Víkurfréttir - 29.12.2020, Side 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Grímulaus Margeir
hefur talað!
K-áramót
Þegar jólahátíðin var við það að
ganga í garð hélt ég í fávisku minni
að ekki væri hægt að toppa rifrildi
Kára og Þórólfs um hver hefði átt
hugmyndina af því að gera íslensku
þjóðina að tilraunadýrum fyrir am
erískt stórfyrirtæki. Hófst þá Jóla
messa Samfylkingarinnar. Einhver
fjallmyndarlegur sjálfstæðismaður
hafði rambað inn á listsýningu seint
á Þorláksmessu. Logi á aðfangadag,
Helga Vala á jóladag og loks for
maður þingflokksins, öflugasti
þingmaður Suðurnesja vildi ólmur
komast í vinnuna milli jóla og nýárs
til að ræða málið. Í því er þingmað
urinn sérfræðingur. Ræða málin.
Minna um efndir. En það þekkja
Suðurnesjamenn frá þingmönnum
sínum. Ég hélt á tímabili að ég þyrfti
að láta efnagreina sykurskertu malt
og appelsínblönduna – ég væri að sjá
ofsjónir í sjónvarpinu yfir jólin. Hvarf
andi jólanna í Covid? Hvað varð um
fyrirgefninguna?
Íslensk pólitík er svo vitlaus að
það heyrist ekki hóst eða stuna
þegar borgarar, sem eiga samkvæmt
lögum að teljast frjálsir, eru boðnir til
sölu sem tilraunadýr til erlends stór
fyrirtækis. En þegar breyskur maður
gengur grímulaus inní mannfjölda
uppfullur af anda jólanna, fer allt á
hliðina. Fyrirgefningin er víðs fjarri.
Allt kapp er lagt á að ná höggstað á
einstaklinginn. Því málefnastaðan
er engin. Það er ekkert til umræðu
nema veiran.
Allt frá því ég man eftir mér hef
ég glott út í annað þegar ég hef séð
fólk ferðast með grímur. Þvílíkt grín.
Á innan við ári er búið að takast að
gera þær að skyldu. Þetta er í raun
fyndið. Ef ég hefði skrifað í lokaorð
Víkurfrétta í desember 2019 að ég
krefðist þess að þið öll bæruð and
litsgrímu meirihluta næsta árs, þá
hefði vaknað grunur um einhverja
röskun. Ef ég hefði svo bætt í með
banni við ástundun íþrótta og banni
við skólagöngu hefði ég líklegast
verið lagður inn.
Við innlögnina hefði ég tvinnað
áfram að ráðherra Vinstri grænna
sem allt vill gera fyrir græna framtíð
hefði pantað með einkaþotu einn
kassa af bóluefni og tekið á móti
kassanum með viðhöfn ... nei hættu
nú.
Raunveruleikinn er ótrúlegri en
nokkur skáldsaga.
Með tímanum gleymast vondu
minningarnar en þær góðu lifa.
Keflavík er komið í Pepsi Max, bæði í
karla og kvenna. Ég sé Íslandsmeist
aratitil í náinni framtíð – og Sveindís
Jane. Hún verður alvöru stjarna.
Ég kveð grímurnar, veldisvöxtinn,
fyrirmyndarfjalægðina, þríeykið
og Kára með engum söknuði. Býð
velkomið 2021, ár gagnrýninnar
hugsunar, brosa, faðmlaga, sigra og
kosninga.
Gleðilegt nýtt ár.
LO
KAO
RÐ
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR
Hver er maður ársins
á Suðurnesjum?
Eins og mörg undanfarin ár standa Víkurfréttir
fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins en valið verður
kynnt í Víkurfréttum í janúar 2021.
Hvaða Suðurnesjamaður á skilið nafnbótina
„Maður ársins á Suðurnesjum 2020“?
Hver er þín tilnefning?
Sendu ábendingu á póstfangið vf@vf.is
fyrir mánudaginn 4. janúar 2021.
Óprúttnir aðilar þykjast vera
Björgunarsveitin Suðurnes á
Facebook og eru að senda fólki
á Suðurnesjum vinabeiðnir í
nafni björgunarsveitarinnar.
Á síðu þessara aðila er fólk
hvatt til að smella á tengil til að
taka þátt í leik. Um svikapóst
er að ræða og fólk hvatt til að
smella ekki á tengilinn.
Óprúttnir aðilar
þykjast vera
Björgunarsveitin
Suðurnes á Facebook
Ljósasýning
á Garðskaga
Þaktjón í
vonskuveðri
í Sandgerði
Björgunarsveitir voru kallaðar
út í Suðurnesjabæ á sunnudag
þegar vonskuveður olli tjóni í
bænum. Björgunarsveitafólk úr
Garði og Sandgerði reyndi þar
að koma böndum á þak á húsi
í Sandgerði sem var við það að
fjúka. Myndin var tekin á vett-
vangi björgunarstarfsins.
vf is
Við stöndum
fréttavakt allan
sólarhringinn
Vaktsími 898 2222