Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 1
FJÁRMAGN FYLGI EINSTAKLINGNUMFJÁRTÆKNIRISI FELLUR
unnur eiga þátt í bragðgæðum sérútgáfu Lagavulin. 8
Wirecard-hneykslið gæti haft
slæmar afleiðingar fyrir fjártækni-
fyrirtæki í Þýskalandi og víðar. 10
V SKIPTA
11
Sérrít
Ása Jóhannesdóttir hjá Stoð myndi gjarnan
vilja sjá að í heilbrigðisþjónustu væri Íslend-
ingum gefið meira frelsi til að velja.
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Reiðubúnir að auka framleiðsluna
Heildarendurskoðun á rekstrarforsendum ál-
versins í Straumsvík var slegið á frest vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar en í upphafi árs var
gert ráð fyrir að þeirri vinnu myndi ljúka á fyrri
hluta ársins. Samkvæmt heimildum Viðskipta-
Moggans liggur ekki fyrir hvenær endurskoð-
unarvinnunni lýkur en að nokkuð annað hljóð sé
komið í strokkinn hjá stjórnendum og eig-
endum félagsins en í apríl síðastliðnum þegar
uppi voru hugmyndir um að loka álverinu í allt
að 24 mánuði meðan heimsmarkaður með ál-
afurðir næði eðlilegu jafnvægi. Meðal þess sem
stjórnendur Rio Tinto hafa kallað eftir er
endurmat á raforkusamningi fyrirtækisins við
Landsvirkjun frá árinu 2010 sem þeir segja afar
óhagfelldan og eina meginorsök þess að fyrir-
tækið hefur verið rekið með botnlausu tapi síð-
ustu ár. Árið 2019 nam tap af rekstri verksmiðj-
unnar 13,6 milljörðum króna og ári fyrr stóð
tapið í 5 milljörðum. Í fyrstu gengu skeytasend-
ingar milli aðila vegna kröfu Rio Tinto og sagði
forstjóri Landsvirkjunar í samtali við Morgun-
blaðið að raforkusamningurinn væri ekki
ástæða þrenginga álversins. Þegar harðna fór á
dalnum vegna kórónuveirunnar breyttist hljóð-
ið nokkuð í viðræðuaðilum og heimildir Við-
skiptaMoggans herma að fyrir tilstilli Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra, sem fer með
eignarhlut ríkisins í Landsvirkjun, hafi við-
ræður komist á rekspöl og nokkrir samn-
ingafundir verið haldnir. Aðrar heimildir herma
að tilboð og gagntilboð hafi gengið milli aðila án
þess að endanleg niðurstaða hafi fengist í málið.
Rio Tinto hefur dregið talsvert úr raforku-
kaupum á árinu og samhliða því dregið úr fram-
leiðslu sinni. Greint var frá því í Morgunblaðinu
í lok janúar að kostnaður Landsvirkjunar vegna
þessa samdráttar gæti numið 20 milljónum doll-
ara á árinu, jafnvirði 2,8 milljarða króna. Nú
hefur Rio Tinto lýst sig reiðubúið að auka fram-
leiðsluna á ný, jafnvel þótt heimsmarkaðsverð á
áli haldist enn mjög lágt. Hefur fyrirtækið látið
gera við biluð ker, koma þeim fyrir á svoköll-
uðum básum en straumi er þó enn hleypt fram
hjá þeim.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rio Tinto í Straumsvík er tilbúið
til að auka álframleiðslu sína að
nýju sem ekki hefur verið á fullum
afköstum síðustu mánuði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Álverið í Straumsvík hefur verið rekið með mjög miklu tapi á síðustu árum og staðan er enn þröng.
EUR/ISK
24.12.‘19 23.6.‘20
155
150
145
140
135
130
135,45
156,45
Úrvalsvísitalan
2.200
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
27.12.‘19 23.6.‘20
2.132,26
2.123,72
Hönnunargreinar á Íslandi eru mun
stærri en flestir gera sér grein fyrir,
segir Halla Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar
og arkítektúrs, í ítarlegu samtali við
ViðskiptaMoggann.
Hún segir að samkvæmt nýlegri
norrænni rannsókn starfi hlutfalls-
lega jafnmargir hönnuðir á Íslandi og
annars staðar á Norðurlöndunum eða
4.500 manns sem eru um 2% starf-
andi fólks. Halla segir að í rannsókn-
inni komi líka fram að Íslendingar
séu sterkir í mörgum hefðbundum
hönnunargreinum svo sem grafískri
hönnun og upplýsingahönnun. „En
við erum aðeins eftir á í nýjum grein-
um hönnunar svo sem upplifunar-
hönnun, notendadrifinni þjón-
ustuhönnun og stefnumótandi
hönnun (e. DesignThinking) sem eru
helstu vaxtargreinar hönnunar í dag í
heiminum,“ segir Halla.
HönnunarMars hefst í dag
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs,
sem áður hét Hönnunarmiðstöð Ís-
lands, rekur ýmis föst verkefni á
hverju ári. Þau helstu eru Hönn-
unarverðlaun Íslands, sem veitt eru á
haustin, hönnunarsjóður sem út-
hlutar styrkjum 3-4 sinnum á ári,
HA-tímaritið sem hefur komið út
tvisvar á ári og HönnunarMars sem
er viðamikil hátíð haldin í marsmán-
uði ár hvert. Halla segir að vegna
kórónuveirufaraldursins hafi verið
ákveðið að fresta HönnunarMars
2020 fram í júní, en fyrsti dagur há-
tíðarinnar er í dag. Viðburðir á hátíð-
inni bera keim af því að enn eru í
gangi takmarkanir vegna
kórónuveirufaraldursins.
4.500 hönnuðir eru starfandi á Íslandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Halla Helgadóttir segir Íslendinga
eftir á í nýjum greinum hönnunar.
Hlutfallslega jafn margir
hönnuðir eru á Íslandi og á
hinum Norðurlöndunum.
6