Bæjarins besta - 09.12.1987, Qupperneq 24
24
BÆJARINS BESTA
BB SPYR
Ertu byrjuð/byrjaður að
kaupa jólagjafir?
Pétur Biarnason:
Nei.
Vilborg Bjamadóttir:
Já, ég er löngu byrjuð á því.
Sigmundur Ernir Rúnarsson:
Já.
Sigrún Þorleifsdóttir:
Nei, ég er í prófum og má
ekki vera að því.
Nýstárlegar auglýsingar
hins opinbera
Sjónvarpsáhorfendur hafa nú séð fjár-
málaráðherra Jón Baldvin Hannibalsson í
nýju hlutverki. Hefur sést til hans í skamm-
deginu við að strika yfir ísafjörð. Með þess-
um hætti auglýsir fjármálaráðuneytið skatt-
kortin, sem óneitanlega eru jólakortin í ár.
Ríkið sendir öllum þegnum sínum sem
verða orðnir 15 ára fyrir næstu áramót svona
kort. En kort þetta fylgir skattkerfis-
breytingu þeirri sem taka skal gildi um
næstu áramót.
En hvað skyldi fjármálaráðherra strika út
í skammdeginu uppi í fjármálaráðuneyti?
Hann virðist hinn sakleysislegasti þar. Enda
á sú auglýsing að ná til launagreiðenda og
óvíst að þar þurfi nokkuð að strika út.
Þessi nýi háttur í auglýsingastríðinu er ó-
neitanlega sérstakur. Má kannski búast við
því að landslýður sjái ríkisskattstj óra og
jafnvel skattstjórana hvern á fætur öðrum í
auglýsingum. Þegar kemur að því að gefa út
aukaskattkortin svokölluðu væri ekki ónýtt
að sjá einhvern þeirra fara til hins opinbera
og bíða í langri röð til þess að láta segja sér
hvernig eigi nú að fara að.
Staðgreiðslan nýja er mikil réttarbót fyrir
flesta launþega og ætti að gera málið ein-
faldara fyrir þá. Nú eiga skattþegnar sem
aðeins hafa laun ekki að fá meira í vasann
en það sem þeir eiga. Með þann afgang geta
þeir farið í búðir og keypt allar vörurnar,
sem lækka í verði við kerfisbreytinguna á
tollakerfinu, eins og til dæmis snyrtivörur og
myndbandstæki. Það þýðir ekki að fárast
yfir því þótt þvottavélar og matur hækki.
Fólk getur snúið sér að því að verða snyrti-
legra og passa að óhreinka ekki fötin sín.
700 aðilar skulda bæjar-
sjóði tugi milljóna!
Útistandandi álögð gjöld til ísafjarðar-
kaupstaðar nema á fimmta tug milljóna
króna. Meira en 40 milljónir króna eru óinn-
heimtar ef marka má auglýsingar í bæjar-
blöðunum. Skuldararnir eru fleiri en sjö-
hundruð. Það munar um minna.
Þessi auglýsing bæjarsjóðs um afrek sín í
innheimtunni er illskiljanleg. Væri ekki nær
að snúa sér að þessum skuldurum beint og
láta það vera að velta auglýsingakostnaðin-
um yfir á þá sem borga gjöldin sín?
Bæjarbúar eru lítið betur settir þó bæjar-
stjóri og fjármálastjóri reikni út eitt eða
fleiri íþróttahús. Aðalatriðið er auðvitað að
innheimta álögð gjöld bæjarins. Betri er
einn fugl í hendi en tveir í skógi. Sú spum-
ing vaknar hvort ekki eigi að fara að gera
ráð fyrir þessari slöku innheimtu í fjárhags-
áætlunum. Þótt staðgreiðslan muni að mestu
leysa bæinn undan því að kveinka sér í dýr-
um auglýsingum undan því hversu illa geng-
ur að rukka, a.m.k. hvað varðar útsvörin, er
enn þá eftir það vandamál að innheimta að-
stöðugjöldin og náttúrulega fasteignagjöld-
in.
Hinn almenni greiðandi opinberra gjalda
til bæjarsjóðs hlýtur að vilja vita hver ástæð-
an sé fyrir slakri innheimtu í miklu góðæri.
Miðað við þessa frammistöðu hljóta að
vakna spumingar um það hvemig gangi að
innheimta allar eftirstöðvamar um næstu
áramót þegar fólk er farið að staðgreiða
skatta af næsta árs launum. Hætt er við að
stórskuldurum gangi illa að fá dæmið til að
ganga upp miðað við reynsluna hingað til.
