Bæjarins besta

Tölublað

Bæjarins besta - 09.12.1987, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 09.12.1987, Blaðsíða 2
2 BÆJARINS BESTA BÆJARINS BESTA kemur út á miðvikudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suðurtanga 2, 400 isafjörður, sími 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Jakob Falur Garðarsson, sími 4570. Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 201. Tekið á móti efni og auglýsingum í ofangreindum símum. Opið bréf til Ólafs Geirssonar ritstjóra Yestfirska fréttablaðsins BÆJARINS BESTA, Suðurtanga 2. 400 ísafirði. Heiðruðu ritstjórar! Hér með leyfi ég mér að senda yður bréfkom mitt frá 29. nóv. s.l. til Vestfirska fréttablaðsins, sem ég mælist til að birt verði í blaði yðar. Astæðan fyrir bón minni er sú, að bréfið birtist ekki í Vestfirska, er út kom 4. þ.m., þrátt fyrir loforð ritstjóra þess þar um, er ég afhenti honum bréfið á skrifstofu blaðsins 30. nóv. Bréfið til Vestfirska skýrir sig sjálft. Hinu skal við bætt, að þrátt fyrir að mér sé ljóst, að skrif mín í sjúkrahúsmálinu þjónuðu ekki sölufréttastíl blaðsins, þá bjóst ég ekki við að blaðið gengi svo langt, sem raun hefur orðið á. Ég læt mér í léttu rúmi liggja meðhöndlun Vestfirska á grein minni. Hitt sætti ég mig ekki við, að blaðið geri mér upp orð og þar með breytta merkingu þess, er ég lét frá mér fara. Og þar sem greinilegt er að rit- stjóri Vestfirska hundsar til- mæli mín um leiðréttingu á mistökum blaðsins, á ég ekki aðra leið en að krefjast þess hér og nú að hann biðjist opin- berlega afsökunar á þeim. Virðingarfyllst, Sigurður J. Jóhannsson. ísafirði, 29. nóv. 1987 Vestfirska fréttablaðið, hr. Ólafur Geirsson, ritstjóri, Hafnarstræti 14, 400 ísafirði. Herra ritstjóri! Með bréfi dags. 9. þ.m. sendi ég yður grein til birtingar í tilefni skrifa í blaði yðar um framkvæmdir við nýja sjúkra- húsið á ísafirði. Reyndar af- henti ég yður bréfið og grein- ina persónulega á skrifstofu blaðsins. Við móttöku höfðuð þér strax á orði að stytta grein mína. Kváðust þér sjá til þess, að efni hennar kæmist til skila þótt svo yrði. Reyndar sögðuð þér, að næsta blað, 12. nóv., væri þegar yfir fullt og því yrði greinin að bíða. Ég svaraði því til að það yrði að koma í ljós hvort ég sæti við sama borð og aðrir hjá blaðinu. Þrátt fyrir gnægð efnis kom greinin í næsta blaði, en ekki nema að hluta til. Boðað framhald birtist ekki í þar næsta blaði heldur hálfum mánuði seinna. En ekki er öll sagan sögð enn. Strax í upphafi sáuð þér ástæðu til að fella niður hluta fyrirsagnarinnar „en hið lak- asta af öllu er að kenna öðrum um allt er miður fer.“ Ég sleppi því að geta mér til um ástæður. Þegar seinni hluti greinar minnar birtist loks í síðasta tölublaði tók ekki betra við. Þar leyfið þér yður að breyta fyrirsögninni og leggja mér orð í munn, sem ég hefi ekki látið frá mér fara. Fyrirsögn mín „Eitt er að vilja, annað að ráða“ er orðin að „Eitt er að vilja, annað að gera“, sem allir hljóta að sjá, að gjörbreytir merkingu hennar. Ég trúi því ekki, hr. ritstjóri, að vinnubrögð af þessu tagi rúmist innan þeirra siðareglna er blaðamenn hafa sett sér. Ég leyfi mér og að vona, að slík blaðs yðar heyri til undantekn- inga. Að endingu óska ég þess, að þér birtið bréfið, í heild, í næsta blaði yðar, sem væntan- lega kemur út 3. des. n.k. Virðingarfyllst, Sigurður J. Jóhannsson. form. byggingamefndar HSÍ. Almennur borgarafundur í framhaldi af útkomu ársskýrslu ísafjarðarkaupstaðar fyrir árið 1986, sem dreift hefur verið til bæjarbúa, efnir. bæjarstjórn ísafjarðar til almenns borgarafundar fimmtu- daginn 10. des. n.k. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 20.30. Auk þess að fjalla um efni ársskýrslunnar gefst bæjar- búum kostur á að bera fram fyrirspurnir til bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og ræða almennt um bæjarmálin. ísfirðingar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum. Bæjarstjórn ísafjarðar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.