Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202024 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Fulltrúi Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Borgarbyggðar fór mikinn á dögunum í grein sem hann kallaði „Braggamál í Borg- arbyggð.“ Þar gagnrýnir hann háan kostnað við hönnun á tveim- ur skólalóðum sem sveitarfélagið stendur fyrir nýbyggingu og end- urbótum á. Gekk hann svo langt að tala um óstjórn og að verið væri að slá ryki í augu íbúa. ein leið til þess að slá ryki í augu íbúa er að setja fram í grein sem þessari sam- anburð og fullyrðingar sem ekki standast skoðun. Hann birti svo aðra grein í kjölfarið „Stjórnleysi í framkvæmdum“ þar sem farið var í álíka villandi umræðu um fram- kvæmdir við Grunnskóla Borgar- ness og velur þar að skauta fram hjá mörgum staðreyndum á þeirri vegferð. Hann byrjar reyndar á því að leiðrétta hluta af þeim stað- reyndarvillum sem hann hélt fram í fyrri grein sinni en telur undir- ritaðri rétt að leiðrétta nokkur at- riði til viðbótar en ekki verður list- inn þó tæmandi í einni grein. Berum saman epli og appelsínur Viðbygging og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi er gríðarlega metnaðarfullt og mikil- vægt verkefni sem hefur heppnast einstaklega vel. Vissulega er rétt að hönnun og þarfagreining hefði þurft að vera ítarlegri í upphafi og þess vegna var fenginn eftirlitsaðili að verk- efninu sem kostaði að sjálfsögðu sitt en mun betri yfirsýn náð- ist að sama skapi. Þess ber þó að geta að þegar það verk fór af stað á síðasta kjörtímabili voru einmitt framsóknarmenn í meirihluta, þó greinahöfundur sjálfur hafi ekki verið í sveitarstjórn á þeim tíma. Í upphafi var ákveðið að fara í nauð- synlegt viðhaldi á hluta skólans og nýbyggingu á matsal og sam- komusal. Upphafleg áætlun gerði þó engan veginn ráð fyrir því mikla viðhaldi sem kom í ljós við framkvæmdir að þurfti að bregð- ast við. Verkið í raun stökkbreytt- ist frá upphaflegum áætlunum en það er trú mín þá og nú að réttar ákvarðanir hafi verið teknar þeg- ar ákveðið var að ráðast á myglu, ónýtt þak, ólöglega einangrun og loftræstingu sem hafði sungið sitt síðasta. Það hafði gleymst að gera ráð fyrir tækjum í eldhúsið og hús- búnaði í matsalinn og varðar fram- anrakið allt ákvarðanir sem teknar voru eftir að upphaflega áætlunin var sett fram. Það sem eftir situr er að hönnun og eftirlit var stór þátt- ur sem kostaði sitt og á eftir að yf- irfara með eftirlitsaðila og hönn- uði. Þetta veit greinarhöfundur vel en velur að greina ekki frá því. Þá að lóðinni... Hönnun á lóð Grunnskólans í Borgarnesi var einnig metnaðar- full og var að miklu leyti unnin í samráði við nemendur og starfs- fólk skólans. Nemendur voru fengnir til að kortleggja núverandi notkun sína á skólalóðinni og tjá hugmyndir sínar um hvers kyns skólalóð samræmdist helst þeirra áhugamálum og þörfum. Ljóst var að endanleg niðurstaða úr þeirri vinnu var ívið of metnaðarfull og þurfti byggingarnefnd að fara í að skala verkefnið niður og áfanga- skipta því til að minnka kostnað við lóðina. Hugmyndin var samt sem áður að eiga teikningar af heildarhönnun, sem væri svo hægt að framkvæma eftir á næstu árum og smá betrumbæta þá lóðina. Þó að öll lóðin hafi verið hönn- uð, hafi einungis verið ákveðið að framkvæma fyrsta og annan hluta hennar og því hafi framkvæmdin verið mun ódýrari en teikningar gerðu ráð fyrir. Því er ekki sam- anburðarhæft að nota kostnað við hönnun á heildarlóðinni sem ein- hverskonar hlutfall af kostnaði við raunverulegar framkvæmdir. Það gefi einfaldlega ranga mynd. Gera þurfti ákveðnar breyting- ar vegna þessa. Höfundur grein- arinnar talar um framúrkeyrslu á framúrkeyrslu ofan og tekur þetta sem dæmi en ekki er um framúr- keyrslu að ræða þó breytingar á hönnun og áfangaskipting hafi gert hönnun kostnaðarsamari. Frumhönnun og fullnaðarhönnun ekki sami hluturinn Þegar kemur að framkvæmdinni á Kleppjárnsreykjum kom í ljós að greinarhöfundur virtist ekki hafa lesið önnur ákvæði samningsins um hönnun á