Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 20208 Ekið of hratt VESTURLAND: Kl. 6:30 að morgni þriðjudagsins 3. nóvember var myndavélar- bíl lögreglunnar lagt á Vest- urlandsvegi á móts við Más- staði í Hvalfjarðarsveit. Bíll- inn var á staðnum í um eina klukkustund. Alls fóru 367 bílar hjá á einni klukkustund. Meðalhraði bíla reyndist vera innan við 90 kílómetra á klst. Nokkrir ökumenn óku þó yfir hámarkshraða, sá sem hraðast ók var á 106 kílómetra hraða. Þrír ökumenn hlutu sekt fyrir of hraðan akstur. -frg Masað í síma við akstur VESTURLAND: Lögreglan á Vesturlandi segir alltof mikið um að ökumenn tali í síma við akstur án þess að nota hand- frjálsan búnað. Lögreglumenn á ómerktum bílum verða mest varir við þetta en talsvert er af ómerktum lögreglubílum á ferðinni. Þá er algengt að ökumenn sem nást á mynd í hraðamyndavélum séu einn- ig að tala í símann. Við slíkt brot bætast 40.000 krónur við hraðasekt og getur sektarfjár- hæðin þá orðið tilfinnanleg. -frg Misskilning- ur um grímu- notkun VESTURLAND: Mikið er um að lögreglan fái tilkynn- ingar um brot á reglum um grímunotkun. Algengt er að fólk telji sig ekki þurfa að nota grímu en lögregla minnir á að grímunotkun er ekki valkvæð í verslunum eða stofnunum þar sem ekki er hægt að tryggja 2ja metra nándarmörk, þar skulu allir vera með grímu. -frg Þakplötur fuku í Ólafsvík ÓLAFSVÍK: Síðdegis á mið- vikudaginn barst Neyðarlínu tilkynning um að þakplötur væru að fjúka við Brautarholt í ólafsvík. Var um að ræða plötur sem lágu á jörðinni og fuku þær í átt að gömlu lög- reglustöðinni. ekki varð tjón af hinum fljúgandi þakplöt- um. -frg Árekstur við Grundartanga VESTURLAND: Rétt fyrir miðnætti að kvöldi miðviku- dags barst Neyðarlínu tilkynn- ing um árekstur tveggja bif- reiða á mótum Grundartanga- vegar og Vesturlandsvegar. Þar hafði bifreið sem kom frá Grundartanga verið ekið inn í hlið annarrar bifreiðar með eftirvagn í drætti. Lögregla, tækjabíll slökkviliðs og sjúkra- bíll voru kölluð á staðinn en ekki reyndist um slys á fólki að ræða. Áhöfn tækjabílsins sá um að hreinsa vettvanginn og dráttarbifreið þurfti til að fjar- lægja ökutæki sem voru nokk- uð skemmd. -frg Einangrunar- plötur fuku HELLISSANDUR: Á fimmtudag barst lögreglu til- kynning um fljúgandi plötur frá iðnaðarsvæði á Hellis- sandi. Við nánari athugun reyndist um léttar einangr- unarplötur að ræða sem ekki sköpuðu verulega hættu. Lögregla ræddi við yfirmann þess fyrirtækis sem átti plöt- urnar og gekk hann í að láta hreinsa svæðið. frg Fjúkandi vörubretti AKRANES: Um miðjan dag á fimmtudag barst lögreglu tilkynning um að vörubretti væru að fjúka á bílastæðinu framan við Krónuna á Akra- nesi. Lögregla aðstoðaði við að koma í veg fyrir frekara fok. ekki varð tjón af völd- um brettanna. -frg Þakplötur fuku af heilsu- gæslustöð AKRANES: Neyðarlínu barst tilkynning um að þak- plötur væru að fjúka af Heilsugæslustöðinni á Akra- nesi á fimmtudaginn. Björg- unarsveitarmenn fóru á stað- inn og komu í veg fyrir frek- ara fok. -frg Þakplötur fuku af gistiheimili GRUNDARFJÖRÐUR: Á fimmtudag barst neyðarlínu tilkynning um að þakplötur væru að fjúka af gistiheim- ili í Grundarfirði. Björgun- arsveitarmenn mættu á stað- inn og tryggðu að ekki fykju fleiri plötur. -frg Malbik fauk í Kolgrafafirði KOLGRAFAFJ: Um kvöld- matarleytið á fimmtudag barst Neyðarlínu tilkynning um að malbik væri byrjað að fjúka af Snæfellsnesvegi í Kolgrafafirði. Vegagerðin sendi viðgerðarflokk á stað- inn sem hindraði frekara fok. -frg Hundur fannst dauður BORGARBYGGÐ: Lög- reglu barst tilkynning á föstudag um að golden ret- riever hundur hefði sloppið frá sumarbústað við Svigna- skarð í Borgarfirði. Stuttu síðar bárust lögreglu þau tíðindi að hundurinn hefði fundist dauður á þjóðvegin- um og að ekið hefði verið á hann. ekki er vitað hver ók á hundinn. -frg Litlu munaði að hvalaskoðunar- báturinn Íris losnaði frá bryggju í Grundarfirði í mestu vindhviðun- um síðastliðinn miðvikudag. Íris lá við Miðgarð þannig að vindurinn ýtti henni frá bryggjunni. Svo gaf spotti sig með þeim afleiðingum að framendi skipsins losnaði frá. Það var einungis skjótum viðbrögðum eigenda og hafnarstarfsmanna að þakka að ekki fór verr. Þeir komust um borð í skipið og náðu að festa það að nýju og bæta fleiri landfest- um við. Gul viðvörun var í gangi og til að mynda lá togarinn Akurey við festar í