Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Róa sig! Undanfarnar vikur og mánuðir hafa um margt verið óvenjulegur tími. Vegna heimsfaraldurs kórónaveiru hafa venjur fólk breyst gríðarlega. ekki einvörð- ungu að ferðalög milli sýslna og landa flokkast sem óæskileg hegðun eða jafnvel er bönnuð, þá hefur fólk ekki getað eða mátt sækja vinnu og nám eins og venj- an er. Öllu er þannig snúið á hvolf í annars fastmótuðu skipulagi. Á þetta við um okkur Íslendinga á sama hátt og íbúa flestra annarra landa í veröldinni. Mér vitanlega hefur veiran stungið sér niður allsstaðar, en veit þó reyndar ekki með lönd eins og Norður – Kóreu þangað sem nánast útilokað er að komast hvort sem er, bæði fyrir fólk og þar af leiðandi veirur. Vel má vera að landið sé veiru- frítt en fullvíst má telja að ef svo er ekki, munum við ekki frétta af því. en við fréttum margt annað, jafnvel meira en við viljum. Nú á tímum hefur bæst ofan á flóru hefðbundinna fjölmiðla samfélagsmiðlar og ef við ekki pössum okkur verður úr þessu ómælda magni upplýsinga alveg ægilegur hrærigrautur. Fólki er því af heilsufarsástæðum ráðlagt að slökkva á viðtækjunum og símunum, drífa sig út í hreina loftið, gera sig líkamlega þreytt og um leið andlega hraustara svo svefninn verði góður. Kannski þessvegna hitti hún strax beint í mark auglýsingin frá fjarskiptafyrirtækinu Nova. Við höfum séð fólk í sjónvarpsauglýsingunni striplast um í gönguferð, í hjólatúr eða sund- lauginni, gjörsamlega kviknakið. Dáldið hefur þetta sært blygðunarkennd ein- hverra, en öðrum finnst þetta skemmtileg. Boðskapurinn er einmitt sá að skilja símana eftir heima og láta snjallúrin duga. Magnað markaðstrix þarna sem skil- aði strax árangri. Reyndar ætla ég sjálfur ekki að láta undan þeim þrýstingi, langar ekki í snjallúr og bara alls ekki að auka á neinn hátt það rafræna áreiti sem ég nú þegar verð fyrir. Áhugaverð, en jafnframt sorgleg, frétt var í útvarpinu á mánudaginn. Þá var rætt við lögregluþjón um verkefni næturinnar á höfuðborgarsvæðinu, sem er gott og blessað. Fram kom í máli hans að stór hluti verkefna þá um nóttina hafi falist í að róa fólk, veita því sálgæslu og andlegan stuðning. Auðvitað segir þetta okkur að viðvarandi ástand vegna heimsfaraldurs er farið að hafa íþyngjandi áhrif á líðan fólks. ekki einungis að margir hafa orðið fyrir tekjufalli og jafn- vel atvinnumissi, þá er ekkert eins og áður. Margir fá ekki útrás í líkamsrækt- inni, ungmenni eru svo vikum og mánuðum skiptir heima hjá sér við nám og allt samneyti við jafnaldra og kennara er með gjörbreyttu sniði. Ofan á þessar breyttu aðstæður bætist svo að ef fréttir og annað efni sem fólk lætur tímann líða við að lesa og hlusta á, er ekki til að bæta líðanina. Ég ætla að taka nokkur dæmi af handahófi um það sem mér hefur fund- ist ámælisvert í fjölmiðlum að undanförnu. Fram úr hófi var ósmekkleg um- fjöllun um niðurskurð sauðfjár vegna riðu í Skagafirði. Stöð2 sá ástæðu til að fara í sorpbrennslustöðina þar sem hræin af nýdauðum skepnum lágu innan um heimilisúrgang sem skyldi á bálið. Sama dag tóku báðar sjónvarpsstöðvarnar sig til og birtu sömu myndskeið af hræjum danskra minka sem nú er unnið við að slátra. Algjör óþarfi var að birta þessar myndir og bættu þær engu við alvar- leika málsins. einungis að æra upp ömurleika aðstæðna sem ekki var ráðið við með öðrum hætti. Þá get ég nefnt óviðeigandi myndatökur á vettvangi elds- voða, síbylju einkum í Ríkissjónvarpinu um hversu ömurlegur fráfarandi forseti Bandaríkjanna er í augum fjölmiðlamanna og fjölmargt fleira. Mér hefur þann- ig nokkrum sinnum á síðustu dögum fallist hendur yfir skeytingarleysi kollega minna á ýmsum fjölmiðlum um myndbirtingar og á tíðum afleitt fréttamat. Meðhöndlun frétta getur verið vandaverk, ekki síst þegar vofeiglegir atburð- ir eiga sér stað. Hvenær á frétt erindi til almennings, hvar á að setja mörkin, hverju skilar fréttin; bætir hún, eða gerir hún eitthvað ástand verra en það er? Nú þegar heimsfaraldur hefur geysað í tæpt ár þurfa fréttamenn að leggja sig í líma við að draga fram í dagsljósið það jákvæða, það sem bætir, kætir og leiðir til góðs. ef þetta fer ekki að breytast á allra næstu dögum sé ég ástæðu til að mæla með að fremstu sálgæslusérfræðingar í lögreglunni geri sér ferð upp í efsta- leiti eða á Suðurlandsbrautina og veiti starfsfólki þar viðeigandi aðstoð. Það er nefnilega mál til komið að fólk rói sig aðeins og dragi frekar fram hið jákvæða sem þrátt fyrir allt; heimsfaraldur og aðra