Morgunblaðið - 29.06.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.06.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 Allir níu þingmenn velferðarnefnd- ar Alþingis leggja til að frumvarp um að almenn sálfræðiþjónusta og önnur sambærileg þjónusta verði felld undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) verði lögfest með breytingum sem nefnd- in kom sér saman um. Þetta kemur fram í nýbirtu sam- eiginlegu nefndaráliti þingmann- anna við frumvarpið sem lagt var upphaflega fram síðastliðið haust af Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt- ur, þingmanni Viðreisnar, auk 22 annarra þingmanna úr öllum flokk- um á Alþingi. Sýna það í verki að þingið getur staðið saman Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja að sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga og sé þannig veitt á sömu forsendum og önnur heil- brigðisþjónusta. „Að frumvarpinu stendur meira en þriðjungur þingheims þvert á þingflokka. Má því merkja skýran vilja til að sýna það í verki að þingið getur staðið saman að mikilvægum úrbótum og af- greitt góð mál á málefnalegan og faglegan hátt,“ segir í nefndar- álitinu. Árlegur kostnaður gæti orðið 875–1.750 milljónir króna Velferðarnefnd leggur til að gerðar verði nokkrar breytingar á frumvarpinu, m.a. að greiðsluþátt- taka Sjúkratrygginga nái til sál- fræðiþjónustu og svonefndrar gagnvirkrar samtalsmeðferðar í stað fyrra orðalags um að hún nái til klínískrar viðtalsmeðferðar eins og það var orðað í frumvarpinu, sem var talið of opið orðalag. Þá nái greiðsluþátttaka SÍ ein- göngu til meðferðar sem veitt er af heilbrigðisstarfsmönnum, þannig að tryggt sé að greiðsluþátttakan einskorðist við þjónustu sem veitt er af einstaklingi sem starfar við heilbrigðisþjónustu og hefur hlotið leyfi landlæknis til að nota starfs- heiti löggiltrar heilbrigðisstéttar, en þeirra á meðal eru sálfræðingar, félagsráðgjafar, geðlæknar og geð- hjúkrunarfræðingar. Fram kemur að óvissa er um kostnað Sjúkratrygginga af þessari útvíkkun á greiðsluþátttöku þeirra. Ekki liggi fyrir mat á þörfinni fyrir sálfræðiþjónustu en á minnisblaði Sjúkratrygginga kemur fram að ef „miðað er við að 10.000 einstakling- ar þiggi slíka þjónustu hér á landi árlega og að meðalfjöldi meðferð- arskipta hvers einstaklings verði fimm til tíu megi áætla að kostn- aður nemi á bilinu 875-1.750 [millj- ónir] kr. ár hvert. Þá verður að gera ráð fyrir stofnkostnaði vegna breytinga á tölvukerfum auk kostn- aðar vegna annarrar umsýslu sem verkefnið útheimtir.“ Sparar háar fjárhæðir þegar til lengri tíma er litið Nefndin bendir á að enda þótt kostnaður fylgi þessum breyting- um þá spari þær háar fjárhæðir til lengri tíma litið og komi í veg fyrir óþarfa þjáningu einstaklinga sem eiga við geðheilbrigðisvandamál að stríða. ,,Árið 2019 eru áætluð heildar- framlög ríkisins til bóta vegna and- legrar örorku um 19 milljarðar kr. og talið að þau geti meira en tvö- faldast á næsta áratug,“ segir í nefndaráliti þingmanna velferðar- nefndar Alþingis. Verði frumvarpið að lögum taka þau gildi 1. janúar næstkomandi. omfr@mbl.is Greiðsluþátttaka SÍ nái til sál- fræðiþjónustu  Breiður stuðningur við frumvarpið Morgunblaðið/Ómar Alþingi Frumvarpið var lagt fram sl. haust og hefur nú verið afgreitt úr þingnefnd með stuðningi allra. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar fólk kemur aftur á Kexið verður það mjög kunnuglegt. Það hefur engu verið hent sem hægt var að nota. Við höfum hins vegar end- urbætt það og „sjænað“ til,“ segir Pétur Marteinsson, einn eigenda Kex hostels við Skúlagötu. Kexið hefur verið lokað vegna kórónuveirufaldursins, bæði hostelið á efri hæðum hússins og einnig veit- ingastaðurinn sem lýstur var gjald- þrota fyrir skemmstu. Pétur segir að nýr veitingastaður verði opnaður á næstunni og nokkur herbergi verði í notkun fyrir ferðamenn. „Þetta er svolítið breytt konsept á veitingastaðnum, bæði í áherslum á matseðli og drykkjum,“ segir Pétur og bætir við að gestir muni geta not- ið veitinga utandyra í sumar. „Framkvæmdir sem hafa verið á baklóðinni hjá okkur eru bráðum að taka enda. Það er að vísu ekkert að frétta af þessu 16 hæða hóteli sem átti að verða á næstu lóð, þar er bara 25 fermetra hola ofan í jörðina, en þetta er búið á okkar lóð. Nú er kom- inn þarna risastór pallur, örugglega einhver sá stærsti í Reykjavík og með frábærri sumarsól.“ Pétur rifjar upp að framkvæmdir við Kexið hafi hafist 2010 í kjölfarið á hruninu og enduropnunin end- urspegli sömuleiðis ástandið. „Við lifum líka á skrítnum tímum nú og margt ungt fólk verður með minni ráðstöfunartekjur en áður. Við munum bregðast við því og bjóða hagkvæmar lausnir í skemmtun.“ Blása lífi í Kex hostel Morgunblaðið/Hari Menning Kvartett Sigurðar Flosasonar tróð upp á Kex hosteli. Tónleika- hald verður endurvakið á Kexinu innan tíðar ásamt fleiri uppákomum.  Nýr veitingastaður opnaður  Risapallur með suðursól Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.