Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 32
Farandgalleríið Sælir Kælir hefur tekið sér bólfestu í anddyri Gerðarsafns og verður þar til og með 14. júní. Sælir Kælir er listamannarekið gallerí í gömlum ísskáp. Sýningarrýmin eru tvö; kælirinn og frystirinn. Verk sem sýnd eru í Sæli Kæli þurfa að standast þær aðstæður sem verða til annaðhvort í frysti eða kæli. Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum í Kópavogi, en að því standa myndlistarmaðurinn Atli Pálsson og hönnuður- inn Kamilla Henriau. Sælir Kælir í anddyri Gerðarsafns FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valsmenn ætla sér að kvitta fyrir vonbrigði síðasta árs og endurheimta Íslandsmeistaratitilinn. Hjá Breiðabliki er silfur ekki ásættanlegt í ár. Getur uppskrift Rúnars Kristinssonar virkað hjá KR annað árið í röð? Eru FH- ingar vanmetnastir af betri liðum deildarinnar? Geta Stjarnan og Víkingur ógnað hinum fjórum? Fjallað er um liðin sex sem spáð er að verði í efri hluta Íslands- móts karla í fótbolta í ár. »26-27 Eru þetta meistaraefnin sex? ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarna daga hefur Sigurður Einarsson tannsmiður unnið við að útbúa lítið verkstæði í bílskúrnum heima hjá sér í Krókavaði 6 í Reykjavík. „Ég er við góða heilsu og á meðan eftirspurn er eftir þjón- ustu minni held ég áfram,“ segir meistarinn, sem hefur starfað við fagið síðan 1959 og komið að tann- smíði ásamt starfsfélögum sínum fyrir um 10.000 manns á undan- förnum tæplega 62 árum. Örn Bjartmars Pétursson tann- læknir byrjaði með tannsmíðaverk- stæðið á 6. hæð í Morgunblaðshöll- inni við Aðalstræti 1958 og réð sama ár Bandaríkjamanninn Donald Martin tannsmið, sem fékk nafnið Marteinn Jónsson eftir að hann varð ríkisborgari. 1959 tók hann Sigurð sem nema og ári síðar Eyjólf G. Jónsson. „Við unnum saman þar til Örn dó 2001 og síðan skildu leiðir okkar Marteins fyrir um áratug,“ segir Sigurður. „Í áratugi var þetta öflugasta tannsmíðaverkstæði landsins með þremur og stundum fjórum starfandi tannsmiðum. Örn var einstakur í sinni röð varðandi afkastagetu og dugnað og umfangið var gríðarlega mikið.“ Tannsmíðaverkstæðið var flutt í Sólheima 1979 og var þar þangað til Örn féll frá, en þá fluttu Sigurður og Marteinn starfsemina í Ármúla 38. Aldur afstæður „Þar var ég til nýliðinna mánaða- móta lengst af með einn starfsmann í einu eftir að Marteinn hætti.“ Á meðal um 10.000 viðskiptavina hafa verið margir þjóðþekktir menn og sumir með sérþarfir, að sögn Sig- urðar. „Ég hef kynnst mörgu skemmtilegu fólki í starfinu og er hreykinn af dagsverkinu.“ Margt hefur breyst síðan Sig- urður byrjaði í faginu. „Þetta var miklu meira handverk áður en tölv- urnar komu til skjalanna en ég tók þá ákvörðun að fara ekki inn í tölvu- öldina heldur halda mig við hand- verkið og það hefur sýnt sig að þörf er fyrir það án þess að ég sé að gera lítið úr yngri tannsmiðum, sem not- færa sér tölvutæknina, enda er flott fólk í þessu fagi.“ Þegar Sigurður var 16 ára var hann óviss hvert skyldi stefna. Móðir hans sá þá auglýsingu þar sem óskað var eftir nema í tann- smíði. „Ég sótti um, Örn réð mig til reynslu og hér er ég enn,“ segir Sigurður. „Ég byrjaði 11. nóvember 1959, á svokölluðum friðardegi, og nokkrum dögum síðar átti ég af- mæli en þorði ekki að segja frá því.“ Hann bætir við að þá hafi þéringar tíðkast. „Örn bauð mér ekki dús fyrr en svolítið var liðið á árið 1960. Svo gafst hann upp á þéringum, sagði að fólk hefði ekki verið al- mennilega að sér í þéringum.“ Sigurður verður 78 ára í haust og er ekkert á þeim buxunum að hætta að vinna. „Allar þessar reglur um starfslok eru alveg út úr kú því al- mennt heilsufar hefur tekið stór- stígum framförum, aldursviðmið er skekkja.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Tannsmiður Sigurður Einarsson hefur útbúið lítið verkstæði í bílskúrnum og heldur áfram hér eftir sem hingað til. Handverk í hávegum haft  Sigurður Einarsson hefur unnið við tannsmíði í rúm 60 ár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.