Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Qupperneq 14

Skessuhorn - 11.11.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202014 Jónína eiríksdóttir er starfsmaður Varaeintakasafns Landsbókasafns Íslands sem staðsett er í Reykholti í Borgarfirði. Hún segir að sér líði vel í gamla skólahúsinu innan um allar þessar bækur, blöð og tímarit sem þar er að finna. „Bækurnar skapa mína stemningu og hér er afskap- lega gott andrúmsloft. Ég ólst upp við mikinn bókakost á æskuheimil- inu og mér hefur alla tíð liðið vel innan um bækur. Þannig má segja að það séu fyrir mig ákveðin forrétt- indi að fá að starfa við það sem veit- ir mér ánægju og gerir gagn. Hér fæ ég virkilega mína andlegu og fag- legu næringu,“ segir Jónína. Blaða- maður Skessuhorns fékk að kíkja í heimsókn á vinnustað Jónínu undir lok síðustu viku. Þar stýrir hún mik- ilvægu hlutverki við varðveislu alls prentaðs efnis sem komið hefur út frá 1845. Geymir safnið í Reykholti á annað hundrað þúsund titla og þar af leiðandi milljónir tölublaða. Byggir á lögum frá 1886 Sjálfsagt gera sér ekki allir grein fyrir hvernig söfnun og varðveislu útgef- ins prentefnis hér á landi er háttað. Hvernig tryggir þjóðin varðveislu bókar, bæklings, dagblaðs, auglýs- ingablaðs og jafnvel sálmaskrárinn- ar, sem við gefum út og handleik- um þegar einhver okkur nákom- inn fellur frá? Jú, slík varðveisla er tryggð með lögum og hefur verið um langt skeið. Lög um skylduskil til safna voru fyrst sett árið 1886 og hafa reglulega verið uppfærð í takti við tímans hjól og breytt lands- lag í útgáfu. Til dæmis hefur verið aukið inn í lögin hvernig varðveita skuli efni sem einungis er gefið út á netinu. Tilgangur skilaskyldu er að tryggja að unnt sé að varðveita ís- lenska menningararfinn um ókom- in ár. Þannig má vinna og gefa út tæmandi skrá um þetta efni og varð- veita þannig útgáfusögu þjóðarinn- ar um ókomnar aldir með öruggum hætti. Í lögunum er tryggt að efni varðveislusafna sé ávallt tiltækt til nota vegna rannsókna og fræða. Samkvæmt lögunum eru þrjú skilgreind varðveislusöfn. Það eru Landsbókasafn Íslands, Amtsbóka- safnið á Akureyri og Kvikmynda- safn Íslands. Landsbókasafnið sér um að veita viðtöku og kalla inn skyldueintök prentaðs og stafræns efnis og er tónlist þar ekki undan- skilin. Kvikmyndasafnið sér um lif- andi myndir eins og nafn þess ber með sér. Sá sem gefur út efni, sem fellur undir skilaskyldu laganna, skilar fjórum prentuðum eintökum til Landsbókasafnsins og þremur eintökum af hljóðritum. Venjan er að prentsmiðjur og fjölritunarstofur annist skylduskil innanlands en út- gefendur á því efni sem prentað er í útlöndum. Hinum fjórum prent- eintökum er svo skipt niður í hús í ólíkum landshlutum til að tryggja öryggið. Jafnvel þótt brenni á ein- um stað, verða áfram til þrjú eintök af öllu prentuðu efni. Landsbóka- safn heldur eftir tveimur eintökum skylduskilanna, öðru á svokölluðu Íslandssafni og hinu til nota í Há- skólasafninu, sem er hluti Lands- bókasafnsins. eitt eintak fer til varðveislu í Amtsbókasafninu á Ak- ureyri og fjórða eintakið fer í hirslur Varaeintakasafnsins, sem starfrækt er í Reykholti. Þar hefur það verið í tvo áratugi og er til húsa í austur- álmu gamla héraðsskólahússins sem byggt var