Grundarfirði og beið af sér veðrið á miðvikudaginn. tfk Í fundargerð safna- og menningar- málanefndar Stykkishólmsbæjar frá 4. nóvember síðastliðnum kemur fram að nefndin sé ósammála bók- un atvinnu- og nýsköpunarnefndar um að fjármunum sem bærinn ver í eldfjallasafnið í Stykkishólmi sé betur varið í aðra starfsemi. Í um- ræddri bókun atvinnu- og nýsköp- unarnefndar frá 14. maí síðastlið- inn segir: „Atvinnu- og nýsköpun- arnefnd telur að þeim fjármunum sem bæjarsjóður ver í starfsemi eldfjallasafnsins sé betur varið til stuðnings margra annarra fram- faramála í Stykkishólmi. Starfsemi safnsins hefur ekki náð að þróast nægjanlega sem lifandi safn til að vera aðdráttarafl og stuðningur við ferðaþjónustu í Stykkishólmi. Nefndin leggur til við bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar að segja upp samningi við eiganda eldfjalla- safnsins og kanna aðra og betri möguleika á nýtingu húsnæðis- ins.“ Safnið á sölu eins og Skessuhorn greindi ný- verið frá hefur Haraldur Sigurðs- son, eigandi eldfjallasafnsins, sett safnið á sölu og segir hann ástæð- una vera þá að bærinn sjái sér ekki fært að halda við húsnæði safnsins. Safna- og menningarmálanefnd bæjarins segja það mikinn feng fyrir Hólmara að hafa safnið áfram í bænum, safnmunir séu verðmætir og fágætir. Auk þess kemur fram að ýmsir viðburðir hafi verið haldnir í eldfjallasafninu og spyrja nefnd- armenn sig hvað flokkist því sem lifandi safn eins og það var orðað í bókun atvinnu- og nýsköpunar- nefndar; „ef farið væri eftir bók- un nefndarinnar væru flest söfn af- lögð,“ segir í fundagerð safna- og menningarmálanefndar. Hafa skilning á afsöðu allra aðila Jakob Björgvin Jakobsson bæj- arstjóri gerði grein fyrir forsögu safnsins á fundi nefndarinnar í síð- ustu viku og hvernig aðkoma bæjar- ins hafi verið frá upphafi. „Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir fundi sem haldinn var með forsvarsmönn- um Vulkan ehf. um stöðu safnsins, framtíð þess og ástand samkomu- hússins sem hýsir safnið,“ segir í fundagerðinni. Leggur nefndin áherslu á verðmæti safnsins og gildi þess í menningarlegu-, vísindalegu- og sögulegu samhengi. „Nefnd- in hefur hins vegar bæði skilning á forgangsröðun Stykkishólmsbæj- ar, hvað varðar fjárfestingar næsta árs, og þeirri afstöðu Haraldar Sig- urðssonar, eldfjallafræðings, sem fram kemur í tilynningu frá hon- um. Í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin hvetur safna- og menn- ingarmálanefnd bæjarstjórn og for- svarsmenn Vulkan ehf. til þess að leita allra leiða til að halda safninu í Stykkishólmi, eins og ávallt var stefnt á að yrði framtíðarstaðsetn- ing safnsins, með það að leiðarljósi að finna þessu merkilega safni ann- an hentugri stað í Stykkishólmi. arg Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir fjárveitingu á fjáraukalögum til að koma til móts við hjúkrun- arheimilin í landinu vegna viðvar- andi taprekstrar. Stefnt er að slíku uppgjöri þegar rekstrarniðurstöður ársins liggja betur fyrir. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá heilbrigð- isráðuneytinu. „Þegar fullnægjandi upplýsingar frá hjúkrunarheimil- unum liggja fyrir munu Sjúkra- tryggingar Íslands meta gögnin og afgreiða.“ Hluti sveitarfélaga í landinu hef- ur sagt upp þjónustusamningum um rekstur hjúkrunarheimila. Þá hafa Samtök fyrirtækja í velferðar- þjónustu undanfarin misseri ítrekað haldið fram að stjórnvöld hyggist ekki ætla að bæta hjúkrunarheimil- um aukinn kostnað sem rekja megi til COVID-19 faraldursins. „Þetta gera þau [samtökin] þrátt fyrir yf- irlýsingar stjórnvalda um annað. Sjúkratryggingar Íslands hafa óskað eftir gögnum frá hjúkrunarheimil- um þar sem sýnt er fram á hve hár þessi kostnaður er og í hverju hann er fólginn og stendur sú vinna enn yfir,“ segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. mm/ Ljósm. Shutterstock. Hremmingar í höfninni Vilja halda Eldfjallasafninu í Stykkishólmi „Það er gott að hafa þessa steina vel við vöxt, það verður þá ekki farið neitt með þá,” var Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hér að segja við jarðfræðinginn Steingrím J Sigfússon og þáverandi fjármálaráðherra, þegar sá síðarnefndi fékk leiðsögn um safnið við vígslu þess vorið 2009. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Ætla að bæta hjúkrunarheimilum upp taprekstur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.