Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 8

Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020SJÓNARHÓLL Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar KRISTINN MAGNÚSSON Þegar hinn kanadíski Wayne Gretzky, einn fræg-asti íshokkíleikmaður heims, var spurður hverværi hans aðalregla við að skauta í keppni á svellinu svaraði hann: „Þangað sem pökkurinn er að fara, ekki þar sem hann hefur verið.“ Mér komu þessi fleygu orð í hug þegar ég fylgdist með fréttum undan- farna daga sem greina stöðugt frá málefnum fyrirtækja sem eru, eða hafa þurft, að endurskoða stöðu sína og framtíðaraðgerðir á markaði. Ekki aðeins hefur kórónuveiran haft áhrif á hvernig stjórnendur nálgast samskipti og samvinnu, heldur eru ýmsir kraftar að hrista upp í viðhorfum og afstöðu til ýmissa mála. Má sérstaklega nefna þá bylgju sem reis þegar hvítur lögreglumaður varð blökkumanni að bana í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Atburður, sem því miður hefur gerst æði oft þar í landi, varð til þess að um allan heim hafa risið mótmæli gegn kúgun og þrældómi blökku- manna í gegnum aldirnar. Annað dæmi má nefna sem snýr að stöðu jafnréttismála hér á landi sem annars staðar. Við Íslendingar höfum talið okkur í fremstu röð á því sviði og nýverið töldu um 70% þjóðarinnar að jafnrétti væri náð. Þriðja dæmið er umræð- an um fíkn af ýmsu tagi. Fyrir fáum dögum birtist áskorun til samtaka sem standa að happdrætti af ýmsu tagi með áskorun um að hverfa frá þeirri leið. Margir ættu um sárt að binda vegna spilafíknar og ekki væri réttlætanlegt að halda slíkri starfsemi úti sem fjáröflun. En hvað hefur þetta að gera með það viðhorf Gretzky að skauta þangað sem pökkurinn er að fara? Sú tenging sem ég er með í huga er hvernig fyrirtæki – og stofn- anir og félagasamtök – nálgast það að viðhalda stöðu og ímynd vörumerkis. Um leið fyrirtækisins sjálfs. Í grunninn snýr viðfangsefnið að stefnumótun, þ.e. að rýna stöðugt hvar fyrirtækið er og hvert það vill fara. Og lykillinn að þeirri umræðu er að átta sig á þeim straumum sem eru í gangi og munu hafa áhrif á afstöðu samfélags (markaðar/einstaklinga) til fyrirtækisins. Með öðrum orðum; hvert pökkurinn er að fara. Dæmin eru allt í kringum okkur. Bylgjan sem hefur risið út af morðinu á George Floyd hefur m.a. leitt til þess að fyrirtæki hafa verið að endurskoða á hvern hátt þau koma fram gagnvart samfélaginu. Sem dæmi má nefna að Uncle Ben’s hrísgrjón og Aunt Jemima síróp munu líklega breyta vörumerkjum sínum sem sýna blökkufólk. Hætta þar með að ýta undir „staðalímynd“ blökkumanna. Stjórnendur Oriel-háskólans í Oxford til- kynntu nýlega að þeir vildu fjarlægja styttu af Cecil Rhodes sem stendur á húsnæði skólans. Telja að stytt- an standi fyrir nýlendustefnu Breta og kynþátta- fordóma. Dæmin eru mörg. Ofangreind dæmi sýna hins vegar viðbrögð – þar sem pökkurinn er – en ekki frumkvæði – þangað sem pökk- urinn er að fara. Á þessu er grundvallarmunur. Vissu- lega er jákvætt að stjórnendur bregðist við umræðunni og endurskoði stöðu, stefnu og ásýnd sína gagnvart samfélagi og markaði, en það verður ekki nærri eins öflugt og að vera á undan. Eins og Gretzky. Frumkvæði nær athygli og sýnir skilning á stöðu og framtíð. Sýnir að stjórnendur hafa fingur á púlsi umhverfisins og skynja þörf- ina