SÍBS blaðið - feb. 2020, Blaðsíða 14
14
SÍBS-blaðið
4. mynd. Dagssveiflur í klukkustundastyrk köfnunarefnisdíoxíðs á Íslandi árið 2017.
3. mynd. 10 mínútna mælingar á styrk brennisteinsdíoxíðs á Höfn í Hornafirði
frá nóvember 2014 til 27. febrúar 2015.
tæplega 3.400 µg/m3 en vert er
að nefna að heilsuverndarmörk
SO2 fyrir klukkustundameðaltal
eru 350 µg/m3.
Köfnunarefnissambönd (NOx)
NOx efni myndast við bruna,
m.a. í vélum, og einnig í iðnaðar-
ferlum og er helsta uppsprettan
útblástur bíla, eins og með
svifrykið. Stundum má sjá brúna
slikju köfnunarefnisoxíða yfir
Reykjavík á kyrrum vetrardögum.
Síðustu ár hafa fjölda skipta
NOx yfir heilsuverndarmörkum
sólarhrings (75 µg/m3) verið að
aukast á höfuðborgarsvæðinu en
það má einkum rekja til veður-
fars sem ýtir undir hærri styrk
efnisins (hægur vindur, þurrt og
kalt). Almennt er hærri styrkur
NOx yfir vetrar mánuðina, þ.e.
meiri á haustin og veturna miðað
við sumrin.
Ákveðnir hópar fólks geta
orðið fyrir mikilli mengun
tímabundið, t.d. fólk sem bíður
við hópferðabíla sem eru hafðir
í gangi, starfsmenn kyrrstæðra
vinnuvéla (t.d. körfubíla)
sem eru í gangi á sama stað
allan daginn og fleiri við slíkar
aðstæður. Úr köfnunar efnis-
díoxíði myndast einnig fíngerðar
nítratagnir (PM2.5). Köfnunarefnisdíoxíð getur hvarfast
við vatn og myndað saltpéturssýru (HNO3). Þannig
skolast það úr andrúmsloftinu, svipað og brenni-
steinssýra, og getur valdið svokölluðu súru regni.
Þegar dags sveiflur í klukkustundastyrk NO2 ársins
2017 eru skoðaðar á 4. mynd, má sjá að styrkur efnisins
á öllum mælistöðvum í þéttbýli fylgir svipuðum ferli.
Styrkur NO2 er lægstur um klukkan 4-6 á morgnanna og
fer svo hækkandi eftir því sem morgunumferðin eykst.
Snemma morguns er aukin umferð bifreiða um stórar
umferðargötur og umferð er ein helsta uppspretta NO2
í borgum.
Brennisteinsvetni (H2S)
Dæmi gerðar náttúrulegar uppsprettur brennisteins-
vetnis eru hverir, eldfjöll og mýrarsvæði, en losun
frá iðnaði tengist m.a. jarðvarmavirkjunum og skolp-
hreinsistöðvum. Styrkur H2S getur orðið hár í nálægð
við jarðvarma virkjanir en veðurfar hefur mikil áhrif á
hversu langt efnið berst frá virkjununum og í hvaða
styrk. Hvera lykt er vel þekkt á Íslandi og hefur mengun
af völdum brennisteinsvetnis gætt í einhverjum mæli frá
fyrstu tíð.
Hellisheiðarvirkjun var gangsett í september 2006
en mælingar á H2S á Grensásvegi (25km frá upp-
sprettunni) hófust í febrúar sama ár. Þetta var gert til
að gefa upplýsingar um styrk H2S á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir gangsetningu virkjunarinnar. Á 5. mynd má