Víkurfréttir - 29.12.2020, Blaðsíða 8
Skólaslit haustannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram laugardaginn
19. desember. Að þessu sinni útskrifuðust 83 nemendur; 73 stúdentar, tólf úr verknámi,
átta úr starfsnámi og einn af framhaldsskólabraut. Þess má geta að sumir luku prófi af
fleiri en einni braut. Karlar voru 46 og konur 37. Alls komu 54 úr Reykjanesbæ, átján úr
Suðurnesjabæ, sjö úr Grindavík og einn úr Vogum. Þá kom einn frá Bolungarvík, Húsavík
og Garðabæ.
Að þessu sinni var útskriftin með
breyttu sniði vegna fjöldatak
markana. Útskriftarnemendum
var skipt í tuttugu manna hópa og
kom hver hópur í salinn og tók við
skírteinum sínum. Engir gestir gátu
verið viðstaddir en þess í stað var
dagskránni streymt. Að öðru leyti
var dagskráin með hefðbundnu
sniði. Kristján Ásmundsson, skóla
meistari, afhenti prófskírteini og
flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir,
aðstoðarskólameistari, flutti yfirlit
yfir störf annarinnar. Júlíus Viggó
Ólafsson, nýstúdent, flutti ávarp
fyrir hönd brautskráðra og Kristjana
Hildur Gunnarsdóttir, kennari, flutti
útskriftarnemendum kveðjuræðu
starfsfólks. Að venju fluttu nýstúd
entar tónlist við athöfnina en þar lék
Kristján Jón Bogason á píanó, Júlíus
Viggó Ólafsson söng og Már Gunn
arsson söng og lék á píanó.
Við athöfnina voru veittar viður
kenningar fyrir góðan námsár
angur. Júlíus Viggó Ólafsson fékk
viðurkenningu fyrir störf í þágu
nemenda skólans, Aron Elvar Ög
mundsson, Fanney Lovísa Bjarna
dóttir og Thelma Lind Pálsdóttir
fengu viðurkenningar fyrir góðan
árangur í félagsfræði, Olivia Anna
Canete Apas fyrir árangur sinn í
fata og textílgreinum, Eva Rós
Jónsdóttir fyrir myndlist og Ronnel
Haukur Viray fyrir þýsku. Vigdís
María Þórhallsdóttir fékk viður
kenningu fyrir árangur í félagsfræði
og gjöf frá Landsbankanum fyrir
góðan árangur í samfélagsgreinum,
Kristjana Oddný Björgvinsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir góðan ár
angur í líffræði og einnig fyrir efna
fræði, Jóhanna Lilja Pálsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir árangur sinn í
spænsku og verðlaun frá Verkfræði
stofu Suðurnesja fyrir góðan árangur
í stærðfræði, Margrét Ír Jónsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir góðan ár
angur í efnafræði og hún fékk einnig
verðlaun frá Verkfræðistofu Suður
nesja fyrir góðan árangur í stærð
fræði og þá fékk Siguróli Valgeirsson
verðlaun frá Landsbankanum fyrir
góðan árangur í verk og starfsnámi
og hann fékk einnig gjafir frá Johan
Rönning, Reykjafelli og Ískraft fyrir
góðan árangur í rafiðngreinum.
Martyna Daria Kryszewska fékk
viðurkenningar fyrir góðan árangur
í ensku og efnafræði, hún fékk verð
laun frá Verkfræðistofa Suðurnesja
fyrir árangur sinn í stærðfræði, gjöf
frá Landsbankanum fyrir góðan ár
angur í stærðfræði og raungreinum
og verðlaun frá Hinu íslenska stærð
fræðifélagi fyrir góðan árangur í
stærðfræði. Eiríka Lín Friðriksdóttir
fékk viðurkenningar fyrir góðan ár
angur í ensku, spænsku, viðskipta
fræði, hagfræði og líffræði. Natalia
Jenný Lucic Jónsdóttir fékk viður
kenningar frá skólanum fyrir árangur
sinn í íslensku, spænsku, efnafræði
og líffræði, hún fékk einnig gjöf frá
Landsbankanum fyrir góðan árangur
í íslensku, verðlaun frá Verkfræði
stofa Suðurnesja fyrir árangur sinn
í stærðfræði og gjöf frá Þekkingar
setri Suðurnesja fyrir góðan árangur
í náttúrufræðigreinum. Arndís Lára
Kristinsdóttir fékk viðurkenningar
fyrir góðan árangur í ensku, íslensku
og spænsku, hún fékk gjöf frá Lands
bankanum fyrir góðan árangur í er
lendum tungumálum, verðlaun frá
Verkfræðistofa Suðurnesja fyrir ár
angur sinn í stærðfræði og verðlaun
frá Hinu íslenska stærðfræðifélagi
fyrir árangur í stærðfræði.
Kristján Ásmundsson skóla
meistari afhenti 100.000 kr. náms
styrk úr skólasjóði en hann er veittur
þeim nemanda sem er með hæstu
meðaleinkunn við útskrift og hlaut
Arndís Lára Kristinsdóttir styrkinn.
Hún útskrifaðist af Fjölgreinabraut
með meðaleinkunnina 9,62. Arndís
hlaut einnig 30.000 kr. styrk frá
Landsbankanum fyrir hæstu ein
kunn á stúdentsprófi.
ARNDÍS LÁRA KRISTINSDÓTTIR DÚX
FS MEÐ MEÐALEINKUNNINA 9,62
Fjölbrautaskóli Suðurnesja útskrifaði 83 nemendur af haustönn í fámennri útskriftarathöfn
Arndís Lára Kristinsdóttir
útskrifaðist af Fjölgreinabraut
með meðaleinkunnina 9,62.
Kristjana Hildur
Gunnarsdóttir kennari
flutti útskriftarnemendum
kveðjuræðu starfsfólks.
Vegna samkomutakmarkana
var ávarpið tekið upp
fyrir athöfnina.
Frá útskriftarathöfninni í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Athöfnin var sýnd í beinni útsendingu
á vef Víkurfrétta og á vef skólans.
Frá útskrift á haustönn 2020
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Ljósmyndir: Oddgeir Karlsson
Júlíus Viggó Ólafsson
söng við undirleik Sævars
Helga Jóhannssonar.
Kristján Jón Bogason
lék á píanó.
8 // VÍKurFrÉttir á suðurNEsjum Í 40 ár