Morgunblaðið - 24.06.2020, Síða 12
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
VERTU VAKANDI
Í FYRSTA SKIPTI
Á ÆVINNI
Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná
fullkomnum nætursvefni. Rúmin eru framleidd með einstöku samspili
handverks og hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í gæðum
náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi handverkið.
Þú sérð það ekki en þú munt fi nna fyrir því. Allan sólarhringinn.
Heimsæktu Hästens í Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com.
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Bjóða upp á „Costco-vörur“ …
Vefsíða Play í loftið
Velta Spaðans rúmlega milljón …
Sýna Icelandair áhuga
Kristjánsbakarí segir öllum upp
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Í fyrra voru fluttar til landsins 85.117
flöskur af kampavíni að því er fram
kemur í árlegri kampavínsvísitölu
sem Arnar Sigurðsson víninnflytj-
andi hjá Santé tekur saman. Bendir
hann á að með innflutningnum hafi
met fyrra árs, þegar 71.961 flaska var
flutt til landsins, verið slegið með af-
gerandi hætti.
„Þetta er ríflega 18% aukning frá
fyrra ári en það ár nam aukningin frá
árinu 2017 rúmum 8%.“
Hefur innflutningurinn verið í nær
stöðugum vexti frá árinu 2010 að
undanskildu árinu 2014 þegar hann
dróst eilítið saman frá fyrra ári.
Mikið dró úr innflutningi í banka-
hruninu. Tæplega 68 þúsund flöskur
voru fluttar inn 2007 en salan hrundi
á árunum sem á eftir komu og náði
algjöru lágmarki 2010 þegar aðeins
18.108 flöskur voru fluttar til lands-
ins.
Samkvæmt tölunum sem Arnar
vinnur upp úr útflutningsskýrslum í
Frakklandi nam verðmæti vínsins
sem flutt var til landsins í fyrra 1,9
milljónum evra, jafnvirði tæplega 300
milljóna króna á núverandi gengi. Of-
an á það bætist svo flutningskostn-
aður, áfengisgjald og virðisauka-
skattur. Áfengisgjald á hverja 750 ml
kampavínsflösku nemur 923 krónum.
Tekjur ríkissjóðs af gjaldinu vegna
innflutnings síðasta árs hefur því
numið 78,6 milljónum króna. Arnar
segir líkur á að innflutningur kampa-
víns muni dragast eitthvað saman í
ár.
„Við eigum eftir að sjá hvernig árið
þróast. Við sjáum hins vegar að stóru
framleiðendurnir úti eru að draga úr
framleiðslunni og nemur samdráttur-
inn allt að 30% milli ára,“ segir
Arnar.
68
44
22
18
23 24
27 26
35
44
66
72
85Þúsundir flaskna
Innfluttar kampavínsflöskur 2007-2019
80
60
40
20
0
'07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19
Heimild:
Santé
85 þús. flöskur
til landsins 2019
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Innflutningur á kampavíni
tók talsverðan kipp á síð-
asta ári og fjölgaði inn-
fluttum flöskum um 18,3%.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þúsundir einstaklinga og lögaðilahafa nú óumbeðið fengið það
hlutverk að fjármagna starfsemi
Icelandair Group. Það gerir sá hóp-
ur fólks sem pantað hefur átt flug á
síðustu mánuðum sem fellt hefur
verið niður af alkunnum ástæðum.
Stór hluti þeirra sem Icelandair hef-
ur leitað til hefur fallist á að þiggja
„inneign“ í stað flugfargjaldsins sem
engri þjónustu skilaði. Hlaðast þær
inneignir nú upp sem skuld í bókum
félagsins og ljóst að það mun þurfa
að fljúga með þúsundir farþega til
og frá landinu á komandi misserum
án þess að hljóta frekari greiðslu
fyrir. Það verður mögulega léttvægt
fyrir félagið meðan eftirspurn helst
veik en mun reyna meira á þegar
sætanýting tekur að aukast á nýjan
leik.
Hins vegar hafa þúsundir farþegakrafið félagið um endur-
greiðslu, sem þeir eiga skýlausan
rétt til. Nemur endurgreiðslukrafan
milljörðum króna nú þegar. Sam-
kvæmt lögum ber félaginu að endur-
greiða miðaverðið að fullu innan sjö
daga frá því að krafan þar um er
lögð fram.
Fáir hafa fengið endurgreitt fráIcelandair frá því um miðjan
mars. Félagið segir ósatt þegar það
heldur því fram að álag á skrif-
stofum félagsins valdi töfunum. Hið
rétta er að sviðnir viðskiptavinirnir
eru látnir fjármagna félagið. Það er
hins vegar ekki þeirra hlutverk. Er
félag sem svona gengur fram á vetur
setjandi?
Á vetur
setjandi?
Það þurfti félagshagfræðilegagreiningu til þess að fá það út
að Borgarlína myndi einhvern
tíma borga sig. Allar aðrar hag-
fræðilegar greiningar myndu að
sjálfsögðu benda til að línan sú
verði botnlaus hít sem skattgreið-
endur muni moka í af veikum
mætti. Þar mun aldrei sjást til
botns og stjórnmálamennirnir sem
ýttu málinu úr vör þrátt fyrir
varnaðarorð munu heldur aldrei
komast til botns í því af hverju fé-
lagshagfræðilega greiningin gekk
ekki upp.
Dellan í kringum þessa risa-framkvæmd kristallast ágæt-
lega í yfirlýsingum forsvarsmanns
verkefnastofu Borgarlínu sem í
Morgunblaðinu í gær fullyrti að
uppbygging línunnar myndi leiða
til rekstrarhagræðis. Það birtist
m.a. í því að á háannatímum í dag
þyrfti að kalla út aukavagna sem
ekki þyrfti í nýja kerfinu því af-
kastagetan yrði öllum stundum
svo yfirgengilega mikil. Verk-
efnastjórinn gleymdi að minnast
þess að utan háannatímanna sem
standa í klukkustund tvívegis á
dag, er vögnunum eldspúandi ekið
að mestu tómum um borgarlandið.
Annað atriði sem félagshag-fræðilega greiningin gengur
út frá er að með stórauknum af-
köstum muni farþegum kerfisins
fjölga óumræðilega. Í félagshag-
fræðinni haldast lögmál framboðs
og eftirspurnar illa saman og þar
er öllu snúið á hvolf. Sá sem fylgir
mælistikum hennar flytur meira
inn af vöru ef hún selst ekki –
enda eykur framboðið eftir-
spurnina.
Sá hinn sami hefur eflaust kok-
gleypt hugmyndir þáverandi fé-
lagsmálaráðherra sem benti á að
ef 10 verktakar sem kæmu að hús-
byggingu myndu hver og einn
gefa 1% afslátt af vinnu sinni, þá
myndi húsnæðisverð í einni svipan
lækka um 10%.
Eitt er víst að Borgarlínanverður mikið nýtt af félags-
hagfræðingum, verkefnastjórum
og fyrrverandi félagsmálaráðherr-
um. Aðrir Íslendingar, nær og
fjær, munu bara moka ofan í
skuldaholuna við enda línunnar.
Öllu má snúa á haus
Viðskiptavinum Arion
banka býðst nú að
leggja sparnað sinn
inn á vistvæna inn-
lánsreikninga.
Arion býður
vistvæn innlán
1
2
3
4
5