Kannski bæjarstjórinn ætti að fara að
dæmi Jóns Baldvins og láta gera litmynda-
auglýsingu til að herða á innheimtunni. í
þeirri auglýsingu mætti til dæmis sýna hann
greiða gjöldin sín á bæjarskrifstofunni
íbygginn á svip. Textinn gæti verið á þá leið
að mönnum líði miklu betur um áramót eða
jafn vel jól ef þeir eru búnir að greiða gjöld-
in upp í til dæmis íþróttahúsið. „Flýtum
framkvæmdum, greiðum gjöldin“ gæti verið
fyrirsögn auglýsingarinnar. Vera má að út
frá pólitískum línum að betra sé að láta for-
seta bæjarstjómar borga í auglýsingunni. En
menn líta væntanlega svo á að bæjarstjóri sé
andlit bæjarins í þessum efnum sem öðmm.
Hvers vegna?
Margir hafa vafalaust velt fyrir sér af
hverju fjármálaráðherra var að strika út ísa-
fjörð í sjónvarpinu heima við eldhúsborðið.
Getur verið að hann hafi vitað af auglýsing-
unum í ísfirsku bæjarblöðunum? Það skyldi
þó ekki vera? En vonandi eiga brottfluttir
Isfirðingar eftir að fá aðrar og betri fréttir af
frammistöðu sjöhundruðmenninganna fyrir
áramót.
ATH!
Vegna smá mistaka
er framhald dagskrár-
innar á bls. 19.
Miðvikudagur
9. desember
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Töfraglugginn.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirnir.
19.30 Gömlu brýnin. Breskur gaman-
myndaflokkur um nöldursegginn
Alf og eiginkonu hans, Elsu.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 íþróttir.
21.20 Á tali hjá Hemma Gunn.
22.25 Kolkrabbinn. Lokaþáttur.
23.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Fimmtudagur
10. desember
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Stundin okkar. Endursýning.
18.30 Þrífætlingarnir. Breskur mynda-
flokkur fyrir börn og unglinga.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.05 íþróttasyrpa.
19.25 Austurbæingar
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós.
21.20 Matlock.
22.15 Á slóð eiturlyfja.
Ný bandarísk heimildamynd um
eiturlyfjanotkun þar í landi, eink-
um hið nýja efni sem kallast
„krakk“ og er m.a. unnið úr kóka-
íni. Fylgst er með störfum lög-
reglu og baráttuhópa gegn eitur-
lyfjum, farið á sjúkrahús, í skóla
og um stræti stórborga.
23.50 Utvarpsfréttir í dagskrárlok.
Föstudagur
11. desember
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 NiIIi Hólmgeirsson (45)
18.25 Albin. Lokaþáttur.
18.40 Örlögin á sjúkrahúsinu. Lokaþ.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Matarlyst - Alþjóða matreiðslu-
bókin. Umsj. Sigmar B. Haukss.
19.10 Á döfinni.
19.25 Popptoppurinn.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Þingsjá.
21.00 Annir og appelsínur.
Að þessu sinni eru það nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð
sem sýna hvað í þeim býr.
21.40 Mannaveiðar.
Þýskur sakamálamyndaflokkur. í
þessum þáttum stendur Faber
rannsóknarlögreglumaður í
ströngu í samskiptum sínum við
afbrotamenn.
22.35 Náttvíg.
Bandarísk spennumynd frá 1980.
Aðalhlutverk: Robert Mitchum,
Jaclyn Smith, James Franciscus og
Mike Connors.
Ung og vinsæl eiginkona iðnjöfurs
og elskhugi hennar brugga eigin-
manninum launráð en ekki fer allt
eins og ætlað er.
Bönnuð börnum.
00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
12. desember
14.55 Enska knattspyrnan.
Everton - Derby. Bein útsending.
16.45 íþróttir.
17.00 Spænskukennsla II. Endursýndur
sjötti þáttur og sjöundi þáttur
frumsýndur.
18.30 Kardimommubærinn.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Stundargaman.
19.30 Brotið til mergjar.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.45 Fyrirmyndarfaðir.
21.15 Erro. Fylgst er með því er lista-
maðurinn Erro setur upp sitt
stærsta myndverk til þessa í ráð-
húsinu í Lille í Frakklandi.
22.05 Á móti vindi.
Bandarísk sjónvarpsmynd gerð
eftir sjálfsævisögu Harolds Krent.
Harold hefur verið blindur frá
barnæsku en er ákveðinn í því að
fylgja félögunum eftir. Er hann