Skessuhorn - 11.11.2020, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 20206
Mannbjörg
er maður féll í
vatnið
SKORRADALUR: Maður
féll af sit-on-top kajak sínum
í Skorradalsvatn á þriðja tím-
anum síðastliðinn miðviku-
dag. Neyðarlínu barst tilkynn-
ing um atvikið kl. 14:49. Félagi
mannsins tilkynnti um slysið en
hann komst ekki að félaga sín-
um vegna mikils vinds. Maður-
inn var vel búinn, í þurrgalla og
flotvesti. Björgunarsveitir voru
kallaðar á staðinn og náðu fé-
lagar í Björgunarfélagi Akraness
manninum á þurrt. Lögregla og
sjúkrabíll voru sömuleiðis köll-
uð á staðinn en ekki þurfti að
flytja manninn á sjúkrahús þar
sem hann sagðist vera við góða
heilsu. -frg
Rafmagn fór
af á tveimur
stöðum
SNÆFELLSNES: Sökum
hvassviðris síðastliðinn fimmtu-
dag fór rafmagn af dreifikerfi
Rarik á tveimur stöðum. Fyrst
varð straumlaust í Fróðár-
hreppi á Snæfellsnesi, frá ólafs-
vík að Fróðá, frá klukkan 14 til
16. Síðari bilunin varð á Skóg-
arstrandarlínu. Þar sló út raf-
magni klukkan 19 en viðgerð
lauk klukkan 23 um kvöldið.
-mm
Fjölga
líknarrýmum
KÓP: Heilbrigðisráðherra hef-
ur tryggt Landspítala aukið fjár-
magn til að fjölga líknarrým-
um við líknardeildina í Kópa-
vogi úr 12 í 16. „Ákvörðunin
er liður í aðgerðum til að létta
álagi af bráðamóttöku Land-
spítala og bæta um leið aðbúnað
og þjónustu við sjúklinga með
sjúkdóma á lokastigi. Áætlaður
kostnaður vegna þessa nemur
rúmum 100 milljónum króna á
ári,“ segir í tilkynningu frá heil-
brigðisráðuneytinu. -mm
Árvekniátak í
umferðinni
LANDIÐ: Árlegur alþjóðleg-
ur minningardagur um fórn-
arlömb umferðarslysa verð-
ur sunnudaginn 15. nóvember.
Að þessu sinni verður minning-
ardagurinn sniðinn að sérstök-
um aðstæðum í samfélaginu. Í
stað hefðbundinnar minningar-
stundar við þyrlupallinn í Foss-
vogi verður árvekniátak í sam-
félaginu um umferðaröryggi
dagana 13.-15. nóvember. Til-
gangurinn með deginum er að
minnast þeirra sem látist hafa
í umferðinni, leiða hugann að
ábyrgð hvers og eins í umferð-
inni en ekki hvað síst að þakka
þeim viðbragðsaðilum sem veita
hjálp og björgun. -mm
Ný stjórn í
Landssambandi
kúabænda
LANDIÐ: Aðalfundur Lands-
samtaka kúabænda fór fram á
netinu í síðustu viku. Á hon-
um var Herdís Magna Gunn-
arsdóttir, bóndi á egilsstöð-
um á Fljótsdalshéraði, kjörin
formaður. Hún er jafnframt
fyrsta konan til að gegna því
embætti. Með Herdísi í stjórn
eru Bessi Freyr Vésteinsson í
Hofsstaðaseli, Rafn Bergsson
í Hólmahjáleigu, Sigurbjörg
Ottesen á Hjarðarfelli í eyja-
og Miklaholtshreppi og Vaka
Sigurðardóttir á Dagverðar-
eyri. -mm
Skila þarf skýrslu
um bústofn og
fóður
LANDIÐ: Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið minn-
ir á að opnað hefur verið fyr-
ir skráningar á haustskýrslum
fyrir árið 2020 í Bústofni. Í
samræmi við lög um búfjár-
hald er öllum umráðamönn-
um búfjár skylt að skila árlega
rafrænni haustskýrslu í Bú-
stofni, eigi síðar en 20. nóvem-
ber. Í haustskýrslunni skal
koma fram fjöldi ásetts bú-
fjár af hverri tegund, allt búfé
í hagagöngu og á hvaða jörð
eða landspildu það er. einn-
ig skal koma fram gróffóð-
uruppskera af hefðbundnum
nytjatúnum og leigutúnum og
fyrningar, auk upplýsinga um
aðra fóðuröflun og landstærð-
ir. Minnt er á að skilyrði fyr-
ir stuðningsgreiðslum í land-
búnaði eru fullnægjandi skil á
haustskýrslu. -mm
Sjávarútvegsráðherrar Ís-
lands og Færeyja hafa náð
samkomulagi um fiskveiði-
heimildir Færeyinga inn-
an íslenskrar lögsögu fyrir
næsta ár og um gagnkvæman
aðgang að veiðum í lögsögu
landanna fyrir norsk-íslenska
síld og kolmunna. Heimildir
Færeyinga til veiða á botnfiski
verða þær sömu og í ár eða
5.600 tonn og hámark þess
sem veiða má af þorski verð-
ur óbreytt eða 2.400 tonn.