um 1930. Jónína eiríks- dóttir bókasafnsfræðingur og kenn- ari er starfsmaður Landsbókasafns- ins í Reykholti. Hún er þar í hálfu starfi en nýverið lét hún af starfi verkefnisstjóra í Snorrastofu. Hug- ur hennar stefnir á að halda áfram störfum við Landsbókasafnið þar til hún þarf að hætta sökum aldurs um sjötugt. Varaeintakasafnið er á þremur hæðum í húsinu í þeim hluta þess sem lengst þjónaði sem skólastofur og matsalur nemenda Héraðsskólans í Reykholti. Hallgrímur ruddi brautina Áður en lengra er haldið er gaman að velta því fyrir sér hvort þeir sem sömdu lögin um skylduskil hafi haft í huga forsjálni Hallgríms Péturs- sonar prests og sálmaskálds forðum daga. Þannig var nefnilega að árið 1660 hafði Hallgrímur ritað Pass- íusálmana sem enn í dag lifa góðu lífi og lesnir eru upp í kirkjum sem næst föstudeginum langa. Vafalít- ið hefur skáldið gert sér grein fyrir að þarna hefði hann ritað verk sem gæti lifað með þjóðinni um aldir. Til að draga úr líkum á að þeir færu forgörðum ritaði Hallgrímur Pass- íusálmana í fjórriti og sendi jafn mörgum konum og fól þeim „for- svar“ þeirra eins og hann orðaði það, með beiðni til þeirra um að sjá til þess að verkinu yrði ekki „varp- að undir bekk.“ Þessar konur voru þær Ragnhildur Árnadóttir í Kald- aðarnesi, Helga Árnadóttir í Híta- rdal, Kristín Jónsdóttir í einars- nesi og Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti. Konurnar hafa orðið við beiðni séra Hallgríms og sálmarnir lifa. Hvort það er tilviljun eða ekki, þá er einmitt kallað inn í fjórriti í skylduskil allt efni sem út er gefið í dag og það varðveitt. Allt prentað efni skal varðveita Landsbókasafnið varð 200 ára árið 2018 og því með elstu stofnunum hér á landi. „Lög um skylduskil eru gömul en hafa verið uppfærð og eru því í fullu gildi. Nú hafa bæst við ýmis fleiri birtingarform hug- verka eins og hljóðbækur, netút- gáfur og vefsíður, en allt þetta efni skal varðveita fyrir komandi kyn- slóðir hvernig sem birtingarform- ið er. Nú eru til dæmis tekin afrit í Landsbókasafninu af öllum vefj- um sem bera endinguna .is í sér- stakt vefsafn (vefsafn.is) sem nú hef- ur verið gert aðgengilegt fyrir al- menning. Söfnunarskyldan nær því yfir allt útgefið efni á hvaða formi sem það birtist fyrst. Frá 1977 ná skylduskilin til tónlistarinnar líka,“ segir Jónína í upphafi samtals okk- ar. Safnið í Reykholti er skilgreint sem Varaeintakasafn Landsbóka- safns Íslands. „Ég er starfsmaður Landsbókasafns og fæ því reglulega sendingar að sunnan sem búið er að forskrá inn í Gegni (leitir.is), sam- eiginlegan gagnagrunn allra bóka- safna á Íslandi. Ég fer höndum um sendinguna, pakka þeim eintökum inn sem þörf er á, og kem öllu efn- inu fyrir á sínum endanlega stað á efri hæðum hússins. Númeraröð tölvukerfisins heldur utanum stað- setninguna þannig að hægt verði að ganga að efninu síðar. Margir gera sér ekki grein fyrir að hér erum við ekki einvörðungu að tala um bækur, heldur öll dagblöð, vikublöð, lands- hlutablöð, tímarit, sálmaskrár allt til auglýsingabæklinga verslana og fyrirtækja. Sagnfræðingar framtíð- arinnar eiga því að geta fundið bók- staflega allt prentað efni, sem gef- ið hefur verið út og ætlað almenn- ingi,“ segir Jónína. Hún sýnir blaða- manni ofan í kassa með