Skessuhorn - 11.11.2020, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202024
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Fulltrúi Framsóknarflokksins í
sveitarstjórn Borgarbyggðar fór
mikinn á dögunum í grein sem
hann kallaði „Braggamál í Borg-
arbyggð.“ Þar gagnrýnir hann
háan kostnað við hönnun á tveim-
ur skólalóðum sem sveitarfélagið
stendur fyrir nýbyggingu og end-
urbótum á. Gekk hann svo langt
að tala um óstjórn og að verið væri
að slá ryki í augu íbúa. ein leið til
þess að slá ryki í augu íbúa er að
setja fram í grein sem þessari sam-
anburð og fullyrðingar sem ekki
standast skoðun. Hann birti svo
aðra grein í kjölfarið „Stjórnleysi í
framkvæmdum“ þar sem farið var
í álíka villandi umræðu um fram-
kvæmdir við Grunnskóla Borgar-
ness og velur þar að skauta fram
hjá mörgum staðreyndum á þeirri
vegferð. Hann byrjar reyndar á
því að leiðrétta hluta af þeim stað-
reyndarvillum sem hann hélt fram
í fyrri grein sinni en telur undir-
ritaðri rétt að leiðrétta nokkur at-
riði til viðbótar en ekki verður list-
inn þó tæmandi í einni grein.
Berum saman epli
og appelsínur
Viðbygging og endurbætur á
Grunnskólanum í Borgarnesi er
gríðarlega metnaðarfullt og mikil-
vægt verkefni sem hefur heppnast
einstaklega vel.
Vissulega er rétt að hönnun og
þarfagreining hefði þurft að vera
ítarlegri í upphafi og þess vegna
var fenginn eftirlitsaðili að verk-
efninu sem kostaði að sjálfsögðu
sitt en mun betri yfirsýn náð-
ist að sama skapi. Þess ber þó að
geta að þegar það verk fór af stað
á síðasta kjörtímabili voru einmitt
framsóknarmenn í meirihluta, þó
greinahöfundur sjálfur hafi ekki
verið í sveitarstjórn á þeim tíma. Í
upphafi var ákveðið að fara í nauð-
synlegt viðhaldi á hluta skólans
og nýbyggingu á matsal og sam-
komusal. Upphafleg áætlun gerði
þó engan veginn ráð fyrir því
mikla viðhaldi sem kom í ljós við
framkvæmdir að þurfti að bregð-
ast við. Verkið í raun stökkbreytt-
ist frá upphaflegum áætlunum en
það er trú mín þá og nú að réttar
ákvarðanir hafi verið teknar þeg-
ar ákveðið var að ráðast á myglu,
ónýtt þak, ólöglega einangrun og
loftræstingu sem hafði sungið sitt
síðasta. Það hafði gleymst að gera
ráð fyrir tækjum í eldhúsið og hús-
búnaði í matsalinn og varðar fram-
anrakið allt ákvarðanir sem teknar
voru eftir að upphaflega áætlunin
var sett fram. Það sem eftir situr er
að hönnun og eftirlit var stór þátt-
ur sem kostaði sitt og á eftir að yf-
irfara með eftirlitsaðila og hönn-
uði. Þetta veit greinarhöfundur
vel en velur að greina ekki frá því.
Þá að lóðinni...
Hönnun á lóð Grunnskólans í
Borgarnesi var einnig metnaðar-
full og var að miklu leyti unnin í
samráði við nemendur og starfs-
fólk skólans. Nemendur voru
fengnir til að kortleggja núverandi
notkun sína á skólalóðinni og tjá
hugmyndir sínar um hvers kyns
skólalóð samræmdist helst þeirra
áhugamálum og þörfum. Ljóst var
að endanleg niðurstaða úr þeirri
vinnu var ívið of metnaðarfull og
þurfti byggingarnefnd að fara í að
skala verkefnið niður og áfanga-
skipta því til að minnka kostnað
við lóðina. Hugmyndin var samt
sem áður að eiga teikningar af
heildarhönnun, sem væri svo hægt
að framkvæma eftir á næstu árum
og smá betrumbæta þá lóðina.
Þó að öll lóðin hafi verið hönn-
uð, hafi einungis verið ákveðið að
framkvæma fyrsta og annan hluta
hennar og því hafi framkvæmdin
verið mun ódýrari en teikningar
gerðu ráð fyrir. Því er ekki sam-
anburðarhæft að nota kostnað við
hönnun á heildarlóðinni sem ein-
hverskonar hlutfall af kostnaði við
raunverulegar framkvæmdir. Það
gefi einfaldlega ranga mynd.
Gera þurfti ákveðnar breyting-
ar vegna þessa. Höfundur grein-
arinnar talar um framúrkeyrslu á
framúrkeyrslu ofan og tekur þetta
sem dæmi en ekki er um framúr-
keyrslu að ræða þó breytingar á
hönnun og áfangaskipting hafi
gert hönnun kostnaðarsamari.