á að fyrirtækið – vörumerkið sjálft – sé ekki bara í takti við nýja tíma, heldur sjái hvert samfélagið er að fara. Átti sig á straumum þess og á hvern hátt gildismat, viðhorf, smekkur og afstaða er að breytast. Yfirfæri þá sýn á fyrirtækið og spyrji sig; hvaða breytingar þarf að gera á stefnunni og þeim skilaboðum sem vörumerkið sendir út á markaðinn? Svörin geta skilað strategískum ákvörðunum eins og þegar Krónan hætti að nota plast- poka í grænmetinu eða táknrænum breytingum eins og breyttu lógói Uncle Ben’s hrísgrjóna. Sjaldan hafa eins miklar hræringar átt sér stað í samfélögum, og þar með atvinnulífi, eins og nú um stundir. Rauði þráðurinn er stóraukin samfélagsvitund um málefni sem hafa í auknum mæli fengið athygli. Kynþáttamisrétti, jafnrétti kynjanna, verndun náttúr- unnar, loftslagsmál, vinnsla matvæla, nýting auðlinda og svo mætti lengi telja. Alla þessa þætti er brýnt fyrir stjórnendur að rýna í og spyrja sig; hvert er pökkurinn að fara? STJÓRNUN Þórður Sverrisson ráðgjafi í stefnumótun og stjórnun Hvert er pökkurinn að fara? ” Vissulega er jákvætt að stjórnendur bregðist við umræðunni og endur- skoði stöðu, stefnu og ásýnd sína gagnvart samfélagi og markaði, en það verður ekki nærri eins öflugt og að vera á undan. Kannski er það svolítið kvikindislegt að skrifa um sérútgáfu af Lagavulin- viskíi sem ég fann fyrir algjöra til- viljun á veitingastað í Kappadókíu í Tyrklandi um síðustu helgi. Viskí- úrvalið í Vínbúðunum á Íslandi er jú svo fátæklegt að lesendur sem fá fiðring í bragðlaukana við lestur greinarinnar geta ekki beinlínis spanað beint á næsta útsölustað ÁTVR og gengið þar að flösku vísri í hillunum. Raunar eru aðeins tvær gerðir af Lagavulin fáanlegar á Ís- landi, á meðan verslanir eins og Royal Mile Whiskies í London, þar sem Íslendingurinn Jakob Jónsson ræður ríkjum, er með sjö gerðir í boði og aðrar 9 til viðbótar upp- seldar. (Þar vantar reyndar gerðina sem hér er til umfjöllunar, en til eru fleiri sérverslanir með viskí sem taka við pöntunum yfir netið.) En þarna sat hún sem sagt, uppi í hillu á barnum á Museum Hotel og meira að segja óopnuð, tiltölulega fágæt en fjarri því ófáanleg flaska af Lagavulin Distillers Edition, upplag nr. 4/506, eimað árið 2001 og sett á flösku 2017. Um er að ræða sér- útgáfu, „double matured“ viskí sem fyrst var látið þroskast í tunnum með hefðbundnum hætti, en síðar fært yfir í tunnur sem höfðu verið notaðar til sérrígerðar. Vel heppnuð hlutföll Fyrir röskum mánuði var fjallað hér á sama stað um 16 ára Lagavul- in, sem er staðaldrykkur þessa framleiðanda og mikil klassík, en í sérútgáfunni hefur tekist að gera gott viskí enn betra. Eru það sérrí- tunnurnar sem væntanlega gera gæfumuninn, milda viskíið og ljá því sætara bragð. Á meðan staðal- útgáfan lætur vita vel af sér í munni þá er upplag nr. 4/506 fínlegra og auðdrekkanlegra. Er hér komið viskí sem hittir alveg í mark hjá mér: reykjar- og jarðtónarnir nógu sterkir til að eftir þeim sé tekið, án þess samt að yfirgnæfa skilningar- vitin, og sætur keimur og ávöxtur inn á milli sem kallast skemmtilega á við karlmannlega jarð- og málm- tóna. Algjört nammi og fínt, hæfi- lega dýrt spariviskí til að eiga inni í skáp. Sérrítunnurnar gera gæfumuninn HIÐ LJÚFA LÍF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.