Morgunblaðið - 29.06.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 29.06.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GLÁMUR DVERGARNIR R Dvergurinn Glámur er 35 cm á hæð, vegur 65 kg og er með innsteypta festingu fyrir 2“ rör Öflugur skiltasteinn fyrir umferðarskilti Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Sir Jeremy Farrar, fyrrverandi pró- fessor í hitabeltissjúkdómum við Ox- ford-háskólann í Bretlandi og núver- andi forstöðumaður Wellcome Trust-rannsóknarsjóðsins, segir bresk stjórnvöld dansa á hnífsegg hvað þær tilslakanir varðar sem Boris Johnson forsætisráðherra kynnti í síðustu viku varðandi opn- anir öldur- og annarra veitingahúsa 4. júlí. Bendir Farrar á að nú þegar, viku fyrir ráðgerða opnun, rjúki smittöl- fræði í Bretlandi upp og veruleg ástæða sé til að óttast að heimsveld- ið forna verði annarri smitbylgju kórónuveirunnar að bráð. Meðvituð um áhættuna Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, segir í samtali við breska ríkisútvarpið BBC, að þjóðin neyðist til að vera meðvituð um þá áhættu, að kórónuveiran skelli á landinu á ný af fullum krafti og nefnir borgina Leicester sem dæmi um byggðarlag sem sérstaklega illa hafi orðið úti. Sir Farrar, sem enn fremur á sæti í SAGE-ráðgjafahópnum (Scientific Advisory Group for Emergencies) í Bretlandi, býr sig undir hið versta, eins og hann greindi frá í viðtals- þætti Andrew Marr sem breska rík- isútvarpið BBC hýsir. Staðan viðkvæm „Við erum á hnífsegg, staðan er gríðarlega viðkvæm núna, ekki síst hvað England snertir, ég óttast mjög að við eigum eftir að upplifa fjölda nýrra tilfella næstu vikur,“ sagði Farrar í þætti Marr. Bresku ríkin feta ólíkar slóðir hvað snertir opnun vinnustaða, Skotar opna bjórgarða sína og veit- ingastaði utanhúss 6. júlí en innan- hússveitingastaði 15. júlí á meðan öldurhús Norður-Írlands opna dyr sínar 3. júlí. Óljóst í Wales Í Wales hefur hins vegar engin ákvörðun verið tekin um opnun veit- ingastaða í kjölfar kórónuveiru- faraldursins, en stjórnvöld þar hafa þó lýst því yfir að þau eigi í við- ræðum við veitingageirann um „stýrða opnun“ sem ekki er þó nánar getið um hvernig verði framkvæmd. Patel innanríkisráðherra segir, innt eftir skoðun sinni á spádómum Jeremy Farrar, að ekkert kæmi breskri þjóð og hagkerfi verr en ný bylgja kórónuveirusmits og aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að sporna við slíku séu hvort tveggja „raunsæjar og ábyrgar“. AFP Lundúnir Camden-götumarkaðurinn iðaði af lífi í gær. Uggandi um tilslakanir  Segir bresk stjórnvöld tefla í tvísýnu hvað opnanir veitingastaða snertir  Engin ákvörðun verið tekin um veitingastaði í Wales  Ekkert verra en ný bylgja Tveir eru látnir og fjórir særðir eft- ir skotárás í Walmart-verslun í Red Bluff í Kaliforníu síðdegis á laug- ardag, um 14.000 íbúa bæ 210 kíló- metra norðan við borgina Sacra- mento þar í ríkinu. Árásarmaðurinn ók bifreið sinni að sögn vitna fjóra hringi um bílastæði verslunarinnar áður en hann ók á vegg hússins þar sem bifreiðin nam staðar. Steig árásarmaðurinn þá út, hóf skothríð með hálfsjálfvirkum riffli og varð 45 ára gömlum starfsmanni verslunarinnar að aldurtila áður en lögreglumenn komu á vettvang og skutu manninn til bana. Starfsfólki verslunarinnar varð felmt við og læsti sig inni í herbergi í starfs- mannaaðstöðu þar til lögregla hafði tryggt öryggi á vettvangi. „Við syrgjum innilega í kjölfar þessa hörmulega atburðar,“ segir í yfirlýsingu sem smásölurisinn bandaríski sendi frá sér um helgina þar sem enn fremur kom fram að stjórnendur aðstoðuðu lögregluyfir- völd í Tehama-sýslu við rannsókn málsins, en lögreglan á staðnum nýtur einnig liðsinnis bandarísku alríkislögreglunnar FBI við rann- sóknina. Embætti lögreglustjórans í Te- hama-sýslu sendi frá sér yfirlýsingu um atburðinn þar sem fram kom að árásarmaðurinn hefði