Vesturbæjarblaðið - Dec 2020, Blaðsíða 4
Á
stríður Guðmunds
dóttir kennari
tengist Melaskóla
með tvennum hætti.
Hún var nemandi
í skólanum sem barn og
fullorðin ákvað hún að ljúka
kennaranámi og hóf síðan
störf sem kennari við gamla
skólann sinn á Melunum.
Undir starfslokin starfaði hún í
hlutastarfi en hætti endanlega
þegar kórónaveirufaraldurinn
barst til landsins. “Þá var ég
farin að vinna það lítið að mér
fannst ekki taka því lengur.”
Ástríður er Reykvíkingur og
Vesturbæingur í húð og hár. Faðir
hennar var Guðmundur Jónsson
óperusöngvari og útvarpsmaður
og móðir hennar Þóra
Haraldsdóttir. “Föðurforeldrar
mínir bjuggu á Öldugötunni.
Afi minn Jón Þorvarðsson
var kaupmaður í Reykjavík
og rak veiðarfæraverslun
við Tryggvagötu. Halldóra
Guðmundsdóttir föðuramma mín
var ættuð frá Akranesi en fluttist
15 ára til Reykjavíkur. Eini angi
ættar minnar utan Reykjavíkur
liggur upp á Skaga. Móðir mín var
hreinn Reykvíkingur. Foreldrar
hennar voru Ástríður Einarsdóttir
sem ég heiti eftir og Haraldur
Þórðarson skipstjóri. Ég man
þegar ég var krakki að sumum
fannst ekki mikið til þess koma
að vera bara Reykvíkingur. Að
vera ekki frá einhverju héraði
eða byggð út á landi. Vissulega
kom fólk af landsbyggðinni
til borgarinnar og kenndi sig
stundum við hin fyrri heimkynni
sín. En þá verðum við líka að
athuga að Reykjavík er orðin
nokkuð gömul. Fólk var tekið
að safnast saman hér á 18.
öld og jafnvel fyrr og ættir ná
alveg jafn langt aftur. Foreldrar
mínir kynntust á KR balli og
ömmur mínar og afar bjuggu
við Öldugötu og Hringbraut. Allt
hreinir Vesturbæingar. Þetta
var skemmtilegt svæði. Allir
þekktu alla eða næstum því og
flestir miklir KR ingar. Ég náði
líka í að breiða út saltfisk sem
sumarstarf. Saltfiskstæðið var efst
við Kaplaskjólsveginn þar sem
vinnslustöð Bæjarútgerðarinnar
var á sínum tíma. Þarna fengu
krakkar úr Vesturbænum oft
fyrstu sumarvinnuna sína.”
Í fyrstu blokkinni við
Kaplaskjólsveginn
Ástríður dvaldi tvö fyrstu ár
ævinnar í Svíþjóð og síðar eitt ár
í Austurríki þar sem faðir hennar
var við nám. “Eftir heimkomuna
fluttum við í fyrstu blokkina sem
reis við Kaplaskjólsveginn – 37
til 41. Þá voru engar byggingar
í kring. Þetta var rétt við
Jófríðastaði. Nokkurn veginn
beint á móti KR. Þetta var eins og
sveit. Næstu árin fór svæðið að
byggjast. Kaplaskjólsblokkirnar
risu hver af annarri. Borgin var
að teygja sig til vesturs. Ég var
tvö ár í Lauganesskóla og svo
hófust kynni mín af Melaskóla
sem síðar átti eftir að verða
starfsvettvangur minn í mörg
ár. Ég er úr fjölmennum árgangi.
Alls voru tíu bekkjardeildir í
mínum árgangi og þurfti að
nota stóran hluta af stafrófinu
til þess að greina þær í sundur.
Mig minnir að ég hafi verið í J
bekk. Við vorum 32 í bekknum.
Ég eignaðist marga góða vini í
Melaskóla og við höfum haldið
sambandi alla tíð. Þegar við
áttum 55 ára bekkjarafmæli fórum
við í dagsferðalag á Arnarstapa
á Snæfellsnesi. Þá var kennarinn
okkar Dagný Albertsdóttir á lífi
en hún féll frá fyrir þremur árum
komin á tíræðisaldur. Við höfum
orðið að fresta 60 ára afmælinu
vegna kórónaveirufaraldurins.
Þó er aldrei að vita nema
að við efnum í eitthvað ef
þessu ástandi líkur.”
Var alin upp
við góðan mat
Ástríður byrjaði að kenna í
Melaskóla eftir að hafa lokið
kennaraprófi 1971. “Ég byrjaði
þó ekki starfsferilinn þar. Ég
hafði ekki ákveðið hvað ég vildi
gera og starfaði sem flugfreyja
hjá Loftleiðum um tíma. Það
var gaman en ég vil ekki gera
mikið úr því þótt það væri
ákveðin reynsla. Ég ákvað svo
að fara í Kennaraskólann og
þaðan lá leiðin til kennslu í
Melaskóla. Ég var þó ekki alveg
samfleytt við kennsluna því
ég starfaði í Borgarleikhúsinu
frá 1989 til 1994. Ég starfaði
líka við matseld einkum fyrir
kvikmyndagerðarmenn. Meðal
annars við kvikmyndirnar
Stellu í orlofi, Karlakórinn
Heklu og Kristnihald undir jökli.
Þetta var svona aukavinna því
kennaralaunin voru ekki það há
að maður þurfti að vinna með
kennslunni.” Ástríður hefur
alltaf haft gaman af að fást við
matargerð. Kveðst þó ekki
húsmæðraskólagenginn. “Ég
slapp við það en var alin upp við
góðan mat. Það var alltaf góður
matur á heimilinu þegar ég var
að alast upp. Ég var vön góðu og
hef eflaust tekið kunnáttuna með
mér að heiman. Svo les ég góðar
uppskriftir og reyni að fylgjast
með. Laufey Steingrímsdóttir
næringarfræðingur er skólasystir
4 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2020
Melaskólinn er einstök bygging
Yngsta systkinið skírt. Frá vinstri, Þorvarður Jón, Ástríður og Halldóra
í fangi stóru systur.
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
- segir Ástríður Guðmundsdóttir fyrrverandi kennari í Melaskóla
Ástríður með föður sínum Guðmundi Jónssyni óperusöngvara.
Jólahapp!
Jólamiðinn er kominn
á sölustaði um allt land.
Ástríður Guðmundsdóttir.