Vesturbæjarblaðið - dec. 2020, Side 18
18 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2020
GETRAUNIR.IS
107
GETRAUNANÚMER KR
Síðustu mánuðir hafa verið óvenjulegir í starfi
félagsmiðstöðvarinnar Frosta. Í samkomubanni
þurfti að endurhugsa starfið í Frosta og
skipuleggja það upp á nýtt. Í byrjun skólaárs var
hægt að halda úti hefðbundnu starfi en fljótlega
þurfti að hólfaskipta nemendum Hagaskóla eftir
árgöngum. Í samkomubanni hefur Frosti ekki
getað boðið unglingum Vesturbæjar að koma í
húsakynni sín í Tjörninni en hefur hins vegar
verið með starfrænar opnanir á fjarskiptaforritinu
og samfélagsmiðlinum Discord. Þar hefur
verið mikið fjör og hefur í raun verið opnuð
félagsmiðstöð á veraldarvefnum.
Þarna nær starfsfólk og unglingar að gera flest
allt sem væri annars á dagskrá í Frosta. Það er búið
að spila saman borðspil, tölvuleiki, spjalla um allt
milli himins og jarðar og það hefur meira að segja
verið bakað saman, þar hefur starfsfólk Frosta keyrt
pakka heim að dyrum með þeim hráefnum sem þarf
til í baksturinn hverju sinni.
Tíu til tólf ára starfið hefur einnig verið stafrænt
þar sem Frosti hefur sett efni á heimasíðu sína sem
börnin geta nýtt sér til dægrastyttingar. Í nýjustu
breytingu á reglugerð stjórnvalda kemur þó fram
að leyfilegt sé að vera með félagsmiðstöðvastarf
utandyra og er það nákvæmlega það sem Frosti
hefur gert. Frosti fagnar því ákaft að fá að hitta
börnin aftur í persónu þó að það sé úti en vonandi
er hægt að færa starfið aftur inn sem allra fyrst.
Frosti í samkomubanni
Félagsstarf hefur farið fram utandyra á vegum Frosta.
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Nemendur í þriðja bekk Grandaskóla hafa
verið að læra að tálga hjá smíðakennara sínum.
Afraksturinn varð að skemmtilegum fígúrum sem
nemendur tálguðu og skreyttu svo að vild.
Á meðan reglugerð um takmörkun á skólastarfi
hefur verið í gildi hafa kennarar og nemendur verið
að vinna að ýmis konar skemmtilegum verkefnum.
Smíðakennari hefur verið að vinna með
nemendum 3. bekkjar við tálgun.
Í 2. bekk hafa nemendur verið að vinna með
fiskaþema. Búið er að setja upp „fiskabúr“ í anddyri
aðalinngangs skólans þar sem má sjá leirverk,
myndir og óróa allt í fiskaþema. Við hvetjum ykkur
til að kíkja á gluggana ef þið eigið leið framhjá. Í
5. bekk hafa nemendur fengist við kertagerð. Allir
nemendur fengu að útbúa sitt eigið kerti sem þau
lærðu að útbúa frá grunni.
Tálgað í Grandaskóla
Skemmtilegar fígúrur sem nemendur þriðja bekkjar hafa tálgað.
- samfélagsmiðill og félagsstarf utandyra
WWW.ASWEGROW.IS
GARÐASTRÆTI 2 REYKJAVÍK
UMHVERFISVÆN ÍSLENSK HÖNNUN
7. bekkur hæstur
á samræmdum
Sjöundi bekkur í Landakotsskóla
var hæstur yfir landið á samræmdum
prófum í stærðfræði og íslensku.
Í frétt frá skólanum segir að mörgum
þyki erfitt að átta sig á hæfnieinkunn
í samræmdum prófum. Þar er
einkunnum nemenda raðað frá 0 til
100 og meðaltalið þá 50. Nemendum í
4. bekk gekk líka ágætlega og voru þau
yfir landsmeðaltali. Sjöundi bekkur í Landakotsskóla.
Landakotsskóli
Verið velkomin á Árbæjarsafn á aðventunni Engin jóladagskrá í ár vegna COVID-19.
w
w
w
.b
or
ga
rs
og
us
af
n.
is