nokkurra ára gömlum auglýsingabæklingum þar sem meðal annars má sjá tilboð ferðaskrifstofa um sólarlandaferðir, bæklinga um vikutilboð í Bónus, en auk þess útfararskrár genginna Ís- lendinga, bækur, viðburðaskrár og raunar allt þar á milli. Allt pentað efni síðustu 175 ára „Hér í Reykholti er varðveitt allt efni sem komið hefur út á prenti frá árinu 1845. Allt sem er eldra telst til fágætis og er varðveitt í sérstöku birgi í Þjóðarbókhlöðunni við Arn- grímsgötu vestur á melum í Reykja- vík. Í titlum talið er eintakafjöldi, sem varðveittur er hér í Reykholti, kominn yfir eitthundrað þúsund, en ef talin væru öll tölublöð hvers tit- ils verður fjöldinn margfalt meiri,“ segir Jónína. Þannig má til gam- ans geta að tölublöð Skessuhorns frá upphafi eru um 1.140 talsins og er þau að finna í nokkrum hillum á þriðju hæð byggingarinnar í færan- legum stálhillum merktum staðar- blöðum, flokkuð í stafrófsröð. Við hlið Skessuhornsins má sjá blöð eins og Sunnlenska fréttablaðið, Skutul, Siglfirðing og önnur hér- aðsfréttablöð, flest gengin. Tíma- rit eiga sinn stað, dagblöð annan og svo framvegis. Bókum er svo raðað eftir stærð í númeraröð sem Gegn- ir heldur utanum og notendur geta séð á internetinu. Aðgát skal höfð... „Í Gegni er hægt að fletta upp og athuga hvort bók er til í söfnum landsins og hvar hana er að finna. Gegnir er leitarbær í leitargátt- inni leitir.is, sem margir þekkja nú orðið. Sé fólk t.d. að leita eftir ein- hverju ákveðnu útgefnu efni er það rétti staðurinn til að leita fyrst. Þangað er ekki síður mikilvægt að leita þegar fólk fær í fangið bækur að erfðum, sem það ræður ekki við að hýsa sjálft eða þarf að koma bók- um af sér af einhverjum ástæðum. Í Gegni er hægt að sjá hvort efnið er til í nágrannasafninu eða sjálfu móðursafni landsins, Landsbóka- safninu. Bókasöfnum landsins er oft þröngur stakkur skorinn, bæði í húsnæði og mannahaldi og ráða fæst við að þiggja stórar bókagjaf- ir, þó verðmætar gætu talist. Öðru máli gegnir ef leit í Gegni segir að tiltekið efni sé þar ekki til, þá er að sjálfsögðu auðveldara fyrir söfnin að veita gjöfinni viðtöku. Því mið- ur koma í ljós ýmis göt í þjóðararf- inum ef vel er að gáð og á þennan hátt getur almenningur svo sann- arlega komið til hjálpar. Í rauninni ætti enginn að henda bók án þess að nýta sér þjónustu Gegnis, sem svarar auðveldlega því hvort henn- ar er saknað eða ekki.“ Jónína seg- Allt frá sálmaskrám og tímaritum til bóka frá 1845 er varðveitt í Reykholti Kíkt í heimsókn til Jónínu starfsmanns Varaeintakasafns Landsbókasafns Íslands Jónína Eiríksdóttir. Hér stendur hún við hluta bókasafns Seðlabankans, en bankinn var með sjálfstætt safn innan sinna veggja allt þar til fyrir u.þ.b. tveimur árum, þegar stjórnendum bankans þótti sýnt að það væri ekki hlutverk seðlabanka að halda úti bókasafni. Bækur og tímarit í eigu bankans eru fallega innbundin verk, sem Landsbókasafnið nýtir bæði til að fylla í eyður eigin safnkosts og til varðveislu á fögrum umbúnaði. Varaeintakasafnið er til húsa á þremur hæðum í austurálmu gamla héraðsskóla- hússins. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson. Allar sálmaskrár skulu varðveittar og fylla margar hillur safnsins.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.