Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Side 2
Hvernig ertu búinn að hafa það á þessum
kórónuveirutímum?
Ég tók mér eiginlega bara leyfi. Ég gerði ekkert. En ég er
allur að koma til núna með rísandi sól og blómstrandi mann-
lífi. Nú er ég farinn að semja nýtt efni.
Segðu mér frá uppistandinu sem þú hyggst
vera með í sumar?
Ég verð með sýningar í Tjarnarbíói. Við verðum
með fimm sýningar í júní og þær halda svo áfram
eitthvað í júlí og ágúst.
Þú segist ætla að vera með nýtt grín.
Geturðu sagt mér hvað verður nýtt?
Nei, en ég tala auðvitað um seinustu mánuði.
Þetta er blanda af dægurmálum, fréttaskotnu
efni og svo einhverju alveg út úr kú. Ég geri
samt ráð fyrir að sýningin í ár verði útötuð í
covid-tilvísunum. Ég mun rapportera ringul-
reiðina. Þetta er tilraunasýning og það verður
algjört lotterí hvað virkar og hvað ekki. Það er
ekkert tilbúið handrit.
Er ekkert erfitt að fá hugmyndir?
Jú, en neyðin kennir nöktum grínista að spinna.
Hvað er annað á döfinni?
Ég ætla að slaka á og læra að anda. Ég er að tileinka mér
Wim Hof-öndun. Það er mjög gaman að ögra sér aðeins
þar. Svo er ég að gefa út vínilplötu á ensku en á henni er
upptaka af uppistandi sem var tekið upp í Edinborg í fyrra.
Grínklúbburinn Monkey Barrel þarf að vera með lokað út
árið þannig að þeir ætla að gefa út plötur í fjáröflunarskyni.
Það er hægt að kaupa plötuna, eða stafrænt niðurhal, á Kick-
starter undir mínu nafni.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
K
ri
st
in
n
M
ag
nú
ss
on
ARI ELDJÁRN SITUR FYRIR SVÖRUM
FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020
Ég hugsa mjög mikið um mat. Góðan mat. Ég pæli endalaust í upp-skriftum, skoða kokkabækur og horfi á kokkaþætti. Ég prófa migáfram í eldhúsinu og er dugleg að sækja veitingastaði hér heima og er-
lendis. Ferðir á góða veitingastaði eru oft hápunktar ferða hjá mér. Ég man
enn hvernig sumt bragðaðist; kannski mörgum áður síðar. En ég er nýlega
búin að uppgötva að ég er líklega haldin einhvers konar röskun. Hungur-
kvíðaröskun. Þetta er kannski ekkert til og ég bjó orðið til, en það lýsir vel
því sem hrjáir mig. Ég hræðist nefnilega agalega mikið að verða svöng!
Um daginn fór ég að ganga á
Helgafell og tók með mér vatns-
brúsa og banana, ef ég skyldi allt í
einu vera að deyja úr hungri uppi á
toppi. Sú tilhugsun var afar slæm.
Ég borðaði ekkert bananann en leið
vel að vita af honum. Ég fattaði þá
að ég geri þetta alltaf. Ef ég fer í við-
tal og veit að ég kemst ekki alveg
strax í mat gúffa ég í mig orkustykki
svo ég verði ekki banhungruð í
miðju viðtali. Ef ég þarf að keyra út
á land birgi ég mig upp af nesti, svo
ég verði örugglega ekki hungur-
morða á leiðinni.
Ekki skil ég hvaðan þessi hungur-
kvíðaröskun kemur. Það er ekki eins og ég hafi nokkurn tímann upplifað al-
vöru hungur eða svelti um ævina. Það mætti halda að mamma hefði skammt-
að mér naumt sem barni eða ekki haft nógan mat á borðum. Hið gagnstæða
var satt; það var alltaf of mikill matur. Og ég hef líklega erft þetta frá
mömmu. Ég elda oftast eins og ég eigi fimm börn en ekki tvö. Ég get nefni-
lega ekki hugsað mér að verða uppiskroppa með mat! Týpísk hungurkvíða-
röskun. Fyrir bragðið sitt ég yfirleitt uppi með afganga sem ég þarf að plata
ofan í unglingana mína, sem vilja helst ekki afganga enda miklir gourmet-
grísir og eiga ekki langt að sækja það.
Annars er ég sennilega óþolandi gestur á veitingastöðum. Í fyrsta lagi fæ
ég alltaf stjórnlausan valkvíða þegar ég skoða matseðilinn. Mig langar nefni-
lega oftast í allt. Ég þarf að spyrja þjóninn margra spurninga áður en ég
panta. „Hvaða meðlæti kemur með þorskinum? Er nokkuð hægt að fá sveppi
með þessu og kannski auka brauð? Ertu til í að setja sósuna til hliðar?“
Svo þarf ég að passa að ég fái örugglega nóg og spyr ef ég veit að skammt-
arnir séu litlir: „Er þetta nógu stór skammtur til að verða saddur?“
Unglingarnir mínir ranghvolfa augunum og segja: „Mamma, geturðu ekki
bara pantað?“
Hungurkvíðaröskun
á háu stigi
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Ég elda oftast eins ogég eigi fimm börn enekki tvö. Ég get nefnilegaekki hugsað mér að verða
uppiskroppa með mat!
Týpísk hungurkvíðaröskun.
Sigfús Haraldsson
Hundar. Alls ekki kettir. Það ætti að
setja reglur um ketti, þeir eiga að
vera inni.
SPURNING
DAGSINS
Hundar
eða kettir?
Edda Lovísa Edvardsdóttir
Hundar. Ég hef alltaf átt hunda og á
nú einn labrador.
Max Tylkowski
Hundar, alltaf. Ég á hund í heima-
landi mínu Póllandi.
Helga Hlín Stefánsdóttir
Ég er hundamanneskja og á tvo
hunda. Myndi aldrei fá mér kött.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Ari Eldjárn stingur hausnum aftur út í fyrsta skipti á þessum for-
dæmalausu tímum og prófar nýtt grín í skemmtilegri og tilrauna-
kenndri uppistandssýningu í Tjarnarbíói. Miðar fást á tix.is.
Neyðin kennir
nöktum grínista
Þú getur
bókað góðan
fund í Hörpu
Fundarými af öllum stærðum og gerðum
Nánar á harpa.is/fundir
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is