Vesturbæjarblaðið - des. 2020, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2020
Neskirkja
4. sunnudagur í aðventu,
20. desember:
Aðventuratleikur fyrir fjölskylduna
umhverfis Neskirkju kl. 11-16.
Viðurkenning fyrir réttar lausnir
veitt í safnaðarheimilinu. Nánari
upplýsingar á vef kirkjunnar.
Jóladagatal:
Neskirkja sendir út jóladagatal
á fésbókarsíðu kirkjunnar alla
aðventuna. Þetta eru stuttar
hugvekjur í tali og tónum.
Barnastarf:
Sunnudaga á aðventu eru
fjölskyldustundir sniðnar fyrir
yngstu kynslóðina sendar
út á vef kirkjunnar
og fésbók. Þetta er samstarf
nokkurra kirkna í Reykjavík.
Neskirkja er opin alla daga
frá 10-13 og um helgar kl. 11-12.
Jólin verða hringd inn kl. 18
á aðfangadag og á jóladag
verður kirkjan opin kl. 14-15
fyrir kyrrð og íhugun.
Starfsfólk kirkjunnar og
sóknarnefnd óska öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári og hlakka
til samfunda með hækkandi sól.
Þér gjöri’ eg ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég hitt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
(Einar Sigurðssonar)
Helgihald um jól og áramót í
Vesturbænum og miðborginni
Dómkirkjan
Aftansöng í Dómkirkjunni
á aðfangadag kl. 18:00 verður
útvarpað á Rás 1 líkt og verið hefur
frá upphafi útvarps á Íslandi.
Nýársdag kl. 11:00 predikar
biskup við hátíðarguðsþjónustu
í Dómkirkjunni og verður henni
útvarpað beint.
Vinsamlegast athugið að vegna
samkomutakmarkana er ekki rúm
fyrir almenna kirkjugesti við þessar
guðsþjónustur.
Kór og annað starfsfólk fyllir uppí
þann fjölda sem leyfilegur er.
Alla þriðjudaga kl.12:00 eru
bænastundir í Dómkirkjunni
og er þar öllum heimill aðgangur
meðan samkomutakmörkunum
er ekki ofboðið.
Dómkirkjan er opin alla
virka daga frá kl. 10-14.
Prestar og annað starfsfólk
Dómkirkjunnar óskar öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári og minnir á vonarríkan
boðskap Jesaja spámanns:
„Sú þjóð, sem í myrkri
gengur sér mikið ljós.“
Erfiðleikarnir ganga yfir
og það mun birta til.
Hallgrímskirkja
Aftansöng og helgistund
í Hallgrímskirkju á
aðfangadagskvöldi verður
streymt og miðlað í sjónvarpi.
Sjá nánar á hallgrimskirkja.is
Notalegar rafrænar
fjölskyldustundir birtast alla
sunnudaga á aðventunni.
Barnakórsöngur, jólaföndur,
biblíusögur og fleira.
4. sunnudagur í aðventu
20. desember:
Aðventuratleikur fyrir fjölskyldur
frá kl. 11-16. Átta stöðvar verða
í umhverfi Hallgrímskirkju.
Gamlársdagur kl. 18:00:
Guðsþjónustu á gamlárskvöldi
verður útvarpað á RÚV kl. 18.
Virka daga, mánudaga-föstudaga,
og sunnudaga verða bænastundir
í Hallgrímskirkju kl. 12.
Hallgrímskirkja er opin alla
daga frá 11-15.
Prestar og starfsfólk
Hallgrímskirkju óska öllum
gleðilegra jóla með
jólafréttinni góðu:
„Því að barn er oss fætt, sonur
er oss gefinn. Á hans herðum
skal höfðingjadómurinn hvíla,
hann skal nefndur: Undraráðgjafi,
Guðhetja, Eilífðarfaðir,
Friðarhöfðingi.“