Bæjarins besta

Útgáva

Bæjarins besta - 09.12.1987, Síða 4

Bæjarins besta - 09.12.1987, Síða 4
4 BÆJARINS BESTA Ætlar þú að greiða tvöfalda skatta á næsta ári? Eins og þú veist verður staðgreiðslukerfi skatta tekið upp eftir áramótin, og því er hverjum manni nauðsynlegt að taka sér tak, „ekki á morgun heldur í dag“, og gera upp gjöld sín hjá bæjarsjóði, a.m.k. þeir sem eru komnir í vanskil. Það mun reynast þér erfitt ef þú ætlar að fresta þessu einu sinni enn og að sjálfsögðu mun dýrara. Tilvist bæjarfélagsins stendur og fellur með þér. Með því að standa í skilum við bæjarsjóð stuðlar þú að eðlilegum framförum og uppbyggingu, okkur öllum til heilla. Því miður eru vanskil bæjarbúa alltof mikil. Ef þú ert í vanskilum setur þú bæjarsjóð í vanskil gagnvart viðskiptaaðilum sínum. 700 einstaklingar og fyrirtæki eru í vanskilum með kr. 40 milljónir við bæjarsjóð í dagl! ||||ÉErt þú einn þeirra?|§|||3 Ef svo er, finnst þér þá ekki tími til kominn að fara að hugsa þessi mál fyrir alvöru? Hvers vegna? ★ Staðgreiðslukerfi skatta verður tekið upp eftir áramót. ★ Það verður mjög erfitt að greiða bæði skv. staðgreiðslukerfinu og eldri gjöld. Því skorum við á þig að gera upp eða semja um þau vanskil sem fallið hafa við bæjarsjóð. Vonast er eftir skjótum viðbrögðum. Kær kveðja. Innheimta ísafjarðarkaupstaðar.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.