Morgunblaðið - 29.06.2020, Page 1

Morgunblaðið - 29.06.2020, Page 1
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Kjalarnes Á slysstað í gærdag. Tveir létust í árekstri bifhjóls og húsbíls á Vesturlandsvegi á Kjalar- nesi, norðan Grundarhverfis, laust eftir kl. 15 í gær. Þeir sem létust voru ökumaður og farþegi á bifhjól- inu, en ökutækin voru að koma sitt úr hvorri áttinni. Annað bifhjól kom aðvífandi þegar áreksturinn varð og missti ökumaðurinn stjórn á hjólinu og féll af því. Hann var fluttur á Landspítala til aðhlynningar. Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa kanna tildrög slyss- ins. Aðstæður á vegi eru til skoðunar en nýtt slitlag var á veginum á slys- stað og glerhált. Enginn grunur er um hraðakstur eða að ógætilega hafi verið farið í aðdraganda slyssins. Vegurinn um Kjalarnes var lok- aður í nokkrar klukkustundir eftir slysið og umferð beint um Kjósar- skarð. Fjöldahjálparstöð var í Klé- bergsskóla. sbs@mbl.is Tveir létust  Banaslys á Kjalar- nesi síðdegis í gær Úrslit forsetakjörs Heildarúrslit á landinu öllu 89,4% 7,6% 3,0% Guðmundur Franklín Jónsson Guðni Th. Jóhannesson Auðir og ógildir kjörseðlar 7,8% af gildum atkvæðum 92,2% af gildum atkvæðum Guðni Th. Jóhannesson var endur- kjörinn forseti Íslands með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða í for- setakosningum sem haldnar voru á laugardag. Alls voru Guðna greidd 150.913 atkvæði, eða 89,4%. Guð- mundur Franklín Jónsson hlaut 12.797 atkvæði eða 7,6%. Fylgi Guðna var yfir 90% gildra atkvæða í öllum kjördæmum landsins, sex tals- ins. Kjörsókn var 66,9%, en 168.821 greiddi atkvæði. Þar af voru auð og ógild atkvæði 5.111 eða 3,0%; 4.043 auð og 1.068 ógild. Á kjörskrá voru alls 252.267. Fyrstu tölur í forsetakjörinu sem bárust laust eftir klukkan 22 voru í samræmi við niðurstöður skoðana- kannana að undanförnu. Heildar- myndin breyttist lítið með fleiri töl- um og forskot Guðna jókst afdráttarlaust. Síðustu tölur komu um kl. 7 á sunnudagsmorgun. Forseti sé ekki pólitískur Guðni segist í samtali við Morgun- blaðið þakklátur fyrir mikinn stuðn- ing í kosningunum. Hve góð kjör- sókn var hafi komið sér á óvart af ýmsum ástæðum. Hvað viðvíkur um- ræðum um stöðu forsetaembættisins í aðdraganda kjörsins segir Guðni augljóst af úrslitunum að Íslending- ar vilji ekki að forseti láti til sín taka á hinu pólitíska sviði. „Ég vil óska forsetanum til ham- ingju með þennan afgerandi sigur. Mikill meirihluti landsmanna er ánægður með störf Guðna og Elizu og hvernig þau hafa haldið á málum í sinni tíð. Þetta er afgerandi stuðn- ingur,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reed töluðu við fjölmiðla á Grand Hóteli eftir að fyrstu tölur í forsetakosningunum bárust. Endurkjörinn forseti með afgerandi stuðningi  Guðni Th. Jóhannesson fékk 89,4% greiddra atkvæða en 92,2% gildra atkvæða MHlaut næstmestan »4 M Á N U D A G U R 2 9. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  151. tölublað  108. árgangur  LEIKA SAMAN Á FIÐLU OG GÍTAR HRÁ YFIRFÆRSLA ÚR ENSKU STÓRLIÐ BERA VÍURNAR Í MEISTARANN NÝTT SKILTI Í FLUGSTÖÐINNI 11 VANN ÞÝSKA TITILINN 26GEFA ÚT PLÖTU 29 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.