Morgunblaðið - 24.06.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 24.06.2020, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020FRÉTTIR Verð á eldislaxi tók dýfu á ný í síð- ustu viku þegar meðalverð lækkaði um 14,61% og nam meðalverð í viku 25, samkvæmt vísitölu Nasdaq sem birt var í gær, 60,84 norskum krón- um á kíló, jafnvirði 892 íslenskra króna. Lax í sláturstærð, þrjú til sex kíló, lækkaði um 15,19% og nam meðalverð á kíló 62,06 norskum krónum, jafnvirði 910 íslenskra króna. Kemur lækkunin í sömu viku og fóru að berast fréttir af því að kór- ónuveirusmitum væri að fjölga í Kína, sérstaklega Peking. Skapaðist meðal annars ótti um að smit gætu borist með laxi eftir að kórónuveira greindist á skurðbrettum hjá stórum heildsala laxaafurða í borginni. Tóku stórar dagvöruverslanir, svo sem Carrefour og Wumart, allan lax úr sölu auk þess sem fjöldi veitinga- staða tók lax af matseðli. Fram kom í Morgunblaðinu í síð- ustu viku að laxeldisfyrirtæki hér á landi hafi dregið úr slátrun og verði því ekki fyrir sambærilegum áhrif- um og önnur. gso@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Dregið var úr framleiðslu þegar smitum fór að fjölga í Kína. Verð á laxi féll eftir fjölgun smita í Kína Mikil aukning varð í viðskiptum við einstaklinga, eftir að Bakó Ísberg greip til þess ráðs í miðjum kór- ónuveirufaraldri, að opna „sjón- varpsstöð“ undir yfirskriftinni Meistarakokkar, í beinu streymi í gegnum Facebook-síðu sína. Fyrir- tækið fékk þar ýmsa snjalla mat- reiðslumenn, bakara og fleiri í heim- sókn, sem sýndu listir sínar í sjónvarpsþáttum svo eftir var tekið. Tilgangurinn var að sögn Bjarna Ákasonar, eiganda og fram- kvæmdastjóra, og Þrastar Heiðar Líndal meðeiganda, að bæði létta lundina, kynna þjónustu og vörur Bakó Ísberg og leyfa kokkunum að láta ljós sitt skína. Einn af þeim sem tróðu upp í Meistarkokkum var tónlistarmaður- inn Bubbi Morthens, en hann brugg- aði í þáttunum svokallaðan Eitur- pésa, engiferdrykk sem hann teygar gjarnan í byrjun dags. „Hann kenndi fólki í beinni útsendingu að búa til þann drykk.“ Bláa lónið meðal viðskiptavina Stærstu viðskiptavinir Bakó Ís- berg eru stór ferðaþjónustufyrirtæki eins og Bláa lónið og Icelandair Hot- els, og einnig mötuneyti skóla og vinnustaða. Allt þetta lokaði í kjölfar þess að veiran fór að herja á landið, að sögn þeirra Bjarna og Þrastar. Bakó Ísberg býður fjölbreytt úr- val af vörum fyrir bakstur og elda- mennsku. „Þó að við seljum stór tæki og þjónustu til fyrirtækja, þá erum við einnig að þjónusta einstaklinga. Salan til þeirra vóg aðeins upp á móti hinu. Við fengum talsvert af nýju fólki inn, og salan hefur aukist tölu- vert.“ Þeir segja að í apríl hafi samdrátt- urinn numið 54% milli ára, og 35% í maí. „Það verður eitthvað svipað í júní,“ segja þeir. „En þetta er að fara í gang núna aftur. Síminn hringir meira en hann gerði.“ Eins og segir á heimasíðu Bako Ís- berg ehf. er fyrirtækið þjónustu- fyrirtæki fyrir veitingahús, hótel, bakarí, mötuneyti o.s.frv. og býður upp á heildarlausnir fyrir stóreldhús allt frá minnstu áhöldum yfir í stærstu tæki og vélar fyrir bakara og matreiðslumenn, vinnufatnað, inn- réttingar, borðbúnað o.fl. Um viðbrögð sín þegar allir helstu viðskiptavinir fyrirtækisins skelltu í lás, og síminn þagnaði, segja þeir Bjarni og Þröstur, að þeir hafi horft hvor á annan. „Það var ekkert að gera og síminn hringdi ekki. Við ákváðum því að byrja með þetta sprell sem reyndist rosalega vinsælt. Um 170 þúsund manns hafa séð þetta. Við sendum út í beinni útsend- ingu daglega í nokkurn tíma. Þetta mæltist mjög vel fyrir. Okkur lang- aði í og með að hjálpa kokkunum, sem við erum alla jafna í miklum samskiptum og viðskiptum við, að kynna sig. Svo smátt og smátt fóru símarnir að hringja aftur, og fólk að koma í heimsókn.“ Mörg skólaeldhús í viðskiptum Einnig lifnaði yfir fyrirtækinu á ný þegar skólarnir byrjuðu aftur eftir lokanir vegna samkomubanns, og hægt var að opna skólaeldhúsin. „Við erum með mörg skólaeldhús í við- skiptum. Við bjóðum líka allt sem til þarf, allt frá eldunartækjum, að postulíninu. Þá bjóðum við glös, katla og hvað eina sem þarf,“ segir Þröstur. „Svo erum við líka með kampa- vínssveðjur,“ bætir Bjarni við. „Já og vínskápa fyrir heimili, silikonform og alls konar aðra hluti,“ nefnir Þröstur. Eins og önnur fyrirtæki í landinu sem lentu illa í veirunni, nýtti Bakó Ísberg sér hlutabótaleið stjórnvalda. „Við værum í blússandi tapi ef hún hefði ekki komið til. Nú náum við að vera við núllið. En áskorunin verður næsta haust þegar allir starfsmenn verða aftur komnir á full laun.“ Spurðir um hvernig fyrirtækið hafi verið búið undir áfallið vegna veirunnar, og veltuminnkunina, seg- ir Bjarni að í kjölfar þess að flug- félagið WOW air hætti starfsemi í fyrra hafi verið kominn samdráttur á markaðnum. Bakó Ísberg hafi brugðist við með því að fækka starfs- fólki og tekið til í rekstrinum. „Við komum því vel undirbúin inn í þetta ár. Við áttum gott viðsnúningsár í fyrra. Það var búið að trimma niður fitu.“ Tólf starfsmenn vinna hjá Bakó Ísberg. Þeir Bjarni og Þröstur segj- ast nú þegar vera farnir að huga að næsta sprelli. „Við ætlum að koma sterkir inn með haustinu með eitt- hvað svipað og Meistarakokkana. Þetta er líka gott efni til að nýta á netinu til markaðssetningar. Þetta er annar vinkill á markaðs- setninguna.“ Sala til einstaklinga jókst meðan ferðaþjónustufyrirtækin lokuðu Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Veltan í Bakó Ísberg datt niður þegar kórónuveiru- faraldurinn fór að geisa, en nú er síminn farinn að hringja á ný. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Þröstur Heiðar Líndal og Bjarni Ákason með kampavínssveðjuna sem er til sölu í verslun fyrirtækisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.