Morgunblaðið - 12.06.2020, Side 26
Aldursmunur Ágúst Eð-
vald Hlynsson úr Víkingi
fæddist sama ár og KR-
ingurinn Pálmi Rafn
Pálmason hóf að leika
með meistaraflokki. Báð-
ir unnu titil árið 2019 og
Arnar Gunnlaugsson, sem
fylgist með návígi þeirra,
ætlar sér stóra hluti með
Víkingsliðið í ár.
skolum og þegar upp var staðið voru
Hlíðarendapiltarnir tiltölulega
heppnir að ná sjötta sætinu í deild-
inni.
Hinn sigursæli Heimir Guðjóns-
son tók við Valsliðinu í haust og
breiddin hjá honum er það góð að
hann gæti stillt upp tveimur byrj-
unarliðum sem væru líkleg til að
slást um toppsætin. Þetta var
reyndar líka sagt í fyrra.
En undir stjórn Heimis er ljóst að
lið Vals mætir til leiks í gríðarlega
góðu formi, það hefur sloppið við
meiðslavandræði sem háðu því í
byrjun móts í fyrra, og svo gæti Ar-
on Bjarnason hæglega verið
hlekkurinn sem vantaði í sóknarleik
liðsins. Þótt Aron hafi ekki verið
sérstakur markaskorari gæti hann
tekið pressu og athygli af Patrick
Pedersen, en sá drengur mun halda
áfram að raða inn mörkum jafnt og
þétt fyrir Valsmenn ef að líkum
lætur.
Heimir glímir við það lúxusvanda-
mál að vera með tvo sterka menn
um hverja stöðu. Ásamt Pedersen
og Aroni verður Kristinn Freyr Sig-
urðsson í lykilhlutverki í Valsliðinu,
reynsla Birkis Más Sævarssonar og
Hannesar Þórs Halldórssonar nýtist
líklega betur en í fyrra og með til-
komu Rasmus Christiansen og
Magnusar Egilssonar hefur sam-
keppnin um stöðurnar í vörninni
orðið enn harðari.
Valsmenn mæta til leiks sem
meistaraefni, rétt eins og í fyrra, og
að þessu sinni yrðu það enn óvænt-
ari tíðindi en þá ef þeir yrðu ekki
með í baráttunni til lokaumferðar.
Silfrið ekki ásættanlegt
Með sterkari leikmannahóp en í
fyrra og afar áhugaverðan þjálfara,
Óskar Hrafn Þorvaldsson, við
stjórnvölinn er ljóst að Breiðablik
ætlar ekki að sætta sig við silfur-
verðlaunin á Íslandsmótinu þriðja
árið í röð.
Oliver Sigurjónsson og Kristinn
Steindórsson eru komnir aftur heim
í græna búninginn og Kwame Quee
er kominn aftur eftir vel heppnaða
lánsdvöl hjá Víkingi. Anton Ari
Einarsson verður fyrsti kostur í
markinu í stað Gunnleifs Gunnleifs-
sonar, sem hins vegar verður til taks
ef á þarf að halda. Sá eini af fasta-
kjarnanum frá því í fyrra sem er far-
inn er Alfons Sampsted, en hann var
hálft síðasta tímabil í láni hjá sínu
gamla félagi.
Óskar Hrafn gerði nánast krafta-
verk með lið Gróttu og það eru því
gerðar miklar væntingar til hans í
Kópavogi um að skila félaginu
Sex lið sem gætu orðið
Valur og Breiðablik líklegust til að
geta velt KR úr sessi Er hægt að af-
skrifa FH? Stjarnan með sterkt lið
Eru ungu Víkingarnir tilbúnir?
KARLARNIR 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þegar flautað verður til Íslandsmóts
karla í fótbolta annað kvöld í 109.
skipti, meira en hálfum öðrum mán-
uði síðar en ráð var fyrir gert, er al-
mennt gert ráð fyrir því að ákveðin
sex lið skipi sér í efri hluta Pepsi
Max-deildarinnar.
Spámenn Árvakurs halda því
fram að innbyrðis röðin á þessum
sex liðum verði: Valur, Breiðablik,
KR, FH, Stjarnan og Víkingur.
