Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020FRÉTTIR
Mesta lækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
BRIM
-1,15%
38,60
Mesta hækkun
ICEAIR
+12,43%
1,99
S&P 500 NASDAQ
+2,35%
10.176,37
+0,93%
3.144,2
-1,54%
6.320,12
FTSE 100 NIKKEI 225
24.12.‘19 24.12.‘1923.7.‘20
1.400
1.598,0
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
43,38
+0,87%
22.549,05
20
40
1.800
23.6.‘20
1.814,0
60
67,2
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
Samkvæmt lauslegri samantekt Jak-
obs Einars Jakobssonar, veitinga-
manns á Jómfrúnni við Lækjargötu,
og stjórnarmanns í Samtökum ferða-
þjónustunnar, hefur nú þrjátíu veit-
ingastöðum í miðborg Reykjavíkur
og nágrenni verið lokað á síðustu vik-
um og mánuðum.
Ástæðan er ýmist
gjaldþrot, eða
óvissa vegna
áhrifa kórónu-
veirufaraldursins.
Jakob segir í
samtali við Við-
skiptaMoggann
að listinn yfir
fyrirtækin hafi
lengst mikið í þessum mánuði, en fyrr
í júní var sagt frá því á vefnum Veit-
ingageirinn.is að átján veitinga-
stöðum hefði verið lokað. Þann lista
tók Jakob einnig saman.
„Veitingarekstur er í raun ósjálf-
bær sem sakir standa. Sum tómu
rýmanna eru þó að fyllast á ný, og ný-
ir rekstraraðilar komnir þar að.
Bjartsýni er að aukast á ný.“
Kemur ekki á óvart
Jakob segir aðspurður að þessi
fjöldi veitingastaða sem sé hættur
komi sér ekki á óvart. Erlendir ferða-
menn hafi horfið eins og dögg fyrir
sólu þegar veiran fór að geisa. „Ég
bjóst samt við því í vor að fleiri veit-
ingastaðir yrðu búnir að opna aftur
um þetta leyti en raunin hefur orðið.“
Birgjar sem þjónusta veitinga-
húsin eru einnig að hugsa sinn gang
að sögn Jakobs. „Ég veit um birgja
sem eru að íhuga að hætta að þjón-
usta 101 vegna þess að þeir ná ekki
lengur samlegðaráhrifum.“
Jakob segir að erfitt sé að bera
saman rekstrargrundvöll staða eins
og Jómfrúarinnar, sem hefur lengi
haft traustan innlendan viðskipta-
vinahóp, og veitingastaða sem hafa
reitt sig að stórum hluta á viðskipti
frá erlendum ferðamönnum. „Jóm-
frúin er með 25 ára sögu, og stendur
traustum fótum á innanlandsmarkaði.
Ég get því ekki kvartað persónulega.“
Hann segir að það hjálpi einnig að
með fækkun staða minnki sam-
keppnin. „Við erum búin að vera í
grænum tölum á Jómfrúnni frá því 4.
maí, þegar samkomubannið var fært
úr 20 manns í 50. Þá sáum við okkur
stætt á að opna að nýju. Síðan þá
hefur þetta verið góður rekstur.“
Áskoranir í rekstrinum
Áskoranir séu þó í rekstrinum,
einkum út af miklum verðhækkunum
á aðföngum, sem og hækkunum á
launum og launatengdum gjöldum.
„Við reynum að komast hjá því að
færa hækkanirnar út í verðið hjá
okkur. Nú sem aldrei fyrr er þörf á
því að halda vel á spöðunum í rekstr-
inum.“
Önnur breyta er veðrið að sögn
Jakobs. „Veðrið í sumar hefur verið
gott. Ég vona að þetta verði bara eins
og sumarið í fyrra, sem var mjög
veðursælt.“
Að endingu segist Jakob vona að
fólki líti til borgarinnar þegar kemur
að ferðalögum innanlands. „Ég held
að borgarferð í miðborgina sé eitt-
hvað sem menn ættu að skoða.“
Þrjátíu veitingastaðir lokaðir
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn
hefur haft mikil áhrif á veit-
ingageirann miðsvæðis í
Reykjavík, og óvissa ríkir
um framhaldið.
