Morgunblaðið - 29.06.2020, Side 2

Morgunblaðið - 29.06.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Fjölmennt var á samverustund á Austurvelli í gær, þar sem fólk sýndi eftirlifendum og aðstandendum þeirra sem létust í eldsvoða í húsi við Bræðraborgarstíg á fimmtudag hluttekningu sína. Meðal þeirra sem mættu á Austurvöll af þessu tilefni voru lögreglu- og slökkviliðsmenn og Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri í Reykjavík. Að loknum fundi var gengið að Bræðraborgarstíg þar sem fólk kveikti á kertum til að minnast þeirra sem létust. Á þeim sama stað efna íbúar í Vesturbænum til kyrrð- arstundar í dag klukkan 18 til að votta hinum látnu virðingu sína og sýna samúð og samhug með þeim sem eiga um sárt að binda. Enn er ekki er búið að bera kennsl á þau þrjú sem létust í eldsvoðanum og málið er enn í rannsókn. Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir kennslanefnd ríkislögreglu- stjóra, sem kölluð var til vegna máls- ins, taka sér þann tíma sem þarf til að geta sagt með vissu hverjir hinir látnu séu. sbs@mbl.is Sýndu aðstandendum og eftirlifendum brunans við Bræðraborgarstíg hluttekningu sína Samhugur ríkjandi í mikilli sorg Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Múlaþing var nafnið sem flestir völdu í könnun um nýtt nafn á sam- einuðu sveitarfélagi á Austurlandi, sem efnt var til eystra samhliða forsetakosning- um á laugardag- inn. Talningu at- kvæða lauk á níunda tímanum í gærkvöldi. Á kjörskrá voru 3.618 og 2.232 greiddu atkvæði í könnuninni, eða 62% atkvæðis- bærra íbúa í sameinuðu sveitarfé- lagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpa- vogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Kjósendum var heimilt að velja tvö nöfn að því gefnu að auðkennt væri fyrsta og annað val. Úrslit þeg- ar aðeins var talið fyrsta val voru þau að 731 kjósandi valdi nafnið Múlaþing, Drekabyggð völdu 619, Austurþing 405, Múlaþinghá 187, Múlabyggð 164 og Austurþinghá var val 64 kjósenda. Stefán Bogi er sáttur Þegar saman var talið fyrsta og annað val breyttist röð nafnanna ekki en samanlögð atkvæði í fyrsta og öðru vali féllu þannig að 1.028 völdu að sveitarfélagið nýja héti Múlaþing og Drekabyggð varð í öðru sæti með stuðning 774 íbúa. Austurþing völdu 645, 332 Múla- þinghá, Múlabyggð 329 og Austur- þinghá var val 131 íbúa. Aðeins um helmingur kjósenda nýtti þann rétt sinn að velja tvö nöfn, en aðrir völdu aðeins einn kost. Auðir seðlar voru 35 og ógildir 37. „Ég er nokkuð sáttur með útkom- una. Mér finnst Múlaþing nokkuð gott nafn. Úrslitin eru um margt svipuð því sem ég bjóst við eftir að hafa heyrt og kynnt mér sjónarmið íbúanna,“ sagði Stefán Bogi Sveins- son, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði og formaður nafnanefndar, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Íbúar verða um 5.200 talsins Niðurstöðurnar í könnuninni eru ekki bindandi, en ráðgefandi fyrir nýja sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags sem kosið verður til 19. september í haust. Nýtt sveitar- félag sem gæti heitið Múlaþing verður svo formlega til 4. október. Traustur meirihluti var fyrir því í almennri atkvæðagreiðslu sl. haust að sameina sveitarfélögin fjögur sem fyrr eru nefnd. Samkvæmt nýj- ustu tölum Hagstofu Íslands verða um 5.200 íbúar í sveitarfélaginu nýja. Það verður afar víðfeðmt land- fræðilega; nær frá ystu ströndum, um skógi vaxnar sveitir og inn á reginfjöll; frá Möðrudalsöræfum og suður í Þvottárskriður. Múlaþing er nafnið sem flestir völdu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Djúpivogur Þéttbýlisstaður í sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi.  Atkvæði voru greidd um nafn á sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi  Drekabyggð varð í öðru sæti  Sex kostir voru í boði  Sveitarstjórn verður kosin í september og ræður nafninu endanlega Stefán Bogi Sveinsson Birgir Ármanns- son, þingflokks- formaður Sjálf- stæðisflokks, segir að um 30 stjórnarfrumvörp verði afgreidd áð- ur en þingstörf- um lýkur á morg- un. „Við gerum ráð fyrir því að megn- ið af þeim stjórnarfrumvörpum sem eru tilbúin úr nefndum klárist,“ seg- ir hann í samtali við Morgunblaðið. Á meðal þeirra er samkeppnis- lagafrumvarp Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, nýsköpunar- og atvinnuvegaráðherra, þar sem lagðar eru til breytingar sem miða að því að bæta framkvæmd sam- keppnislaga og uppfæra hluta þeirra til samræmis við gildandi EES-rétt. Mismunandi afdrif frumvarpa Auk stjórnarfrumvarpanna 30 verða átta frumvörp frá þingmönn- um afgreidd, eitt frá þingmanni hvers þingflokks. „Afdrif þeirra verða mismunandi, sum samþykkt, önnur felld og ein- einhverjum vísað til ríkisstjórnar,“ segir hann. Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur verður ekki afgreitt fyrir næsta þriðjudag og bíður því afgreiðslu í haust. „Í staðinn var samþykkt sérstök fjárveiting til fjölmiðla. Ráðherra var falið að veita styrki vegna ástandsins í eitt skipti en það er auð- vitað ekki sambærilegt við frumvarp sem gerði ráð fyrir varanlegum styrk,“ segir Birgir. Þá er ekki búist við því að frum- varp Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra um málefni inn- flytjenda fari í gegn, að sögn Birgis. Einnig verður frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um skipan sendi- herra ekki klárað í vor. „Hins vegar var um það samið að það verði aftur lagt fram á þingi í haust og klárað fyrir 15. nóvember,“ segir Birgir. Um 30 stjórnarfrumvörp verði afgreidd fyrir þinglok  Fjölmiðlafrumvarp og breyting útlendingalaga bíða haustsins Birgir Ármannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.