Sem betur fer er fótboltinn þekkt-
ur fyrir að fara ekki alltaf eftir lög-
málum og eitthvert þessara liða gæti
óvænt dregist niður í fallbaráttu og
eitthvert utan þessa hóps slegið í
gegn og brotið sér leið inn í efri
hluta deildarinnar.
En það yrði vægast sagt verulega
óvænt ef Íslandsmeistarar ársins
2020 kæmu ekki úr þessum sex liða
hópi.
Valur og KR hefja mótið annað
kvöld, laugardagskvöld, á Hlíðar-
enda. Á sunnudag mætast ÍA – KA,
HK – FH og Breiðablik – Grótta og
fyrstu umferð lýkur á mánudags-
kvöld þegar Víkingur mætir Fjölni
og Stjarnan tekur á móti Fylki.
Í þessari fjórðu og síðustu grein
um lið efstu deilda Íslandsmótsins
2020 er farið yfir þessa sex kandí-
data í baráttunni um Íslandsmeist-
aratitilinn og Evrópusætin dýr-
mætu.
Kvittað fyrir vonbrigðin?
Sjaldan hafa meistaraefni valdið
jafnmiklum vonbrigðum og Vals-
menn gerðu í fyrra. Þeir þóttu afar
líklegir til að vinna Íslandsmeist-
aratitilinn þriðja árið í röð 2019 en
sú titilvörn fór algjörlega í handa-
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020
Spánn
Sevilla – Real Betis .................................. 2:0
Staðan:
Barcelona 27 18 4 5 63:31 58
Real Madrid 27 16 8 3 49:19 56
Sevilla 28 14 8 6 41:29 50
Real Sociedad 27 14 4 9 45:33 46
Getafe 27 13 7 7 37:25 46
Atlético Madrid 27 11 12 4 31:21 45
Valencia 27 11 9 7 38:39 42
Villarreal 27 11 5 11 44:38 38
Granada 27 11 5 11 33:32 38
Athletic Bilbao 27 9 10 8 29:23 37
Osasuna 27 8 10 9 34:38 34
Real Betis 28 8 9 11 38:45 33
Levante 27 10 3 14 32:40 33
Alavés 27 8 8 11 29:37 32
Real Valladolid 27 6 11 10 23:33 29
Eibar 27 7 6 14 27:41 27
Celta Vigo 27 5 11 11 22:34 26
Mallorca 27 7 4 16 28:44 25
Leganés 27 5 8 14 21:39 23
Espanyol 27 4 8 15 23:46 20
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Origo-völlur: Valur – KR ..................... 19.15
Mjólkurbikar karla, 2. umferð:
Varmá: Hvíti riddarinn – Selfoss ........ 19.15
Domusnovav.: Leiknir R. – Kári ......... 19.15
Framvöllur: Kórdrengir – Hamar ...... 19.15
Nettóvöllur: Keflavík – Björninn........ 19.15
Vodafonev.: Völsungur – Þór .............. 19.15
Versalavöllur: Ýmir – ÍR ..................... 19.15
Víkingsvöllur: Mídas – SR........................ 20
Skessan: ÍH – GG ................................. 20.30
Í KVÖLD!
Sevilla hafði betur í slag Sevilla-
liðanna þegar boltinn rúllaði af stað á
ný í spænsku knattspyrnunni í gær-
kvöldi. Sevilla vann nágranna sína
Real Betis 2:0 á heimavelli í fyrsta
leiknum í efstu deild eftir hléið.
Lucas Ocampos skoraði fyrra markið
úr víti á 56. mínútu og Fernando bætti
við marki á 62. mínútu. Sevilla gekk
mjög vel í vetur og er í 3. sæti deildar-
innar. Liðið er nú átta stigum á eftir
Barcelona og sex á eftir Real Madrid.
Real Betis siglir lygnan sjó í 12. sæti
deildarinnar.
Michael Schumacher mun fara
undir hnífinn á næstunni vegna stofn-
frumuflutninga sem ætlað er að
endurræsa miðtaugakerfi hans.