1
4
7
8
11
13
6
1415
17
18
19
16
9
10
2
20
22
24
25
26
27
27
29
30
23
3
5
12
21
1. Lækjarbrekka,
Bankastræti 2
2. Jamie Oliver,
Pósthússtræti 11
3. Karolina,
Pósthússtræti 9
4. Marina á Icelandair
hótel, Mýrargötu 14-16
5. Geiri Smart á
Icelandair hótel,
Hverfisgötu 30
6. Icelandic Streetfood
(Þrír staðir, einhverjir hafa
opnað aftur), Lækjargötu 8
7. Icelandic deli,
Lækjargötu 4
8. Hressó, Austurstræti 20
9. Burro, Veltusundi 1
10. Pablo, Veltusundi 1
11. Bergsson,
Templarasundi 3
12. Messinn (Lækjargata
og Grandi), Grandagarði 8
13. Bryggjan brugghús
(Barion búið að opna),
Grandagarði 8
14. Café Paris (Duck
and Rose búið að opna),
Austurstræti 14
15. Fiskmarkaðurinn,
Aðalstræti 12
16. Sæmundur í spari á
Kex hostel, Skúlagötu 28
17. Skólabrú,
Pósthússtræti 17
18. Gandhi
(Er að flytja sig annað),
Pósthússtræti 17
19. Downtown Café,
Laugavegi 51
20. Kaffihúsið í Máli og
menningu, Laugavegi 18
21. Harry’s (opna aftur
í dag), Laugavegi 84
22. Old Iceland,
Laugavegi 72
23. Geysir Bistro
Laugavegi, Laugavegi 96
24. Osteria Emiliana
Lasagna, Hlemmi mathöll
25. Eldsmiðjan
Laugavegi, Laugavegi 81
26. Gummi Ben,
Tryggvagötu 22
27. Grillið, Hagatorgi 1
28. Fish and Chips,
Tryggvagötu 11
29. Dill – bara opið einn
dag í viku, Laugavegi 59
30. Hard Rock – bara opið
á kvöldin, Lækjargötu 2a
Veitingastaðir í
101 Reykjavík
og nágrenni sem
eru lokaðir vegna
gjaldþrots eða
óvissu
Jakob Einar
Jakobsson
FJÁRMÖGNUN
Viðskiptabankarnir hafa á síðustu
mánuðum stóraukið útlán sín til
heimila í landinu þar sem íbúðar-
húsnæði er lagt að veði. Hafa um-
svifin aukist samhliða lækkandi
vöxtum og hafa heimilin í landinu
nýtt sér þá breyttu stöðu, bæði við
fasteignakaup og einnig endur-
fjármögnun eldri lána. Útlánavöxt-
urinn náði nýjum hæðum í maí-
mánuði þegar ný útlán bankanna að
teknu tilliti til upp- og umfram-
greiðslna námu tæpum 22,3 millj-
örðum króna. Jukust útlánin um 9,5
milljarða frá aprílmánuði þegar þau
námu 12,8 milljörðum tæpum.
Það sem af er ári hafa bankarnir
lánað, umfram upp- og umfram-
greiðslur til húsnæðiskaupa eða
endurfjármögnunar, ríflega 66,7
milljarða króna. Yfir sama tímabil í
fyrra (fyrstu fimm mánuði ársins)
námu útlánin 50,7 milljörðum króna.
Óverðtryggt allsráðandi
Þegar litið er til undirflokka
þeirra lána sem bankarnir veita með
veði í íbúðarhúsnæði kemur glögg-
lega í ljós að neytendur leita að lang-
stærstum hluta í óverðtryggð lán
með breytilegum vöxtum. Ný útlán
af þeirri tegund námu 27,4 millj-
örðum í maímánuði. Upp- og um-
framgreiðslur óverðtryggðra lána
með föstum vöxtum námu 3,4 millj-
örðum og jukust frá fyrri mánuði.
Raunar hafa uppgreiðslur slíkra
lána numið hærri fjárhæð en nýjar
lántökur allt frá því í júní 2019. Ný
verðtryggð lán með breytilegum
vöxtum voru 427 milljónir króna.
Hins vegar voru uppgreiðslur verð-
tryggðra lána með föstum vöxtum
2,2 milljarðar króna umfram nýtekin
lán.
Lána sem aldrei fyrr
með veði í húsnæði
Morgunblaðið/Eggert
Verðtryggðu lánin virðast á algjöru
undanhaldi á íslenska markaðnum.