar 4560 og 3667
Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 201.
Efnis- og auglýsinga móttaka í ofangreindum símum.
Auglýsingaverð kr. 75.- dálksentimeterinn.
Að gefnu tilefni...
Það er nú einu sinni svo íþvísamfélagi einstaklinga,
sem í daglegu tali nefnist ,,þjóð“ að skoóanir manna
eru nánast jafn fjölskrúðugar og höfðatalan segir til
um.
Sómamaður, sem nú er látinn, sagði einu sinni, að
hann eyddi ekki oróum á landsmálapólitík, það væru
utanríkismálin, sem skiptu máli og annar, landskunnur
á sinni tíð, orðaði það svo, að í þeim efnum dygði
ekkert bænakvak. En ætli við lítillátir höldum okkur
ekki á heimavelli.
Atvinnumál ísfirðinga, einkum varðandi rækjuveiðar,
eru í brennidepli. Lausn íþvímáli liggur ekki á borðinu
og sjávarútvegsráðherra virðist ekki haggað iafstöðu
hans til skipakaupa erlendis. Gott og vel. En, með
afstöðu sinni tekur ráðherran á sig þá ábyrgð að
benda á aðra lausn og eftirhenni erbeðið.
I góðri bók stendur einhvers staðar að maðurinn lifi
ekki á einu saman brauði. Nú er það svo aó við Vest-
firðingar erum þekktari að því að lifa á fiski en brauði.
Ekki meira þar um, en dútlinu í kringum fiskinn fylgja
ýmsir kvillar eins og svo mörgu einhliða og lýjandi
starfi. En nú skal farið hratt yfir sögu og vaðið úr einu í
annað.
Prófkjöri sjálfstæðismanna um skipan framboðslista í
bæjarstjórnarkosningum á ísafirði er lokið, úrslitin
kunn og ánægja með þau eftir efnum og ástæðum.
Kratarnir ætla einnig að hafa prófkjör, en fara sér
hægt. Sagt erað Frammararleiti að ,,fyrsta manni“ og
vonandi finnst hann í tæka tíð. Allaballarnir eru samir
við sig og enn verður ekki af heimildum ráðið, hvort
,,óháðir“ koma í leitirnar.
En þegar prófkjörs- og framboðsraunum og síðan
kosningum er lokið tekur alvara lífsins við. Þá hættir
þetta ágæta fólk að tala um pólitík að mestu og snýr
sér að verkefnum líðandi stundar og lítur til framtiðar.
Þannig á það líka að vera.
Frá því að heilsugæslustöóin i nýja sjúkrahúsinu tók
tilstarfa hefursannastsvo ekki verðurum villst, hversu
við í raun og veru biðum eftir slíkri aðstöðu. Ekki
Fimmtudagskvöld, opið frá kt. 21:00 — 1:00
Aldurstakmark 18 ára.
Föstudagskvöld, opið frá kl. 23:00 — 3:00
Diskotek, aldurstakmark 18 ára.
Laugardagskvöld, opið frá kl. 23:00 — 3:00
BG-FLOKKURINN skemmtir,
aldurstakmark 18 ára.
BORÐAPANTANIR FYRIR MATARGESTI
í SÍMUM 3985 og 3803
ATH.: Fyrirtæki og félög!
Pantið tímanlega fyrir hópa.
einasta aldnir og lasburða njóta hennar heldur eru
tugir almennra bæjarbúa á biólista eftir aó komast að í
heilsuræktinni. í vaxandi mæli virðast augu fólks
opnast fyrir því, að fyrirbyggjandi aðgerðir eru
vænlegri til aó viðhalda heilsunni en kostnaðarsamar
aðgerðir eftir á.
Hvernig sem öll prófkjör og kosningar kunna að fara
er væntanlegum fulltrúum okkar i bæjarstjórn bent á,
aó enn má gera betur í þessum efnum. En þegar þar
að kemur skulum vió halda okkur við jörðina en láta
ekki skýjaborgir koma í veg fyrir athafnir eins og okkur
er þvímiður svo tamt. s.h.
@
BÍLALEIGA
Afgreiðlustaðir:
Nesvegi 5, Súðavík s. 94-4972 - 4932
v/Miklatorg, Reykjavík s. 91 -25433
Á Isafjarðarflugvelli s. 94-4772