skólalóð á Klepp- járnsreykjum en það sem snýr að upphæðinni. Í 4. gr. samningsins kemur fram að um var að ræða forhönnun bæði leik- og grunn- skólalóðar ásamt frumkostnaðar- mati. einhver virðist þó hafa bent greinarhöfundi á þessa rangfærslu sem hann hafði þó fyrir að leið- rétta. Þá fjallar sá samningur sem greinarhöfundur lagði til grund- vallar ályktunum sínum ekki einu sinni um heildarhönnunarkostnað leikskólalóðar heldur frumhönn- un lóðarinnar. Svo við rýnum aðeins nánar ofan í þá rangfærslu. Tímafjöldi í samningi um hönnun á leik- og grunnskólalóð Kleppjárnsreykja ætlaður í frumhönnun og kostn- aðarmat var 150 klst, en um er að ræða tvær lóðir- bæði leik og grunnskóla ásamt nærumhverfi stofnananna og spannar það yfir 2ha svæði. Það sér það hver maður að 2 milljónir króna myndu aldrei duga fyrir slíku verkefni þar sem mikil vinna liggur að baki fullnað- arhönnun á svo stóru verki, þrátt fyrir að greinarhöfundur reyni að gera lítið úr þessari vinnu með því að kalla hana bara teikningar á blaði. Mikið af fagteikningum þurfa að liggja til grundvallar svo slík verk uppfylli lögbundin skil- yrði og að öryggi og velferð þeirra barna sem koma til með að nota lóðina séu höfð í fyrirrúmi. Notum réttar tölu til samanburðar Svo er það samanburðurinn. Höf- undur fer mikinn í því að bera sam- an kostnað við hönnun á skólalóð- um og framkvæmd Reykjavíkur- borgar við endurbætur á Bragg- anum í Nauthólsvík og talar um að hönnun á skólalóðum í Borg- arbyggð hafi farið meira fram úr í prósentum talið en fyrrnefnd framkvæmd í Reykjavík. Hann kýs að taka ekki fram við hvaða kostn- aðaráætlanir hann er að miða. Sennilega frumkostnaðaráætlan- ir og grunntímafjölda en eins og rakið var hér að ofan og eru eins og flestir vita, ekki eitthvað sem gert er ráð fyrir að endurspegli endanlegan kostnað við hönn- un. Þetta er því með öllu fráleitur samanburður. Að kasta grjóti úr glerhúsi Síðasta og kannski alvarlegasta villan er svo sennilega sú að halda því fram að meirihluti sveitar- stjórnar ætli sér ekki að taka alvar- lega þá stöðu sem komin er upp í fjármálum sveitarfélagsins vegna heimsfaraldursins. Að ekki standi til að sýna aðhald í rekstri né skyn- semi í framkvæmdum. Þetta birt- ir hann áður en lögð er fram fjár- hags- og framkvæmdaráætlun og áður en vinnufundur sveitarstjórn- ar um sömu áætlanir var haldinn. Á þeim fundi kom einmitt fram að allra leiða verði leitað til að gæta aðhalds og fara skynsamlega með fjármuni. Að á næsta ári verði fyrst og fremst áherslan lögð á að lok- ið verði við þær framkvæmdir sem nú eru í gangi og að hefja undir- búning fyrir næstu framkvæmdir á skólahúsnæði og íþróttamann- virkjum. Þá leggur meirihluti sveitarstjórnar upp með að skila rekstri sveitarfélagsins nokkurn veginn í jafnvægi, sem er mjög já- kvætt í ljósi þess að hafa verið að glíma við eitt mesta tekjufall fyrri og síðari tíma í kjölfar Covid 19 heimsfaraldurs. Verkferlar og úttektir Greinahöfundur miklar líka fyr- ir sér úttektir sem hafa verið í gangi og gerð verkferla. Við erum svo sannarlega búin að standa í heilmiklum úttektum til þess að styrkja stjórnsýsluna og erum stolt af því. Með þeim fáum við mikil- væga yfirsýn yfir verkefnin og þá verkferla sem til eru en ekki síð- ur hverja vantar og hvar úrbóta er þörf. Með þessari gríðarmiklu vinnu er ætlunin að gera stjórn- sýsluna skilvirkari, auka staf- ræna þjónustu, fagþekkingu og setja orkuna þar sem hennar er þörf. Við náum heildarsýn, verð- um vandvirkari og allir róa bátn- um í sömu átt. Þá er fullt tilefni til að benda á það að fulltrúar Fram- sóknarflokks eiga fulltrúa í öllum fasta- og byggingarnefndum sveit- arfélagsins og greinarhöfundur er fullmeðvitaður um öll þau atriði sem fram koma í þessum skrifum en kýs að segja aðeins hálfa söguna í ritverkum sínum. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir Höfundur er formaður byggðar- ráðs Borgarbyggðar. Borubrattir Braggar og stjórnlausir Borgfirðingar Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.