óáran, er að gerast í samfélaginu. Magnús Magnússon Segja má að veðurguð- irnir hafi verið Vega- gerðinni hliðhollir þetta haustið. ekki hefur þurft að fara margar ferðir til að hálkuverja eða að hreinsa snjó eða krapa á Snæfellsnesi. Síðastlið- inn föstudag þurfti í ann- að skipti í haust að kalla út snjómokstursbíl á leið- inni milli ólafsvíkur og Vatnaleiðar á Snæfells- nesi. Má telja það harla lítið ef miðað er við síð- ustu haust, en síðasta vet- ur þurfti að kalla bílinn út ellefu sinnum og veturinn 2018/19 þurfti hann að fara tólf sinnum á sama tímabili. þa Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja viðræður við Reykjavíkurborg um næstu skref vegna byggingar nýs þjóðarleikvangs í knattspyrnu, að tillögu mennta- og menningar- málaráðherra og fjármála- og efna- hagsráðherra. Með slíkum við- ræðum er stigið skref í þeirri veg- ferð að byggja keppnisaðstöðu sem stenst alþjóðlegar kröfur, en und- anfarin ár hefur Laugardalsvöll- ur þurft undanþágur og sérstakan viðbúnað vegna keppnisleikja í al- þjóðlegum mótum. Viðræður við Reykjavíkurborg munu byggja á valkostagreiningu breska ráðgjafa- fyrirtækisins AFL, sem varð hlut- skarpast í útboði sem efnt var til á evrópska efnahagssvæðinu snemma árs. Í greiningunni er kostnaðar- og tekjumat eftirtalinna valkosta, auk viðskiptaáætlunar og mats á efna- hagslegum þáttum: a. Að núverandi völlur verði að mestu leyti óbreyttur, en ráð- ist verði í lágmarksendurbætur og -lagfæringar. b. Að Laugardalsvöllur verði endurbættur svo hann uppfylli kröfur og staðla Knattspyrnu- sambands evrópu (eUFA) og Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA). c. Að byggður verði nýr 15.000 manna leikvangur, með opnanlegu þaki eða án þaks. d. Að byggður verði fjölnota- leikvangur með 17.500 sætum, með opnanlegu þaki eða án þaks. AFL telur að 15.000 manna leik- vangur án þaks sé hagkvæmasti kosturinn, ef eingöngu sé horft til beinna fjárhagslegra þátta. Hins vegar myndi slíkur leikvangur með opnanlegu þaki skila bestu heildar- niðurstöðunni m.t.t. vinnsluvirðis, efnahagslegra áhrifa, nýtingar og fleiri þátta. Þá telur AFL að ofan- greindir valkostir A og B séu ekki fýsileg langtímalausn. Valkosta- greiningin var unnin að undir- lagi Þjóðarleikvangs ehf., félags sem KSÍ, Reykjavíkurborg og ríkið stofnuðu til að halda utan um verk- efnið. mm Íþróttamiðstöðin í Stykk- ishólmi varð 30 ára í gær, en hún var vígð við hátíð- lega athöfn laugardaginn 10. nóvember 1990. Rifjað er upp á vef Stykkishólms- bæjar að það var Sverr- ir Hermannsson, þáver- andi menntamálaráðherra, sem tók fyrstu skóflustung- una að byggingunni 22. maí 1987. Jafnframt afhenti ráð- herrann þáverandi sveitar- stjóra, Sturlu Böðvarssyni, samning sem gerður hafði verið milli menntamálaráðu- neytis, fjármálaráðuneytis og Stykk- ishólmsbæjar um framlag ríkissjóðs til byggingarinnar en langan tíma hafði tekið að koma þessum samn- ingi á og tryggja þannig fjármuni til verksins. Í framhaldi af byggingu íþróttahússins tók Stykkishólms- bær í notkun íþróttavöll árið 1996 og nýja sundlaug 1999. Í byggingarnefnd fyrir íþrótta- húsið höfðu verið bæjarstjórinn Sturla Böðvarsson, Gunnar Svan- laugsson og Davíð Sveinsson. For- hönnun byggingarinnar var í hönd- um Ormars Þórs Guðmundssonar og Viðars ólafssonar hjá Verkfræði- stofu Sig. Thoroddsen. Um eftir- lit á byggingarstað sá erlar Krist- jánsson bæjarverkfræðingur. Byggingarstjóri var Sigurð- ur Kristjánsson og aðalverk- taki var Trésmiðja Stykk- ishólms. Nær allir verk- takar við bygginguna voru úr Stykkishólmi. Kostnað- ur við bygginguna nam á sínum tíma 137 milljónum króna. Sama dag og tekin var fyrsta skóflustungan að íþróttamiðstöðinni varð Stykkishólmshreppur að Stykkishólmsbæ þegar Alex- ander Stefánsson þáverandi félagsmálaráðherra gaf út tilskip- un um bæjarréttindi Stykkishólms- hrepps sem frá þeim degi varð Stykkishólmsbær. Það var síðan 10. júní 1987 sem bæjarstjórn Stykkis- hólmsbæjar hélt fyrsta fund sinn og hreppsnefnd Stykkishólmshrepps sinn síðasta. frg Lítil snjóhreinsun af vegum það sem af er hausti Stíga skref til undirbúnings þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu Tölvugerð mynd sem KSÍ lét gera árið 2017 af því hvernig nýr þjóðarleikvangur gæti litið út. Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi er þrjátíu ára Sverrir Hermannsson, þáverandi menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi. Myndin er af vef Stykkishólmsbæjar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.