verið 31 árs gamall fyrrverandi starfsmaður verslunarinnar. Ekki sé ljóst að svo stöddu hvort árásarmaðurinn hafi þekkt fórnar- lömb árásarinnar og sagði Phil Johnston aðstoðarlögreglustjóri einnig að óljóst væri hvort árásin tengdist annarri skotárás sem einn- ig var gerð á laugardag í bænum Shingletown, skammt frá Red Bluff. Mannskæð skot- árás í Walmart  Árásarmaðurinn áður starfsmaður AFP Skotárás Fyrrverandi starfsmaður Walmart lagði til atlögu. Andrzej Duda, sitjandi forseti Pól- lands, og Rafal Trzakowski, borgarstjóri Varsjár og miðjusinni, munu eigast við í annarri umferð forsetakosninga Póllands, ef marka má útgönguspár gærkvöldsins. Duda, sem leiðir stjórnarflokkinn Íhaldssöm lög og réttlæti, sigraði í fyrstu umferð forsetakosninganna í gær. Skoðanakannanir benda til þess að Duda sigri Trzakowski, með 41,8% atkvæða gegn 30,4%. Önnur umferð kosninganna fer fram 12. júlí en upphaflega átti að ganga til kosninga í maí. Þeim var hins vegar frestað vegna kórónu- veirufaraldursins. PÓLLAND AFP Rafal Trzakowski og Andrzej Duda. Stefnir í slag milli Trzakowski og Duda Fjöldi kórónuveirutilfella í heim- inum er nú kominn yfir tíu milljónir ef marka má tölur frá Johns Hopk- ins-sjúkrahúsinu, sem gefnar voru út um helgina. Yfir 500.000 manns hafa fallið í valinn af völdum veir- unnar og er ástandið einna verst í Bandaríkjunum sem sætt hafa miklu bakslagi í sóttarmálum, ekki síst ríkin Arizona, Flórída og Tex- as, svo sem greint hefur verið frá um helgina. Síðustu sex daga hefur ein millj- ón nýrra smittilfella greinst í heim- inum og nálgast tala látinna í Bandaríkjunum nú 130.000, en í Brasilíu hafa 1,3 milljónir smitast og 57.000 voru þar sagðir látnir nú um helgina. Frá kínversku höfuð- borginni Peking berast einnig fréttir af fjölda nýrra kórónuveiru- smita og í Leicester í Bretlandi er talað um nýja holskeflu. FARALDUR VEIRUNNAR Meira en tíu millj- ónir hafa smitast Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sjá nú fram á langþráðar prófanir 737 Max-farþegavélar sinnar sem kyrr- sett var í fyrra eftir tvö skæð flug- slys sem kostuðu alls 346 mannslíf. Í dag er ráðgert að hefja þriggja daga tilraunaflug vélanna, en þar með er björninn þó langt í frá unn- inn. Jafnvel þótt tilraunaflugið skili jákvæðum niðurstöðum eiga Bo- eing-verksmiðjurnar yfir höfði sér margra mánaða öryggiskannanir. Boeing, 103 ára gamall framleið- andi farþegaflugvéla, sætti hreinni úlfakreppu eftir flugslysin tvö í fyrra sem urðu með innan við fimm mánaða millibili og kostuðu mörg hundruð mannslíf. Aðstandendur þeirra sem létust í slysunum þyngdu verksmiðjunum ekki síður með hópmálsóknum, svo ekki sé minnst á ótal spurningar, hvort tveggja í garð Boeing og Flug- umferðareftirlits Bandaríkjanna, FAA, sem mörgum hverjum verður líkast til aldrei svarað. MCAS-hugbúnaðurinn svonefndi, helsti blóraböggull slysanna í fyrra, sem ætlað er að koma í veg fyrir að farþegaþotur Boeing ofrísi, verður að sögn breska ríkisútvarpsins BBC þungamiðja þeirra prófana sem fram fara næstu viku og hefur ríkisútvarpið það eftir stjórnendum Boeing-verksmiðjanna að miklar vonir séu bundnar við nýjustu hug- búnaðaruppfærslu MCAS- búnaðarins. Bandaríska flugumferðareftirlitið staðfesti í gær við þingið að það hefði lagt blessun sína yfir for- sendur þeirra prófana sem 737 Max-þoturnar munu sæta í vikunni, en tók þó sérstaklega fram að já- kvæðar niðurstöður prófa þýddu ekki að 737 Max-þotunum yrði heimilað að flytja farþega á nýjan leik, rannsakendur hefðu komist á snoðir um fjölda annara öryggis- atriða sem leiða þyrfti til lykta áður en þotunum yrði leyft að flytja lif- andi farþega á ný. Boeing 737-vélarnar reyndar í vikunni  MCAS-búnaðurinn þungamiðja próf- ana  Vélarnar kostuðu 346 líf í fyrra AFP Umdeildar 737-vélar í Washington.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.