Frumhönnun og
fullnaðarhönnun ekki
sami hluturinn
Þegar kemur að framkvæmdinni á
Kleppjárnsreykjum kom í ljós að
greinarhöfundur virtist ekki hafa
lesið önnur ákvæði samningsins
um hönnun á skólalóð á Klepp-
járnsreykjum en það sem snýr að
upphæðinni. Í 4. gr. samningsins
kemur fram að um var að ræða
forhönnun bæði leik- og grunn-
skólalóðar ásamt frumkostnaðar-
mati. einhver virðist þó hafa bent
greinarhöfundi á þessa rangfærslu
sem hann hafði þó fyrir að leið-
rétta. Þá fjallar sá samningur sem
greinarhöfundur lagði til grund-
vallar ályktunum sínum ekki einu
sinni um heildarhönnunarkostnað
leikskólalóðar heldur frumhönn-
un lóðarinnar.
Svo við rýnum aðeins nánar
ofan í þá rangfærslu. Tímafjöldi
í samningi um hönnun á leik- og
grunnskólalóð Kleppjárnsreykja
ætlaður í frumhönnun og kostn-
aðarmat var 150 klst, en um er
að ræða tvær lóðir- bæði leik og
grunnskóla ásamt nærumhverfi
stofnananna og spannar það yfir
2ha svæði. Það sér það hver maður
að 2 milljónir króna myndu aldrei
duga fyrir slíku verkefni þar sem
mikil vinna liggur að baki fullnað-
arhönnun á svo stóru verki, þrátt
fyrir að greinarhöfundur reyni að
gera lítið úr þessari vinnu með
því að kalla hana bara teikningar
á blaði. Mikið af fagteikningum
þurfa að liggja til grundvallar svo
slík verk uppfylli lögbundin skil-
yrði og að öryggi og velferð þeirra
barna sem koma til með að nota
lóðina séu höfð í fyrirrúmi.
Notum réttar tölu til
samanburðar
Svo er það samanburðurinn. Höf-
undur fer mikinn í því að bera sam-
an kostnað við hönnun á skólalóð-
um og framkvæmd Reykjavíkur-
borgar við endurbætur á Bragg-
anum í Nauthólsvík og talar um
að hönnun á skólalóðum í Borg-
arbyggð hafi farið meira fram úr
í prósentum talið en fyrrnefnd
framkvæmd í Reykjavík. Hann kýs
að taka ekki fram við hvaða kostn-
aðaráætlanir hann er að miða.
Sennilega frumkostnaðaráætlan-
ir og grunntímafjölda en eins og
rakið var hér að ofan og eru eins
og flestir vita, ekki eitthvað sem
gert er ráð fyrir að endurspegli
endanlegan kostnað við hönn-
un. Þetta er því með öllu fráleitur
samanburður.
Að kasta grjóti
úr glerhúsi
Síðasta og kannski alvarlegasta
villan er svo sennilega sú að halda
því fram að meirihluti sveitar-
stjórnar ætli sér ekki að taka alvar-
lega þá stöðu sem komin er upp í
fjármálum sveitarfélagsins vegna
heimsfaraldursins. Að ekki standi
til að sýna aðhald í rekstri né skyn-
semi í framkvæmdum. Þetta birt-
ir hann áður en lögð er fram fjár-
hags- og framkvæmdaráætlun og
áður en vinnufundur sveitarstjórn-
ar um sömu áætlanir var haldinn.
Á þeim fundi kom einmitt fram að
allra leiða verði leitað til að gæta
aðhalds og fara skynsamlega með
fjármuni. Að á næsta ári verði fyrst
og fremst áherslan lögð á að lok-
ið verði við þær framkvæmdir sem
nú eru í gangi og að hefja undir-
búning fyrir næstu framkvæmdir
á skólahúsnæði og íþróttamann-
virkjum. Þá leggur meirihluti
sveitarstjórnar upp með að skila
rekstri sveitarfélagsins nokkurn
veginn í jafnvægi, sem er mjög já-
kvætt í ljósi þess að hafa verið að
glíma við eitt mesta tekjufall fyrri
og síðari tíma í kjölfar Covid 19
heimsfaraldurs.
Verkferlar og úttektir
Greinahöfundur miklar líka fyr-
ir sér úttektir sem hafa verið í
gangi og gerð verkferla. Við erum
svo sannarlega búin að standa í
heilmiklum úttektum til þess að
styrkja stjórnsýsluna og erum stolt
af því. Með þeim fáum við mikil-
væga yfirsýn yfir verkefnin og þá
verkferla sem til eru en ekki síð-
ur hverja vantar og hvar úrbóta
er þörf. Með þessari gríðarmiklu
vinnu er ætlunin að gera stjórn-
sýsluna skilvirkari, auka staf-
ræna þjónustu, fagþekkingu og
setja orkuna þar sem hennar er
þörf. Við náum heildarsýn, verð-
um vandvirkari og allir róa bátn-
um í sömu átt. Þá er fullt tilefni til
að benda á það að fulltrúar Fram-
sóknarflokks eiga fulltrúa í öllum
fasta- og byggingarnefndum sveit-
arfélagsins og greinarhöfundur er
fullmeðvitaður um öll þau atriði
sem fram koma í þessum skrifum
en kýs að segja aðeins hálfa söguna
í ritverkum sínum.
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
Höfundur er formaður byggðar-
ráðs Borgarbyggðar.
Borubrattir Braggar og
stjórnlausir Borgfirðingar
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is