SÍBS blaðið - feb. 2020, Blaðsíða 10
10
SÍBS-blaðið
Fríða Rún Þórðardóttir
næringarfræðingur, formaður
Astma- og ofnæmisfélags Íslands
Hver man ekki eftir sögunni
um Barbapapa þar sem
Barbapapafjölskyldan gekk
með súrefnisgrímur af því
að mengunin í umhverfinu
þeirra var orðin svo mikil.
Á sínum tíma var þetta ekki
svo hugvekjandi en í dag
mætti segja að höfundarnir
þau Annette Tison og Talus
Taylor hafi búið yfir ein-
hverskonar forspá um það
sem verða vildi.
Umræður um marg-
þættan umhverfisvanda,
jafnvel á Íslandi, hefur ekki farið fram hjá neinum og er málið
mjög umfangsmikið. Oft á tíðum er umræðan mjög heit og
tengingar gerðar við öfga í veðurfari og aðrar náttúruham-
farir. Mengunin í dag er þó ekkert glænýtt fyrirbæri, á síðustu
öld og fyrr var mikil mengun í mörgum iðnvæddum borgum
þar sem notast var við kol við ýmiss konar iðnað og við að
hita upp híbýli fólks. Sú mengun var veruleg en sem betur fer
náðist að sporna gegn henni með tækninýjungum, hitaveitu
og rafmagni.
Að undanförnu hafa kannanir sýnt að margir á Íslandi
trúa því ekki að hlýnun jarðar sé af mannavöldum og á sama
tíma er nokkur hópur fólks farinn að þjást af svokölluðum
umhverfiskvíða. Er staðan virkilega orðin svona alvarleg?
Margir segja – já! Margir trúa – já! Aðrir vilja draga úr. Hverju
eigum við almenningur að trúa? Það sem mestu máli skiptir
er hins vegar að við nýtum okkur þá þekkingu og möguleika
sem við höfum til að snúa við blaðinu og gera það sem í okkar
valdi stendur til að snúa málum til betri vegar.
Byrjum á áramótunum
Umræða í fjölmiðlum um mengun af völdum flugelda og teng-
ingu við aukningu á svifryki á höfuðborgarsvæðinu og í öðru
þéttbýli fer á flug strax eftir jólastressið og sú umræða hefur
verið eins nú síðastliðin ár. Þessi mengun er ekki ástættanleg
eins og kom fram í erindi Þrastar Þorsteinssonar prófessors á
Læknadögum í janúar.
Margir hafa skoðun á málinu og mikið er talað um hvaða
möguleika við höfum en svo náum við ekki að taka skrefið
af alvöru og gera eitthvað róttækt. Þessar umræður eru að
mestu uppbyggilegar og rætt er um flugeldana, sölu þeirra og
hvað gæti komið í staðinn. Aðstæður á gamlárskvöld eru þó
töluvert háðar veðri og vindum. Ef það er stilla og kalt hlýst
af meiri mengun samanborið við ef það er rok og rigning,
munurinn er þó minni en af er látið.
Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að auka til
muna upplýsingaflæðið og spá fyrir um mengun og var það
áberandi fyrir tvenn síðustu áramót. Rætt hefur verið að setja
upp sérstök skotsvæði þar sem flugeldum er skotið upp og að
velja þá svæði sem eru tiltölulega opin og ekki inni í þéttum
hverfum það er ágæt hugmynd sem mætti prófa til reynslu.
Það er að minnsta kosti ekki lausn að segja þeim sem
eiga við öndunarfærasjúkdóma að stríða að fara burt úr
borginni, eins og sumir hafa sagt, það er virðingarleysi við
náungann. Flestir með öndunarfærasjúkdóma halda sig inni
við og auka lyfjanotkun því þeir hafa lært af reynslunni,
þessir einstaklinga leita ekkert endilega læknis og því fréttum
við ekki af þeirra vanlíðan. Við eigum öll að geta fagnað ára-
mótunum í sátt og samlyndi.
Hins vegar þurfum við að taka af skarið með markvissum
og langvarandi aðgerðum til að ástand eins og skapaðist ára-
mótin 2017/2018 eigi sér ekki aftur stað. Þá leituðu 15 manns
á bráðamóttöku Landspítala vegna öndunarörðugleika enda
mengunin sú mesta sem mælst hefur í Reykjavík, 4.000 µg/
m3 á klst. en til viðmiðunar þá náði styrkurinn 2.000 µg/ m3 á
10 mínútna kafla árið 2010 vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Hefur fólk gefist upp á að kvarta?
Við hjá AO heyrum því miður ekki mikið frá okkar félags-
mönnum, mögulega eru þeir búnir að gefast upp á því
að kvarta og kveina. Þó berast stundum fyrirspurnir um
staði þar sem hægt er að ganga innandyra sem getur skipt
verulegu máli þegar kuldinn og hálkan er sem verst. Þá kom
í ljós að Egilshöll í Grafarvogi og Fífan í Kópavogi eru opin á
tilteknum tímum sem eldra fólk, fólk með öndunarfærasjúk-
dóma og aðrir sem vilja geta nýtt sér og sloppið við kulda,
hálku og léleg loftgæði. Þessi valkostur þarf þó einnig að vera
til staðar á öðrum árstímum vegna þess að þegar frjókornin
fara að gera vart við sig þá geta sumir ekki verið úti við án
þess að fá heiftarleg ofnæmisviðbrögð og eftirköst sem geta
varað svo dögum skiptir.
Astmasjúklingar finna fyrir menguninni
Töluverð mengun skapast í kjölfarið á þurrkatíð, vegna vinds
sem þyrlar upp ryki og tjöru af götum og stígum og vegna
þess að ekki var ráðist í að sópa og þrífa götur og gangstéttar
tímanlega. Skýring sem gjarnan er gefin er að tækin sem
notuð eru virki ekki í frosti!
Ástandið verður oft einnig slæmt í Reykjavík í miklum
stillum og kulda þegar vindurinn nær ekki að hreyfa við loftinu
og menguninni. Þá er það helst mengunin frá bílaumferðinni
sem við finnum hvað mest fyrir undir þessum kringumstæðum.
Mín reynsla sem einstaklings með áreynsluastma er eins
og reynsla margra með annars konar astma. Versnun á ast-
maeinkennum verður með aukinni mengun, það eykur mæði
og hæsi, ýtir undir þreytutilfinningu, eykur lyfjanotkun, eykur
líkur á veikindum og skerðir lífsgæði.
Staðan nú er þó ekki sú allra versta sem getur komið upp,
því auðvitað er mengun af völdum eldgosa á landinu eitthvað
sem við höfum fundið fyrir og vitum hvernig fer með fólk og
dýr. Allir finna fyrir henni, ekki bara sjúklingar. Undirritaðri
þótti reyndar sérstakt í Eyjafjallagosinu hvað áhuginn frá
erlendum fréttamiðlum var mikill gagnvart stöðu mála og mun
meiri en af hálfu íslenskra fjölmiðla. Mikilvægt er að það sé
Var Barbapapa forspár
um um hverfismál?
Grein