Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202012
Síðastliðinn mánudag var unnið að
lagningu bundins slitlags á göngu-
stíg meðfram sjávarkambinum við
Vesturgötu og Krókalón á Akranesi.
Aðalverktaki er Skóflan hf. sem var
lægstbjóðandi í verkið. Þrír buðu
í verkið og reyndist tilboð Skófl-
unnar hagstæðast en það var um
6,6 milljónum króna yfir kostnað-
aráætlun. Það er malbikunarstöðin
Hlaðbær Colas sem leggur malbik-
ið. Stígurinn er um 750 metrar að
lengd og liggur á milli athafnasvæð-
is Skagans og Ægisbrautar. frg
Umhverfisviðurkenningar Akra-
neskaupstaðar fyrir árið 2020 voru
afhentar föstudaginn 30. október.
Vegna þeirra takmarkana sem í
gildi eru vegna faraldursins var sá
háttur hafður á að ráðsmenn skipu-
lags- og umhverfisráðs mætti heim
til fólks og afhenti viðurkenning-
arnar þar. Dagskránni stýrði Ragn-
ar B. Sæmundsson og með hon-
um í för voru ólafur Adolfsson
og Guðríður Sigurjónsdóttir. Við-
urkenningarnar voru vandaður
skjöldur, innrammað skjal og gjafa-
bréf hjá Jóni Guðmundssyni garð-
yrkjumanni. Dómnefnd skipuðu
þau Helena Guttormsdóttir lekt-
or LbhÍ, Sindri Birgisson umhverf-
isstjóri Akraneskaupstaðar og Ása
Katrín Bjarnadóttir Bs. í landslags-
arkitektúr LbhÍ. Nefndin fór í vett-
vangsferðir í júlí og tók út tilnefn-
ingar. Þau unnu m.a. með fagur-
fræði, fjölbreytileika og samtal við
almenningsrými. Markmiðið var að
vekja í víðum skilningi athygli á at-
riðum sem skipta uppbyggingu og
framtíð bæjarins máli.
Samfélagsverðlaun hlutu bræð-
urnir Sigurður Arnar Sigurðsson
og Ásgeir Guðmundur Sigurðsson
fyrir hreinsun umhverrif í almenn-
ingsrými bæjarins og endurvinnslu
um langt árabil.
Hjónin Maria Antonía de Sa Ro-
drigues og Jón elías Jónsson fengu
viðurkenningu fyrir einbýlishúsa-
lóð sína við Vesturgötu140, en lóð-
in fékk fjölda tilnefninga. Í einni
þeirra segir m.a. „mikil natni hef-
ur verið lögð við smáatriði og fjöl-
margar tegundir blóma og annars
gróðurs er þarna að finna. Fallegur
garðskáli, brýr, skreytingar og fjöl-
breytt flóra sem eigendur hafa kom-
ið sér upp smátt og smátt undanfar-
in ár. Falin perla á Skaganum.“
Íbúar fjölbýlishússins að Skaga-
braut 5 hlutu hvatningarverðlaun
hafa en þeir hafa undanfarið unn-
ið að miklum endurbótum á þessu
þriggja hæða steinhúsi frá 1949.
Hvatningar viðurkenning til eig-
enda er veitt fyrir vel heppnaðar
umbætur á virðulegu húsi sem er
áberandi í götumynd í miðkjarna
bæjarins.
Gamalt, stórt og fallegt gullregn
við íbúðarhús að Bjarkargrund 37
var valið tré ársins 2020. eigend-
ur hússins eru Jóhanna Arnbergs-
dóttir og Jón Sævar Hallvarðsson.
Tréð sem var gróðursett snemma
á níunda áratugnum er með öflug-
an stofn og setur svip á aðkomu og
götumynd. Tréð myndar umgjörð
um inngang hússins og gerir fram-
hlið þess einstaklega aðlaðandi.
Tréð er formfallegt og blómstraði
stórkostlega í sumar.
Heiðarbraut 51 í eigu hjónanna
Mörtu Sigurðardóttur og Tómasar
Sigurðssonar fékk viðurkenningu
fyrir einstaklega fallega aðkomu
sem býður fólk velkomið að húsi í
rótgrónu hverfi. Gróðri er vel við
haldið og afar fjölbreyttar tegundir
í lit og formi.
frg/ Ljósm. Akraneskaupstaður.
Starfsmenn Hlaðbæjar Colas við vinnu sína.
Göngustígur við
Krókalón malbikaður
Unnið að malbikun göngustígs við Krókalón.
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar árið 2020
Heiðarbraut 51 í eigu hjónanna Marta
Sigurðardóttir og Tómas Sigurðsson
fékk viðurkenningu fyrir einstaklega
fallega aðkomu.
Samfélagsverðlaun hlutu bræðurnir Sigurður Arnar Sigurðsson og Ásgeir Guð-
mundur Sigurðsson fyrir hreinsun umhverrif í almenningsrými bæjarins og endur-
vinnslu um langt árabil. Ljósmyndina tók Jón Atli Sigurðsson, bróðir þeirra.
Hjónin Maria Antonía de Sa Rodrigues
og Jón Elías Jónsson fengu viðurkenn-
ingu fyrir einbýlishúsalóð sína við
Vesturgötu140, en lóðin fékk fjölda
tilnefninga.
Íbúar fjölbýlishússins að Skagabraut
5 hlutu hvatningarverðlaun hafa en
þeir hafa undanfarið unnið að miklum
endurbótum á þessu þriggja hæða
steinhúsi frá 1949.
Gamalt, stórt og fallegt gullregn við
íbúðarhús að Bjarkargrund 37 var
valið tré ársins 2020. Eigendur hússins
eru Jóhanna Arnbergsdóttir og Jón
Sævar Hallvarðsson.
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar síðastliðinn fimmtudag var
samþykkt að hafna tilboði Verk-
fars ehf. í húseignina Suðurgötu
108. Í bókun meirihluta bæjarráðs
segir að tilboðið hafi ekki uppfyllt
skilyrði útboðsins. „Suðurgata 108
er því áfram til sölu án sérstakra
skilyrða um lágmarksfjárhæð og
önnur atriði sem tilgreind voru
á fundi bæjarráðs þann 29. októ-
ber sl,“ segir í bókun meirihlut-
ans. elsa Lára Arnardóttir og Val-
garður Líndal Jónsson áréttuðu í
bókun sinni að við sölu fasteigna
Akraneskaupstaðar gildi regl-
ur um sölu eigna í eigu Akranes-
kaupstaðar og stofnana hans sem
samþykktar voru 2014. Því til við-
bótar vegna sölu þessarar tilteknu
eignar gilda sérstakar kvaðir um
viðhald, kauprétt og forkaups-
rétt sbr. samþykkt bæjarráðs frá
14. maí 2020. Rakel óskarsdóttir
(D) lýsti sig andsnúna sölu húss-
ins og lagði fram bókun: „Bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins árétt-
ar fyrri afstöðu sína í málinu og er
því mótfallin að húsið verði selt.
Þykir bæjarfulltrúanum miður að
ákvörðun um að rífa húsnæðið og
úthluta lóðinni að nýju hafi verið
snúið við af bæjarfulltrúum Sam-
fylkingarinnar og Framsókn og
frjálsum.“
mm
Suðurgata 108 á Akranesi. Ljósm. frg.
Höfnuðu tilboði í húseign og
bjóða áfram til sölu