Vegna bágs ástands keilustofns-
ins voru ráðherrarnir sammála um
að keiluafli Færeyinga yrði minni
en verið hefur. Heimildir þeirra til
veiða á keilu lækka því úr 650 tonn-
um í 400 tonn.
Samið var um að Færeyingar geti
veitt loðnu við Ísland sem nem-
ur 5% af ákvörðuðum heildarafla
á vertíðinni 2020/21 en þó að há-
marki 30.000 tonn. Áfram gilda
sömu takmarkanir og verið hafa á
heimildum þeirra til að verka loðnu
um borð eða landa í Færeyjum til
manneldis.
Samkomulagið felur í sér gagn-
kvæman aðgang til veiða á kol-
munna og norsk-íslenskri síld með
sama hætti og verið hefur undan-
farin tvö ár. Þannig geta allt að 15
íslensk skip stundað síld- og
kolmunnaveiðar í lögsögu
Færeyja samtímis. Þá er ís-
lenskum skipum heimilt að
veiða allt að 1.300 tonn af
makríl af aflaheimildum Fær-
eyja sem meðafla við veið-
arnar.
„Samningurinn er mikil-
vægur fyrir báðar þjóðirnar.
Aðgengi að lögsögu Færeyja
til kolmunnaveiða er mikil-
vægt fyrir íslensk skip þar sem
lítið hefur verið af kolmunna
í lögsögu Íslands á undanförnum
árum. Fyrir Færeyjar er samning-
urinn einnig mjög mikilvægur, bæði
vegna þeirra veiðiheimilda sem þeir
fá í bolfiski og loðnu við Ísland en
einnig vegna aukinna veiða þeirra
á norsk-íslensku síldinni í íslenskri
lögsögu á undanförnum árum,“
segir í tilkynningu frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu. mm
Landbúnaðarráðuneytinu bárust
209 gild tilboð um kaup og sölu
á tilboðsmarkaði fyrir greiðslu-
mark mjólkur 2. nóvember síðast-
liðinn. Þetta var jafnframt síðasti
markaðurinn á yfirstandandi ári og
aðilaskipti greiðslumarks á mark-
aðnum taka gildi frá 1. janúar nk.
Hámarksverð greiðslumarks sam-
kvæmt reglugerð frá 30. júlí sl. er
þrefalt afurðastöðvaverð, nú 294 kr.
fyrir hvern lítra mjólkur. Nær öll
tilboð tóku mið af settu hámarks-
verði. Fjöldi gildra tilboða um sölu
á greiðslumarki voru 17, en 192
gild kauptilboð bárust. eitt kaup-
tilboð var undir jafnvægisverði.
Boðnir voru til sölu 1.948.334 lítrar
en óskað kaupa á 9.218.000 lítrum.
Sérstök úthlutun til nýliða er 5%
af sölutilboðum eða 97.399 lítrar.
Fjöldi gildra kauptilboða frá ný-
liðum voru 21. Landbúnaðarráðu-
neytið mun nú senda öllum tilboðs-
gjöfum upplýsingar um afgreiðslu
tilboða og gera breytingar á skrán-
ingu greiðslumarks þegar uppgjör
hefur farið fram.
mm
Óskað var eftir níu milljónum
lítra en tvær milljónir falboðnar
Loðnuveiðar. Ljósm. úr safni: Friðþjófur Helgason.
Samið um gagnkvæmar
veiðar við Færeyinga