Franski hjartaskurðlæknirinn Philippe
Menasché mun stjórna aðgerðinni, að
sögn ítalska blaðsins Contro Copert-
ina. Schumacher hlaut alvarlegan
heilaskaða á skíðum í frönsku Ölp-
unum 29. desember 2013.
Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli
verður ekki með Tottenham þegar liðið
mætir Manchester United í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í næstu
viku. Enska knattspyrnusambandið úr-
skurðaði Alli í eins leiks bann og sekt-
aði hann um 50 þúsund pund, ásamt
því að fara á námskeið, eftir að hann
birti ósæmileg ummæli um Asíubúa
og kórónuveiruna á
samfélagsmiðlinum
Snapchat í febrúar.
Alli fjarlægði færsl-
una og baðst af-
sökunar á henni og
kvaðst hafa orðið
bæði sér og félagi
sínu til
skamm-
ar.
Eitt
ogannað
Reykjavíkurfélögin Valur og KR
hefja Íslandsmótið í knattspyrnu
2020 í kvöld með uppgjöri sín á
milli í fyrstu umferð úrvalsdeildar
kvenna, Pepsi Max-deildarinnar, á
Hlíðarenda. Þar verður flautað til
leiks klukkan 19.15.
Þar með hefst titilvörn Vals-
kvenna, sem í gær var spáð þriðja
sæti deildarinnar, á eftir Breiða-
bliki og Selfossi.
KR, sem var í gær spáð fimmta
sætinu eftir að hafa endað í sjöunda
sæti í fyrra, hefur styrkt lið sitt
talsvert og er líklegt til að veita Val
meiri keppni en á síðasta tímabili,
þegar báðir leikir liðanna enduðu
3:0, Valskonum í hag. Þá skoruðu
Elín Metta Jensen, Hlín Eiríksdóttir
og Margrét Lára Viðarsdóttir tvö
mörk hver samtals í leikjunum
tveimur. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Hlíðarendi Ingibjörg Valgeirsdóttir, markvörður KR, býr sig undir að verja
skot í leiknum gegn Val á Hlíðarenda á Íslandsmótinu í fyrrasumar.
Titilvörnin hefst á
Hlíðarenda í kvöld
KR verður í öðru sæti en Breiðablik
í þriðja sæti í Pepsi Max-deild karla
og Selfoss verður í öðru sæti en
Valur í þriðja sæti í Pepsi Max-deild
kvenna.
Þetta er munurinn á hinni árlegu
spá á kynningarfundi KSÍ fyrir Ís-
landsmótið sem haldinn var í gær
og spá Árvakurs sem birt var hér í
Morgunblaðinu á þriðjudaginn. Í
þeirri síðarnefndu var Breiðablik
sett í annað sætið hjá körlunum og
Valur hjá konunum.
Val var spáð Íslandsmeistaratitli
karla og Breiðabliki Íslandsmeist-
aratitli kvenna hjá KSÍ, rétt eins og
í spá Árvakurs.
Sæti ÍA og KA víxlast enn frem-
ur. Árvakur spáði KA 7. sæti og ÍA
9. sæti en þetta snýst við í spánni
hjá KSÍ, sem hefur meiri trú á
Skagamönnum.
Spárnar um fall úr deildunum
eru samhljóða; reiknað er með að
Fjölnir og Grótta falli úr karla-
deildinni en ÍBV og Þróttur úr
kvennadeildinni.
Niðurstaðan hjá KSÍ í gær varð
sem hér segir:
Pepsi Max-deild karla
1 Valur (406 stig), 2 KR (373), 3
Breiðablik (372), 4 FH (311), 5
Stjarnan (300), 6 Víkingur R. (269),
7 ÍA (212), 8 Fylkir (171), 9 KA
(136), 10 HK (107), 11 Fjölnir (84),
12 Grótta (69).
Pepsi Max-deild kvenna
1 Breiðablik (284), 2 Selfoss
(252), 3 Valur (251), 4 Fylkir (190), 5
KR (178), 6 Stjarnan (147), 7 Þór/
KA (124), 8 FH (91), 9 ÍBV (86), 10
Þróttur R. (48).
Spáin um silfursæt-
in öðruvísi hjá KSÍ
Morgunblaðið/Hari
Líklegar Blikakonur þykja mjög
sigurstranglegar í ár.